Fréttablaðið - 05.03.2020, Qupperneq 12
Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár
2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2019 og ákvörðun um meðferð
hagnaðar félag sins á reikningsárinu
3. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins
4. Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hluti
5. Tillaga um lækkun hlutafjár og samsvarandi breyting á samþykktum
6. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins
7. Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins
8. Kosning endurskoðenda félagsins
9. Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og nefndarmanna
í undirnefndum stjórnar
10. Samantekt stjórnar um hlutafjáreign og samstæðutengsl
11. Önnur mál löglega fram borin
Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum:
Auk þeirrar breytingar á samþykktum sem felst í tillögu stjórnar um lækkun hlutafjár leggur stjórn til þá breytingu á ákvæði 1.3 að felld
verði út tilvísun í eldra heimilisfang félagsins að Borgartúni 25 í Reykjavík og að einungis verði tilgreint það sveitarfélag þar sem félagið
hefur heimilisfang. Þá leggur stjórn til þá breytingu á ákvæði 3.3 í samþykktunum að felldur verði út einn dagskrárliður sem taka skal
fyrir á aðalfundi, þ.e. „Samantekt stjórnar um hlutafjáreign og samstæðutengsl“, en þær upplýsingar eru veittar í ársreikningi félagsins.
Loks leggur stjórn til að ónýtt heimild stjórnar til útgáfu áskriftarréttinda samkvæmt bráðabirgðaákvæði II í samþykktum félagsins
verði, ásamt samsvarandi heimild til hlutafjárhækkunar, framlengd til eins árs.
Aðrar upplýsingar:
Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn eru á íslensku utan þess að ársreikningur er á ensku. Önnur gögn verða einnig aðgengileg
á ensku á heimasíðu félagsins.
Dagskrá, endanlegar tillögur, starfskjarastefna, ársreikningur félagsins og önnur fundargögn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins
að Katrínartúni 2, Reykjavík, hluthöfum til sýnis í 21 dag fyrir aðalfund. Umrædd gögn, ásamt upplýsingum um frambjóðendur til
stjórnar, eru einnig birt á heimasíðu félagsins, www.kvika.is/adalfundur.
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á fundinum ef hann sendir um það skriflega eða rafræna kröfu til félags-
stjórnar á heimilisfang félagsins eða á netfangið hluthafar@kvika.is. Þeir hluthafar sem óska eftir því að fá tiltekið mál tekið til
meðferðar á aðalfundinum skulu senda beiðni um slíkt eigi síðar en tíu sólarhringum fyrir boðaðan aðalfund, eða í síðasta lagi fyrir
kl. 16:30 þann 16. mars 2020. Kröfu skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til félagsstjórnar. Hluthafar geta einnig lagt fram
spurningar fyrir aðalfund með því að senda erindi á framangreint netfang eða bera þær upp á aðalfundinum sjálfum.
Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum komi fram krafa um slíkt frá einhverjum atkvæðisbærra fundar-
manna og að gengnum úrskurði fundarstjóra um slíkt fyrirkomulag. Þó verður stjórnarkjör skriflegt ef fleiri einstaklingar eru í framboði
en kjósa skal í stjórn. Þeim sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn ber að tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta
kosti fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:30 laugardaginn 21. mars 2020.
Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal geta nafns frambjóðanda, kennitölu, heimilisfangs, menntunar, upplýsinga um aðalstarf
og starfsferil, hvenær viðkomandi tók fyrst sæti í stjórn félagsins ef við á, önnur trúnaðarstörf (t.a.m. stjórnarstörf í öðrum félögum)
og hlutafjáreign í félaginu, beint eða í gegnum tengda aðila. Þá skal upplýsa um önnur tengsl við félagið og hagsmunatengsl við helstu
viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga, einir eða í samstarfi við aðra, meira en 10% hlut í félaginu.
Þeir einir eru kjörgengir til setu í stjórn félagsins sem þannig hafa gefið kost á sér. Krafa um hlutfallskosningu eða margfeldiskosnin-
gu, sbr. 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995, skal hafa borist stjórn félagsins minnst fimm dögum fyrir aðalfundinn þ.e. fyrir
kl. 16:30 laugardaginn 21. mars 2020. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar munu liggja frammi hluthöfum til sýnis á skrifstofu
félagsins sem og á heimasíðu félagsins, eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn, sbr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995.
Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, óháð fundarsókn.
Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta óskað eftir því að fá að greiða atkvæði bréflega um
mál sem eru á dagskrá fundarins. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist á skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@kvika.is
eigi síðar en fimm sólarhringum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:30 laugardaginn 21. mars 2020. Hluthöfum er heimilt að senda umboðs-
mann sinn á aðalfundinn og skal umboðsmaður í slíkum tilvikum leggja fram skriflegt og dagsett
umboð. Umboð má leggja fram á fundinum eða senda á framangreint netfang fyrir fundinn.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardag frá kl. 16:00 á fundarstað.
Stjórn Kviku banka hf.
Fundarboð
Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930, verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2020, kl. 16:30, á Hilton Reykjavík Nordica,
2. hæð, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.
Helstu lífeyrissjóðir landsins hafa
á undanförnum þremur mánuðum
selt samanlagt um sjö milljónir
hluta í Marel, langsamlega stærsta
fyrirtækinu í Kauphöllinni, fyrir
jafnvirði meira en fjögurra millj-
arða króna. Sjóðirnir hafa þannig
minnkað við sig um alls 46 milljónir
hluta í félaginu frá því í byrjun síð-
asta árs fyrir meira en 24 milljarða
króna.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
hefur selt mest allra lífeyrissjóða
landsins í Marel á síðustu þremur
mánuðum, samkvæmt samantekt
Markaðarins, eða fyrir samanlagt
um 2,5 milljarða króna. Frá árs-
byrjun 2019 hefur Gildi hins vegar
selt mest af lífeyrissjóðunum, eða
um 9,9 milljónir hluta fyrir meira
en fimm milljarða króna.
Samanlagður eignarhlutur líf-
eyrissjóða í Marel, sem ná á lista yfir
tuttugu stærstu hluthafa félagsins,
nemur tæplega 28 prósentum en
sömu sjóðir áttu rúmlega 38 pró-
senta hlut í félaginu í byrjun síðasta
árs.
Minni eignarhlutur lífeyrissjóð-
anna skýrist að hluta af hlutafjár-
Selt í Marel fyrir yfir fjóra milljarða
Hlutur lífeyrissjóða í stærsta skráða félagi landsins hefur minnkað talsvert að undanförnu. Hafa selt samtals um sjö milljónir
bréfa fyrir meira en fjóra milljarða króna á síðustu þremur mánuðum. Innlendir verðbréfasjóðir minnka einnig við sig.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, en bréf félagsins hafa lækkað um 11,5 prósent á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Samanlagður eignarhlutur erlendra fjárfesta í Marel hefur margfaldast á
aðeins tveimur árum og nemur nú um 30 prósentum. MYND/EPA
Hörður Ægisson
hordur@frettabladid.is
Kristinn Ingi Jónsson
kristinningi@frettabladid.is
aukningu Marels síðasta vor, sem
efnt var til samhliða skráningu í
Kauphöllina í Amsterdam, en við
hana þynntist hlutur sjóðanna í
félaginu. Marel jók þá hlutafé sitt
um hundrað milljónir hluta og
voru kaupendur að þeim bréfum,
fyrir samtals um 52 milljarða króna,
nær einungis erlendir fjárfestingar-
sjóðir.
Lífeyrissjóðirnir fara nú með um
215 milljónir hluta að nafnvirði í
Marel borið saman við 222 millj-
ónir hluta í byrjun desember og
261 milljón hluta í byrjun síðasta
árs. Gengi bréfa í félaginu var á
bilinu 570 til 650 krónur á hlut frá
því á haustmánuðum síðasta árs
þar til fyrr í vikunni þegar það féll í
526 krónur á hlut en samkvæmt því
má varlega áætla að sjóðirnir hafi á
undanförnum þremur mánuðum
selt bréf sín í félaginu fyrir samtals
um 4 til 4,5 milljarða króna. Þó er
nokkuð misjafnt eftir sjóðum hve-
nær þeir seldu bréf sín.
Miðað við gengisþróun hluta-
bréfa Marels á undanförnum
fjórtán mánuðum má jafnframt
gróf lega gera ráð fyrir að lífeyris-
sjóðirnir hafi á tímabilinu minnkað
við sig í félaginu fyrir 24 til 28 millj-
arða króna.
Samanlagður eignarhlutur líf-
eyrissjóðanna í Marel er metinn á
liðlega 117 milljarða króna, miðað
við gengi bréfa félagsins við lokun
markaða í gær, en til samanburðar
var hluturinn metinn á saman-
lagt 136 milljarða króna í byrjun
desember. Hlutabréfaverðið hefur
lækkað um 11,7 prósent á tímabil-
inu og þar af um 10,3 prósent frá því
í byrjun síðustu viku.
Þess má geta að Lífeyrissjóður
verzlunarmanna og Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins eiga auk þess
umtalsverðan óbeinan eignarhlut í
Marel í gegnum Eyri Invest, stærsta
hluthafa félagsins.
Innlendir verðbréfasjóðir hafa
einnig selt sig niður í Marel á síð-
ustu mánuðum auk þess sem þeir
hafa fært hluta af bréfum sínum í
félaginu til vörslu í kauphöllinni í
Amsterdam.
Sem dæmi eiga tveir hlutabréfa-
sjóðir í stýringu Stefnis, ÍS-5 og
ÍS-15, samanlagt ríf lega sjö millj-
ónir hluta í Marel í kauphöllinni
hér á landi samanborið við tæplega
27 milljónir hluta í lok árs 2018. Þá
fara tveir hlutabréfasjóðir á vegum
Landsbréfa, Úrvalsbréf og Öndveg-
isbréf, nú með samtals 3,2 milljónir
hluta í Marel samanborið við 5,5
milljónir hluta í árslok 2018.
Jafnframt hafa tveir fjárfestingar-
sjóðir í stýringu American Funds,
dótturfélags bandaríska eignastýr-
ingarfyrirtækisins Capital Group,
minnkað við sig í Marel á síðustu
þremur mánuðum úr 35 milljónum
hluta í 29,7 milljónir hluta fyrir jafn-
virði ríflega þriggja milljarða króna.
1. jan. ‘19 1. des.’19 1. mar.’20
LIVE 68,0 63,5 59,4
LSR 45,3 40,0 39,4
Gildi 46,3 38,4 36,4
Birta 27,6 22,0 21,6
Stapi 15,0 10,4 10,6
Festa 13,4 10,5 10,7
Frjálsi 13,1 11,9 11,9
Almenni 10,5 8,6 8,6
Lífsverk 8,0 6,4 4,9
Brú 7,5 5,2 6,4
SL lífeyrissjóður 6,3 5,1 5,1
Samtals 261 222 215
✿ Hlutur lífeyrissjóða
í Marel skreppur saman
Nafnv. hlutabréfa í millj.
28%
nemur samanlagður eignar-
hlutur lífeyrissjóða í Marel
borið saman við rúmlega 38
prósent í byrjun síðasta árs.
MARKAÐURINN
5 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð