Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.03.2020, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 05.03.2020, Qupperneq 6
60 prósent stuðnings- fólks Flokks fólksins telja áhrifin mikil en aðeins 30 prósent stuðningsfólks Pírata og Viðreisnar. Í bréfinu kom Valtýr meðal annars á framfæri mótmælum gegn því að hlutur Erlu Bolladóttur yrði réttur með bótum. 24% aukning varð á verðmæti botnfiskafla á milli áranna 2018 og 2019. JEEP® GRAND CHEROKEE TRAILHAWK FÁANLEGUR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU ALVÖRU LÚXUSJEPPI MEÐ ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIFI jeep.is UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 LISTAVERÐ FRÁ: 11.490.000 KR. • Leðurklætt aðgerðastýri • Rafdrifin opnun á afturhlera • Íslenskt leiðsögukerfi • Bi-Xenon LED framljós með þvottakerfi • 3.0 V6 250 hö. dísel, 8 gíra sjálfskipting • 570 Nm tog • Hátt og lágt drif • Læsing í afturdrifi • Hlífðarplötur undir vél, kössum og skiptingu • Loftpúðafjöðrun • Fjarlægðaskynjarar að framan og aftan • Blindhornsvörn STAÐALBÚNAÐUR M.A.: SJÁVARÚTVEGUR Af lasamdráttur íslenskra skipa reyndist 211 þús- und tonnum minni í fyrra en árið á undan, samkvæmt bráðabirgða- tölum. Þetta kemur fram á vef Hag- stofunnar. Alls var afli íslenskra skipa 1.048 þúsund tonn í fyrra. Þrátt fyrir þennan samdrátt í tonnum jókst aflaverðmæti á milli ára. Aflaverðmæti var samtals um 145 milljarðar króna á síðasta ári, sem er aukning um ríflega 17 milljarða króna frá árinu á undan. Afli botn- fisktegunda var tæplega 481 þúsund tonn á síðasta ári, sem er ámóta magn og veiddist árið 2018. Af la- verðmæti botnfisktegunda jókst hins vegar um tæp 24 prósent á milli ára og nam ríflega 112 milljörðum. Af botnfisktegundum var þorskur sem fyrr verðmætasta tegundin, en af honum veiddust 273 þúsund tonn í fyrra og nam verðmæti þess afla úr sjó um 70 milljörðum króna. Fram kemur á vef Hagstofunnar að af lasamdráttur í fyrra skýrist nær eingöngu af minni uppsjávar- afla, enda varð ekki af loðnuvertíð, auk þess sem minna veiddist af kol- munna og makríl en árið á undan. Ríflega 534 þúsund tonn veiddust af uppsjávarafla, samanborið við 739 þúsund tonn árið 2018. Verðmæti uppsjávartegunda nam 21,6 millj- örðum króna á síðasta ári og dróst saman um tæp tólf prósent frá fyrra ári. – jþ Afli minnkar en verðmæti eykst DÓMSMÁL Lögmaður Erlu Bolla- dóttur hefur skorað á settan ríkis- lögmann að leiða Valtý Sigurðsson og Hauk Guðmundsson fram sem vitni við aðalmeðferð í máli Erlu gegn ríkinu. Þetta kom fram við fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Erla stefndi ríkinu síðastliðið haust til ógildingar á úrskurði endurupptökunefndar, sem hafnaði beiðni hennar um endurupptöku á hennar þætti í Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Erla var ásamt Kristjáni Viðari Júlíussyni og Sæv- ari Marinó Ciesielski, sakfelld fyrir rangar sakargiftir á hendur svo- nefndum Klúbbmönnum í málinu. Af málsgögnum er ljóst að for- svarsmenn Klúbbsins voru þegar til rannsóknar hjá lögreglunni í Keflavík áður en Geirfinnur hvarf, og skýrslur sýna að nöfn þeirra hafi verið tengd við hvarf Geirfinns, áður en ungmennin þrjú voru hand- tekin. Valtýr Sigurðsson fór fyrir rannsókninni í Kef lavík sem full- trúi sýslumanns, en Haukur Guð- mundsson kom að rannsókninni sem rannsóknarlögreglumaður. Ástæður þess að Klúbbmenn f læktust í málið hafa verið rann- sakaðar áður, meðal annars að kröfu Magnúsar Leópoldssonar sem óskaði formlega eftir rann- sókn á meintum líkindum með sér og leirstyttu sem var gerð að undirlagi lögreglunnar í Keflavík, eftir lýsingu sjónarvotta af manni sem fékk að hringja í sjoppu í Kefla- vík kvöldið sem Geirfinnur hvarf. Það vakti því töluverða athygli að Magnús Leópoldsson, Einar Bolla- son og Valdemar Olsen skyldu velja Valtý Sigurðsson sem lögmann sinn síðastliðið haust og til að rita undir bréf til forsætisráðherra, en Valtýr bar ábyrgð á rannsókn málsins í Kef lavík á sínum tíma. Í bréfinu kom Valtýr meðal annars á fram- færi mótmælum gegn því að hlutur Erlu Bolladóttur yrði réttur með bótum. – aá Valtýr og Haukur beri vitni í máli Erlu Bolladóttur gegn ríkinu Erla Bolladóttir er sú eina sem ekki hefur fengið endurupptöku í Geir- finnsmálinu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Mikil áhrif Hvorki né Lítil áhrif Flokkur fólksins 60,2% 18,0% 21,8% Framsóknarflokkurinn 51,8% 20,1% 28,1% Miðflokkurinn 42,8% 15,1% 42,1% Píratar 30,0% 19,2% 50,8% Samfylkingin 42,1% 17,2% 40,7% Sjálfstæðisflokkurinn 45,6% 20,2% 34,2% Viðreisn 44,4% 17,0% 38,6% Vinstri græn 30,2% 25,2% 44,6% ✿ Eftir stuðningi við flokka COVID-19 Útbreiðsla COVID-19 veir- unnar virðist hafa töluverð áhrif á ferðaplön Íslendinga næstu mánuði. Rúm 44 prósent þeirra sem tóku afstöðu í nýrri könnun sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið segja að útbreiðslan hafi mikil áhrif á ferðalög þeirra til útlanda. Rúm þrjátíu prósent segja að útbreiðsla veirunnar hafi frekar mikil áhrif á ferðalög en tæp fjór- tán prósent mjög mikil áhrif. Tæp 38 prósent segja að veiran hafi lítil áhrif á ferðalög. Þar af telur tæpur fjórðungur að áhrifin verði frekar lítil en rúm þrettán prósent að þau verði mjög lítil. Ekki reyndist marktækur munur á svörum íbúa höfuðborgarsvæðis- ins og landsbyggðarinnar. Þá hefur útbreiðsla veirunnar meiri áhrif á ferðaplön þeirra sem hafa lægri tekjur en 400 þúsund á mánuði en þeirra sem hafa hærri tekjur. Athygli vekur að veiran er mun líklegri til að hafa áhrif á ferðaplön þeirra sem eru með þrjú eða f leiri börn á heimili en annarra hópa. Í þessum hópi segja um 59 prósent að áhrifin verði mikil en hjá öðrum er hlutfallið í kringum 43 prósent. Ef litið er til stuðnings við stjórn- málaflokka reynast áhrif veirunnar hafa mest áhrif á ferðaplön stuðn- ingsfólks Flokks fólksins. Rúm sex- tíu prósent segja áhrifin mikil en tæp 22 prósent lítil. Áhrifin eru hins vegar minnst á stuðningsfólk Pírata og Vinstri grænna. Þannig segja þrjátíu pró- sent stuðningsfólks þessara f lokka Tæpur helmingur fólks segir COVID-19 hafa áhrif á ferðalög Rúm 44 prósent segja útbreiðslu COVID-19 hafa mikil áhrif á ferðalög til útlanda samkvæmt nýrri könn- un. Fólk með þrjú eða fleiri börn á heimili telur áhrifin á ferðir meiri. Nokkur munur er á svörum eftir því hvaða stjórnmálaflokk svarendur styðja. Ekki er munur á svörum á milli landsbyggðar og þéttbýlis. Réttarstaða ferðalanga í sóttkví á erlendri grund er óviss. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR að áhrifin verði mikil. Tæpt 51 pró- sent Pírata og tæp 45 prósent Vinstri grænna telja áhrifin verða lítil. Nokkur óvissa hefur ríkt um rétt þeirra sem þurfa að dvelja í sóttkví erlendis og missa af f lugi heim eða missa af f lugi út vegna sóttkvíar hér heima. Samkvæmt Samgöngustofu ber að meta hvert tilfelli fyrir sig. Fjórir einstaklingar voru greindir með COVID-19 í gærmorgun og sex síðdegis. Er samanlagður fjöldi stað- festra tilfella því 26 þegar þetta er skrifað. Enn sem komið er er aðeins um að ræða smit fólks sem dvalist hefur erlendis. Ekkert smit hefur hefur verið rakið innanlands en verið er að kanna það að sögn Þór- ólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Alls eru um 380 manns í sóttkví á heimilum sínum. Víðir Reynisson, hjá almanna- vörnum Ríkislögreglustjóra, greindi frá því að vitneskja væri um að ein- staklingar hefðu breytt ferðaáætl- unum sínum gagngert til þess að komast hjá sóttkví. Það er, að þeir hefðu tekið flug frá Ítalíu í gegnum London. Sagði hann að reynt væri að ná í þetta fólk og minnti á að við- urlög væru við því að brjóta sóttkví. sighvatur@frettabladid.is kristinnhaukur@frettabladid.is 5 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.