Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.03.2020, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 05.03.2020, Qupperneq 4
Fáðu fréttablað dagsins í tölvupósti kl. 3.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista blaðsins á www.frettabladid.is#nyskraning Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið Íslenskan er eitt elsta mál sem talað er í Evrópu og það er ekkert mál með jafn svipuðum framburði og saxneskan. Svanur G. Þorkelsson Veður Norðan 8-15 og él um landið norðanvert seint í dag, en styttir upp sunnan heiða. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum norð- austanlands. SJÁ SÍÐU 22 SALTVATNSPOTTAR HEITIRPOTTAR.IS HÖFÐABAKKI 1 SÍMI 7772000 PLUG & PLAY HITAVEITUSKELJAR • Tilbúin til notkunar • Tengja 2 rör • Eyðir minna vatni Kavíar með sögu Finnski matreiðslumeistarinn Mikael Mihailov, sem á rætur í Rússlandi, útbýr svokallaðan Petrossian kavíar á hátíðinni Food and Fun. Petrossian fjölskyldan kom með kavíarinn frá Rússlandi til Parísar fyrir öld síðan og hófst þá ástarsamband kavíarsins og borgar ljósanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR MENNING „Ég var beðinn um að sjá um smá uppákomu fyrir gest sem átti að heiðra,“ segir Svanur G. Þor- kelsson sem vann um hríð við leið- sögn og hélt fyrirlestra á skemmti- ferðaskipi frá Kanada meðfram ströndum Íslands. „Gesturinn hét Margaret Atwood og ég hélt kannski að hún vildi heyra íslensk ljóð lesin upp. Ég fór til hennar og spurði hvað hún vildi heyra og þá svaraði hún einu orði, „Bjólfskviðu“. Svo vildi hún í þokkabót hvorki heyra hana á íslensku né ensku heldur saxnesku.“ Það var vel tekið í upplestur Svans sem þekkir miðaldakvæðið vel. „Hún vissi samt ekkert um það,“ segir hann. „Margaret sagði síðan við mig að ég ætti að láta taka þetta upp en ég vissi svo sem ekkert hvað hún meinti.“ Tveimur mánuðum síðar fékk Svanur símtal frá hljóðbókaútgef- andanum Audible sem vildi fá hann til að lesa kvæðið inn á hljóðbók. Upplesturinn fór fram á Englandi og segir Svanur hann hafa gengið þokkalega. „Ég reyndi að gera þetta af tilfinningu og á frekar drama- tískan hátt,“ segir hann og segist hafa skemmt sér vel. „Undir niðri var samt smáótti um að maður væri ekki að höndla þetta rétt því það veit náttúrulega enginn hvernig saxneskan var nákvæmlega borin fram, þó hægt sé að leiða líkur að því.“ Svanur segir að íslenskan og sax- neskan eigi margt sameiginlegt. „Íslenskan er eitt elsta mál sem talað er í Evrópu og það er ekkert mál með jafn svipuðum framburði og saxneskan. Hljóðsetningin sem er notast við er blanda af latneskri og enskri stafsetningu þegar ljóðið er skrifað niður,“ segir hann. „Þeir nota samt okkar stafi eins og eðið og þornið en svo eru líka hljóð þarna inni sem ekki eru íslensk að uppruna, en ég tel að séu borin fram eins og norrænir menn hefðu borið þau fram.“ Aðspurður um framhaldið seg- ist Svanur spenntur fyrir að lesa Íslendingasögurnar á ensku. „Það væri gaman að gera hljóðbækur þar sem nöfn og staðarheiti væru borin rétt fram í staðinn fyrir að heyra útlendinga tönnlast alltaf vitlaust á þessu. Ég held það geti enginn gert þetta nema Íslendingur.“ arnartomas@frettabladid.is Las Bjólfskviðu inn á hljóðbók á saxnesku Það tók Svan þrjá daga að lesa inn á hljóðbókina. MYND/MICHELL VALBERG Svanur G. Þorkelsson las Bjólfskviðu á sax- nesku inn á hljóðbók. Hann segir íslensku og saxnesku eiga margt sameiginlegt þótt eng- inn viti nákvæmlega hvernig saxneskan hafi verið borin fram. FÉLAGSMÁL Sjaldgæft er að barist sé um formennsku í Félagi eldri borg- ara í Reykjavík en nú eru komin fram þrjú framboð til formanns. Ellert B. Schram lýkur formannstíð sinni en félagið var mikið í fréttum á síðasta ári í tengslum við bygg- ingu blokka við Árskóga, þar sem kostnaður fór langt fram úr áætl- unum. Í framboði til formanns félags- ins eru þau Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur, Borgþór Kjærnested, rithöfundur og þýð- andi, og Ingibjörg H. Sverrisdóttir félagsráðgjafi. „Það hefur staðið mikill styr í kringum félagið undanfarna mán- uði,“ segir Ingibjörg, sem hefur starfað innan Gráa hersins. „Að sjálfsögðu viljum við ekki svona klúður.“ Kosið verður á aðalfundi félags- ins 12. mars, í skrifstofuhúsnæðinu að Stangarhyl 4. – khg Eldri borgarar kjósa formann Að sjálfsögðu viljum við ekki svona klúður. Ingibjörg H. Sverrisdóttir félagsráðgjafi SAMFÉLAG Melrakkasetur Íslands náði á dögunum að skipta rúmlega 300 þúsund króna gjöf í kínverskri mynt. En eins og Fréttablaðið greindi nýlega frá, gátu starfsmenn setursins hvergi skipt myntinni hér á landi. Samkvæmt Ester Rut Unnsteins- dóttur stjórnarformanni hafði maður sem starfar mikið í Kína samband og keypti myntina. Nú er því hægt að nota fjármunina í rann- sóknir á refum á Hornströndum. Nemendur frá Changzhou söfnuðu styrknum og færðu setrinu. Hyggjast þeir koma aftur í sumar og ferðast um Hornstrandir. – khg Komu myntinni loksins í verð Andvirðið nýtist til refarannsókna. 5 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.