Fréttablaðið - 05.03.2020, Side 13

Fréttablaðið - 05.03.2020, Side 13
Aðrar upplýsingar Aðalfundur Landsbankans hf. verður haldinn föstudaginn 27. mars 2020 kl. 14:00 í Silfurbergi í Hörpu í Reykjavík. Landsbankinn • landsbankinn.is • 410 4000 Aðalfundur Landsbankans 2020 Hluthafar eiga rétt á því að fá mál sett á dagskrá aðalfundar og leggja fram ályktunartillögur. Tillögur og óskir um að koma máli á dagskrá aðalfundar þurfa að vera skriflegar og berast bankanum fyrir kl. 16:00, miðvikudaginn 11. mars 2020. Endanleg dagskrá fundarins og gögn er lögð verða fyrir aðalfundinn verða gerð aðgengileg fimmtudaginn 12. mars 2020, á vefsíðu bankans: https://bankinn. landsbankinn.is/fjarfestar/adalfundir/. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 skal tilkynna skriflega um framboð til bankaráðs skemmst fimm dögum fyrir aðalfundinn. Tilkynna skal skriflega um framboð til bankaráðs fyrir kl. 14:00, sunnudaginn 22. mars 2020 til skrifstofu bankastjóra, Austurstræti 11, Reykjavík. Upplýsingar um frambjóðendur til bankaráðs verða lagðar fram og birtar á vef bankans tveimur dögum fyrir aðalfundinn. Eitt atkvæði fylgir hverri einni krónu í hlutafé í bankanum, að frádregnum eigin hlutum, sem eru án atkvæðisréttar. Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 13:30 á fundardegi. Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang. Reykjavík, 5. mars 2020 Bankaráð Landsbankans hf. 1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans síðastliðið starfsár. 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á næstliðnu reikningsári. 4. Tillaga bankaráðs um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar. 5. Tillögur til breytinga á samþykktum. 6. Kosning bankaráðs. 7. Kosning endurskoðanda. 8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil. 9. Heimild til kaupa á eigin hlutum. 10. Önnur mál. Drög að dagskrá Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Sam- keppniseftirlitsins, vísar á bug gagnrýni um að eftirlitið sé steinn í götu áforma um samruna innan ferðaþjónustunnar. Ekki sé heldur rétt að Samkeppniseftirlitið hafi sett samrunum í atvinnugreininni íþyngjandi skilyrði sem séu til þess fallin að fæla ferðaþjónustufyrir- tæki frá samrunum. Þvert á móti séu þau skilyrði sem sett hafi verið til hagsbóta fyrir þá sem starfa í greininni. „Samkeppnishæft verð og þjón- usta eru forsenda þess að ferða- þjónusta hér á landi verði alþjóð- lega samkeppnishæf til framtíðar. Samkeppniseftirlitið væri ekki að sinna hlutverki sínu af það slak- aði á eftirliti með það að markmiði að skapa svigrúm fyrir minni sam- keppni og hækkun verðs í ferða- þjónustu,“ segir Páll Gunnar. Í umfjöllun Markaðarins um stöðu ferðaþjónustunnar í gær gagnrýndi Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri f járfestinga- félagsins Eldeyjar, Samkeppnis- eftirlitið fyrir að geta verið þrándur í götu samrunaáforma í ferðaþjón- ustunni. Hún benti meðal annars á að eftirlitið gæti verið „býsna strangt í skilgreiningum sínum á markað- inum og jafnvel skilgreint sam- keppni innan landsfjórðunga“. Þá hefði samrunum í greininni fylgt íþyngjandi skilyrði, auk þess sem tíminn sem eftirlitið tæki í skoðun sína næði engri átt. „Fyrirtækjunum blæðir á meðan þau bíða vegna þess að samruna- ferli stöðvar margt í rekstrinum,“ sagði Hrönn. Páll Gunnar segir ekki hægt að halda því fram með góðu móti að fyrirtækjum hafi „blætt út“ vegna langs málsmeðferðartíma. Af þeim átján samrunamálum sem eftirlitið hafi tekið til skoðunar frá byrjun árs 2017 þar sem ferðaþjónustu- fyrirtæki hafi verið á meðal sam- runaaðila hafi ellefu málum lokið innan 25 virkra daga. Meðaltal málsmeðferðartíma hafi verið 33 virkir dagar og miðgildi 22 virkir dagar. Hvað varðar þau skilyrði sem Samkeppniseftirlitið hafi sett sam- runum í ferðaþjónustu bendir Páll Gunnar á að í engum af umræddum átján málum hafi eftirlitið gripið til íhlutunar vegna aðstæðna á ferða- þjónustumarkaði. Hins vegar hafi í f imm þessara mála verið sett skilyrði sem hafi lotið að eigna- tengslum við fjármálastofnanir. „Í einu þessara tilvika var yfir- töku fjármálafyrirtækis sett skil- yrði til að f lýta sölu og tryggja jafnræði og sjálfstæði ferðaþjón- ustufyrirtækja. Í hinum fjórum voru sett skilyrði til þess að sporna við skaðlegum hagsmunatengslum og öðrum hindrunum sem stafað geta af eignarhaldi fjárfestingar- sjóða sem eru í stýringu dóttur- félaga viðskiptabanka,“ segir Páll Gunnar. Hann nefnir jafnframt að við skilgreiningu markaða fylgi eftir- litið fordæmum í EES-samkeppnis- rétti. Við greininguna sé því beitt sömu aðferðum og við hliðstæð mál annars staðar á Evrópska efna- hagssvæðinu. „Sú aðferðafræði leiðir oft til þess að horft er á allt landið sem markað en í nokkrum tilvikum hafa Samkeppniseftirlitið og sam- runaaðilar verið sammála því að horfa þrengra á landfræðilega afmörkun, svo sem þegar um sam- runa hótela er að ræða. Sjaldgæft er að ágreiningur hafi verið um skilgreiningu markaða í þessum málum enda liggja fyrir þekkt viðmið í samkeppnisrétti. Ekki er því ljóst hvað átt er við með þeirri fullyrðingu að eftirlitið hafi verið strangt í skilgreiningum sínum. Ekki er heldur ljóst hvaða neikvæðu af leiðingar það hefur haft fyrir ferðaþjónustuna,“ segir Páll Gunnar. – kij, þfh Eftirlitið vísar gagnrýni á bug Samkeppniseftir- litið væri ekki að sinna hlutverki sínu ef það slakaði á eftirliti með það að markmiði að skapa svigrúm fyrir minni samkeppni og hækkun verðs í ferðaþjón- ustu. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppnis- eftirlitsins Hve mikið vöxtur- inn mun minnka og hve lengi áhrifanna mun gæta er enn erfitt að segja til um. Kristalina Georgieva, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lækk- aði í gær hagvaxtarspá sína fyrir árið vegna áhrifa af útbreiðslu kórónaveirunnar og varaði við því að vöxtur heimshagkerfisins yrði umtalsvert minni í ár en í fyrra. „Hve mikið vöxturinn mun minnka og hve lengi áhrifanna mun gæta er enn erfitt að segja til um,“ sagði Kristalina Georgieva, framkvæmdastjóri Alþjóðagjald- eyrissjóðsins, á blaðamannafundi í gær. Það réðist meðal annars af eðli faraldursins og „tímasetningu og áhrifamætti“ þeirra aðgerða sem gripið yrði til í því skyni að milda efnahagsáhrif veirunnar. Sérfræðingar sjóðsins spáðu því í janúar síðastliðnum að hagvöxtur yrði 3,3 prósent á heimsvísu í ár en til samanburðar nam vöxturinn 2,9 prósentum í fyrra. Georgieva sagði janúarspána ekki eiga lengur við, enda myndu þau skaðlegu áhrif sem kórónaveiran hefði á framboð og eftirspurn í heimshagkerfinu draga umtalsvert úr hagvextinum. A lþjóðag jaldey r issjóður inn, ásamt Alþjóðabankanum, hefur þegar ákveðið að opna lánalínur til þeirra ríkja sem gætu átt erfitt með að bregðast við faraldrinum vegna lausafjárþurrðar. „Við eigum verkfærin til þess að hjálpa ríkjum sem þess þurfa,“ sagði Georgieva á fundinum. Efnahags- og framfarastofnun Evrópu varaði við því á mánudag að útbreiðsla veirunnar ætti eftir að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir heimshagkerfið. Hún væri raunar mesta ógn við fjármálakerfi heims- ins frá því í fjármálakreppunni árið 2008. Sérfræðingar stofnunarinnar hafa lækkað hagvaxtarspá sína fyrir árið úr þremur prósentum í 1,5 prósent. – kij AGS býst við mun minni hagvexti Af þeim átján samruna- málum í ferðaþjónustunni sem Samkeppniseftirlitið hefur skoðað frá ársbyrjun 2017 hefur ellefu málum lokið innan 25 virkra daga. F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11F I M M T U D A G U R 5 . M A R S 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.