Læknablaðið - Dec 2018, Page 27
LÆKNAblaðið 2018/104 559
Í pistlunum Úr penna
stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar
eigin skoðanir en ekki félagsins.
Reynir Arngrímsson
formaður
Björn Gunnarsson
gjaldkeri
FAL
Guðrún Ása Björnsdóttir
Ýmir Óskarsson
FÍH
Salóme Ásta Arnardóttir
Jörundur Kristinsson
varaformaður
FS
María I. Gunnbjörnsdóttir
Gunnar Mýrdal
ritari
LR
Þórarinn Guðnason
Guðmundur Örn
Guðmundsson
Stjórn
Læknafélags
Íslands
Björn Gunnarsson
svæfingalæknir á
Sjúkrahúsinu á Akranesi
bjorn.gunnarsson@hve.is
Læknar sem stjórnendur
Á nýafstöðnum aðalfundi Læknafélags Íslands
(LÍ) dagana 8.- 9. nóvember var auk venjulegra
aðalfundarstarfa haldið málþing eða málstofa um
stefnumótun Læknafélagsins í heilbrigðismálum.
Var þessi málstofa haldin í framhaldi af kynningu
heilbrigðisráðuneytisins á drögum að heilbrigð-
isstefnu sem lögð var fram á heilbrigðisþingi
sem haldið var 2. nóvember síðastliðinn. Á þessu
málþingi Læknafélagsins var þátttakendum skipt
niður í nokkra vinnuhópa og voru þar teknir fyrir
mismunandi málaflokkar. Sjálfur sat ég í vinnuhópi
sem fjallaði um vinnubrögð, samráð og aðferða-
fræði stefnumótunar heilbrigðisráðuneytisins.
Höfðu menn svo sem ýmislegt út á þau vinnubrögð
að setja. Í öðrum vinnuhópi átti auk annarra þátta
að fjalla um stjórnun og komu þar fram nokkur
atriði sem vöktu áhuga minn því þau ríma vel við
margt það sem til að mynda sænska læknafélagið
hefur sett fram um lækna og stjórnun. Um þetta má
lesa í sænska læknablaðinu, Läkartidningen.
Í greinargerð þessa vinnuhóps á málþingi LÍ var
lögð áhersla á að læknar hafi stjórn á eigin vinnu-
umhverfi, vinnutíma og skipulagi, nokkuð sem
Læknafélagið og undirfélög þess hafa barist fyrir í
mörg ár. Einnig var það sjónarmið hópsins að það
vantaði miklu fleiri lækna í stjórnunarstöður, það
þyrfi að fækka millistjórnendum og stytta boðleið-
ir frá og til yfirstjórnenda. Skilgreina þyrfi betur
ábyrgðarsvið heilbrigðisstétta og svo var minnt á að
læknar væru mikilvægir stjórnendur í teymisvinnu
því þeir bæru að jafnaði lokaábyrgðina og þyrftu að
geta tekið erfiðar ákvarðanir hratt og örugglega.
Síðasta atriðið í þessu vinnuplaggi fjallaði svo
um stjórnunarnám lækna og að það þyrfti að
styrkja. Í nýlegu tölublaði sænska læknablaðsins er
einmitt fjallað um þetta og þar kemur fram að eitt
af undirfélögum sænska læknafélagsins hefur kom-
ið á fót námskeiði fyrir lækna í yfirmannsstöðum.
Eða eins og einn stjórnarmaður félagsins orðaði
það: „við bjuggum til námskeið sem við sjálfir
hefðum viljað fara á en höfðum ekki fundið“. Ég
held að þessi orð séu einmitt lýsandi því ég hef oft
heyrt kollega mína skýra frá námskeiði í „stjórnun“
þar þeim fannst mjög vanta praktíska og klíníska
tengingu við heilbrigðiskerfið.
Sænska læknafélagið hefur það að markmiði að
fjölga yfirmönnum í hópi lækna um að minnsta
kosti helming fram til ársins 2020. Takmarkið er
sömuleiðis að fá fleiri lækna til að sitja lengur í
stjórnunarstöðum en nú er raunin. Því miður er það
staðreynd að margir læknar hætta sem yfirmenn,
ekki vegna þess að þeir valdi ekki starfinu, síður
en svo, heldur gefast þeir upp. Finnst þeir eiga við
frumskóg skriffinnsku að etja. Með betri námskeið-
um, meiri samheldni og stofnun tengslanets lækna
í stjórnunarstöðum er það von sænska læknafé-
lagsins að fleiri læknar haldi áfram sem yfirmenn.
Kannski er þetta eitthvað sem Læknafélag Íslands
gæti beitt sér fyrir. Eins og áður sagði hefur mörg
námskeið í stjórnun skort klíníska tengingu og úr
því þyrfti að bæta. Mögulega þyrfti LÍ að koma á
fót slíku námskeiði. Læknar eru vanir að stjórna
en auðvitað eru alltaf hlutir sem þarf að skoða og
læra. Þú þarft samt ekki að hafa lokið námi í við-
skiptafræði eða lögfræði til þess að geta stjórnað
í heilbrigðiskerfinu eða jafnvel veitt því forystu.
Það er meinloka sem þarf að leiðrétta. Læknar hafa
mestan „kompetens“ í heilbrigðiskerfinu og því er
það í raun skylda þeirra að taka þátt í að stýra því.
Að sama skapi er það skylda heilbrigðisyfirvalda
að nýta sér margra ára nám lækna, notfæra sér
framhaldsmenntun sem læknar hafa sótt sér til
útlanda, í raun ríkisvaldinu að kostnaðarlausu. Það
þurfa ekki allir yfirmenn að vera læknar en það er
dagljóst að þeir þurfa að vera nægilega margir til að
halda uppi læknisfræðilegum „kompetens“.
Oft getur verið erfitt fyrir lækna í stjórnunar-
stöðum að útskýra í hverju starf þeirra felst því að
niðurstöður eða árangur kemur oft seinna í ljós.
Stjórnunarstöðum fylgja margir fundir og ýmsum
kann að þykja sem mál gangi fremur hægt og undr-
ast þann fjölda funda sem taka þarf þátt í. Það er
því mikilvægt fyrir lækna í stjórnunarstöðum að
miðla upplýsingum og útskýra sín sjónarmið. Þar
kemur klíníska tengingin aftur inn í. Kannski er
samt viðhorf yngri lækna til yfirlækna og annarra
lækna í stjórnunarstöðum orðið breytt miðað við
það sem áður var. Þegar ég var í námi var ríkjandi
það viðhorf að það væri erfitt að stýra læknum og
stundum var talað um smákóngaveldi.
Að lokum og kannski meira í gamni en alvöru.
Hvernig væri nú að við auglýstum Læknaþing 2019,
með undirtitlinum Þú hefur valdið – leiðtogafærni
og forysta. Svona svipað og önnur ónefnd heil-
brigðisstétt gerði nýlega, ég bara spyr!
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Ráðstefnur, fundir og viðburðir
radstefnur@icelandtravel.is
Læknadagar eru í góðum höndum
Iceland Travel Ráðstefnur hefur haldið utan um skipulag
Læknadaga til margra ára.
Iceland Travel Ráðstefnur sérhæfir sig í skipulagningu,
undirbúningi og utanumhaldi ráðstefna, funda og viðburða.
R ÁÐSTEFNUR