Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - dec 2018, Qupperneq 62

Læknablaðið - dec 2018, Qupperneq 62
594 LÆKNAblaðið 2018/104 Vilhelmína Haraldsdóttir blóðmeinalæknir á Landspítala, í stjórn FÁSL vilhehar@landspitali.is Félag áhugamanna um sögu læknis- fræðinnar hélt málþing í Þjóðmenningar- húsinu 17. nóvember síðastliðinn og var yfirskrift þess: Jónas Hallgrímsson – hin hliðin – heilsufar Jónasar. Málþingið var afar vel sótt og við sprengdum salinn af okkur. Fundarstjóri var Jón Jóhannes Jónsson yfirlæknir og í inngangi hans kom fram að við værum ekki að kasta rýrð á Jónas heldur vildum við reyna að skilja hann og líf hans betur. Fyrst var fjallað um áfengið og áhrif þess á líf og heilsu Jónasar. Í pontu steig Torfi Tulinius prófessor og setti málið í alþjóðlegt samhengi. Hann fjallaði um rómantísku skáldin í Evrópu á 19. öld og lagði áherslu á drykkjuskap og afstöðu þeirra til víns og annarra vímugjafa. Á þessu tímabili töldu mörg skáld það hjálpa andagiftinni að nota vímugjafa og þá helst áfengi. Næstur talaði Páll Valsson rithöfundur sem skrifaði ævisögu Jónasar. Hann sagði okkur frá hve mikill drykkjuskapur var á stúdentum í Kaupmannahöfn á þessum tíma og hve örlög margra hefðu verið dap- urleg. Páll sagði að oft mætti sjá á bréfum Jónasar að hann væri undir áhrifum þegar hann skrifaði bréfin – bæði á skriftinni og á orðalaginu. Jónas gekk þó í bindindis- félag Hafnarstúdenta. Fram kom að þó að Jónasi hefði þótt sopinn góður hefði hann samt afkastað miklu og verið sívinnandi. Hann stundaði rannsóknir í náttúruvís- indum og fór í ferðalög til Íslands og ferð- aðist um hálendið við afar erfiðar aðstæð- ur og oftast við mjög slæma heilsu. Við ræddum töluvert um fótamein Jónasar og margar tillögur komu fram meðal fundar- gesta um hver væri orsök þeirra. Dagný Kristjánsdóttir prófessor í ís- lenskum bókmenntum ræddi um æskuást- ir Jónasar og þegar hann varð ástfanginn af Þóru Gunnarsdóttur og bað föður henn- ar um hönd hennar en fékk hana ekki. Í kaffitímanum fluttu þau Jóhanna V. Þórhallsdóttir mezzosópran og Páll Torfi Önundarson yfirlæknir og gítarsnillingur stökur Jónasar sem fundust á náttboði hans eftir að hann lést. Páll Torfi hafði samið lag við stökurnar. Óttar Guðmundsson geðlæknir fór yfir sjúkraskrá Jónasar og niðurstöður krufn- ingar á líki hans. Eins og þjóðin þekkir var Jónas á leið heim og datt í bröttum stiga á leið upp í íbúð sína. Hann fékk opið fótbrot og var svo fluttur á sjúkrahús. Það stóð til að taka fótinn af en áður en að því kom lést Jónas örfáum dögum síð- ar. Í krufningu fannst drep og sýking og einnig fundust merki um nýlega og einnig eldri lungnabólgu. Lifrin var stór, um það bil tvöföld að þyngd. Jón Karl Helgason prófessor fjallaði svo um bein Jónasar. Hvernig stóð á því að þau voru grafin upp úr Assisstens-kirkju- garðinum í Kaupmannahöfn og flutt til Ís- lands. Jón Karl fjallaði um þátt Matthíasar Þórðarsonar Þjóðminjavarðar og Sigurjóns Péturssonar forstjóra Álafoss í beinamál- inu og fór yfir þær umræður sem spunn- ust um hvort þetta væru örugglega réttu beinin sem hefðu verið grafin upp þar sem skipulagi kirkjugarðsins hafði verið breytt og nokkrir höfðu verið grafnir til viðbótar í sömu gröf. Rúmlega 150 manns voru á málþinginu og sungu saman Ég bið að heilsa/Nú and- ar suðrið sæla vindum þýðum, og þegar því lauk fóru allir glaðir út í rokið og rign- inguna. Hvernig heilsast Jónasi? 150 manns fræddust um það á málþingi Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar Fundargestir sungu í lokin lagið eftir austfirska snillinginn Inga T. Lárusson sem Íslendingum er hjartfólgnast af lög- um við kvæði Jónasar: Ég bið að heilsa/ Nú andar suðrið sæla vindum þýðum. Myndir/ Vilhelmína Haraldsdóttir Jóhanna Þórhallsdóttir og Páll Torfi Önundarson tóku lagið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.