Fréttablaðið - 05.03.2020, Page 22
Tíska og útlit er mér hugleikið flesta daga. Ég hef gaman af því að setja saman eitthvað
fínt til að fara í og upplifa sjálfs-
öryggi í lúkkinu en ég er sennilega
ekkert öðruvísi en aðrir þegar
kemur að því að eiga daga þar sem
ég nenni ekkert að leggja vinnu
í útlitið,“ segir Elva Bjartey sem
er tvítug og starfar í World Class
Laugum.
Hún lýsir eigin fatastíl sem stíl-
hreinum og einstökum á sinn hátt.
„Ég vil að stíllinn minn gefi til
kynna að ég sé ófeimin, afslöppuð
og sjálfsörugg. Hann á stundum
til að vera hávær og áberandi en
mér þykja þægindi mikilvæg þegar
kemur að tísku og klæðaburði,“
segir Elva Bjartey.
Hún fer í lausar leðurbuxur,
skyrtu með töff munstri, „chunky“
hæla og síðan jakka þegar hún vill
stela senunni og slá í gegn.
„Annars eru náttbuxurnar
mínar í mestu dálæti í fataskápn-
um, svo undur þægilegar,“ segir
Elva Bjartey kímin.
Hennar besta tískuráð er að nota
belti til að móta mjaðmirnar betur.
„Ég man hins vegar ekki hver
gaf mér þetta góða ráð. Auðvitað
fær maður hugmyndir frá fræga
fólkinu og vinkonum sínum en í
raun á ég mér enga sérstaka tísku-
fyrirmynd. Ég klæðist einfaldlega
því sem mér þykir f lott,“ segir Elva
Bjartey.
Það eru helst f lottir eyrnalokkar
sem hún stenst ekki þegar hún
kíkir í búðir.
„Nei, og ef ég sé fyrir mér flotta
fatasamsetningu sem ég á heima
og gæti passað við eyrnalokkana
fer ég svo sannarlega ekki tómhent
út úr búðinni,“ segir Elva og hlær.
„Annars væri ég mest til í að fara
í búðaráp með bresku ofurfyrir-
sætunni Cöru Delevingne en þó
aðallega til að kynnast henni því
hún virkar mjög skemmtileg.“
Með öldu á rifbeinunum
Eftirlætis tískuverslanir Elvu eru
Vila, Vero Moda og Monki.
„Það nýjasta sem ég keypti er
ljósbrún, kósí ullarpeysa með V-
hálsmáli en það dýrasta sem ég hef
nokkru sinni keypt mér er úlpan
mín. Ég er lítil merkjavörukona að
eðlisfari og ef ég ætti að velja einn
fatastíl liðinnar aldar til að klæð-
ast það sem eftir væri ævinnar yrði
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Elva Bjartey
með kærastan-
um sínum, leik-
stjóranum og
tónlistarmann-
inum Tómasi
Welding. Þau
vinna saman að
tónlist og gáfu
á dögunum út
lagið Lifeline
sem nú gerir
það gott.Hér er
lúkk Elvu chic
og meira fínt;
víðar leður-
buxur með
belti, hælaskór
úr leðri, svart-
og gráköflóttur
bolur, ljós-
brúnn síður
jakki og trefill í
stíl. FRÉTTABLAÐ-
IÐ/SIGTRYGGUR ARI
Frjálsleg í eldrauðum, víðum buxum við svartan, þykkan rúllukragabol. Leðurstígvél og svartur, síður jakki yfir. Með lítið gullhálsmen og eyrnalokka í stíl.
Það ætti án efa að
banna “thigh-high
uggs” í tískuheiminum.
Það eru lærahá, víð
loðstígvél sem krumpast
upp og niður leggina.
Hrein hörmung!
Framhald af forsíðu ➛
áratugurinn eftir 1990 örugglega
fyrir valinu, þegar gallabuxur og
skyrtur voru það vinsælasta að
vera í,“ segir Elva sem skiptir oft
um ilmvatn en notar nú Fantasy
úr ilmvatnsgerð söngkonunnar
Britney Spears.
„Af öllum þeim fötum sem ég á
í fórum mínum þykir mér vænst
um risastóra hettupeysu sem ég
saumaði sjálf, en mér líður best í
síðum sumarkjól á heitum degi,“
segir Elva sem skartar líka tveimur
fallegum húðflúrum.
„Ég er með litla öldu á rif beinun-
um og bókstafinn B fyrir Bjartey á
upphandlegg fyrir ofan olnboga,“
upplýsir Elva.
Hún er ekki í vafa um hvað ætti
að banna í tískuheiminum.
„Það er án efa „thigh-high uggs“
eða lærahá, víð loðstígvél úr
rúskinni sem krumpast upp og
niður leggina. Hrein hörmung!“
segir hún hlæjandi en sjálf er hún
hrifnust af köflóttu og bletta-
tígursdoppum þegar kemur að
uppáhaldsmunstri.
„En mér finnst að allar konur
ættu að taka einn og einn dag þar
sem þær klæðast nákvæmlega því
sem þeim þykir þægilegast, eftir
sínum eigin skoðunum og þá skín
sjálfsöryggið í gegn.“
Nýtt lag þeirra Tómasar Weld-
ing, Lifeline, kom út í lok febrúar.
„Lagið er um ástarsamband
sem er við það að klofna. Textinn
er djúpur en lagið er up-beat og
skemmtilegt og það er klárlega
hægt að dilla sér við það. Lifeline
hefur fengið frábærar viðtökur og
það er rosalega gaman að fólk sé að
taka vel í það. Þar sem við Tómas
erum par er líka æðislegt að geta
upplifað það allt með honum,“
segir Elva sem nýtur þess að lifa og
læra sem nýliði í tónlistarsenunni.
„Tónlist er heillandi fag og ég
hlakka til framhaldsins. Á næst-
unni koma út f leiri lög, bæði sóló
og með Tómasi mínum Welding.“
Elva Bjartey í
neongulri peysu
sem hún segir
að sé stjarnan
í þessari sam-
setningu. Elva
parar peysuna
við svartar
cargo-buxur,
belti og hvíta
stigaskó.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGUR ARI
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS
ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT OG SPENNANDI
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . M A R S 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R