Hugur og hönd - 01.06.1972, Síða 15

Hugur og hönd - 01.06.1972, Síða 15
ALd.rLfn.Lr söbLar Menningarsaga hestsins eða þáttur hestsins í íslenzkri menningarsögu er efni, sem seint yrði tæmt, ef öllu væri haldið til skila. Reyndar skrifaði dr. Broddi bók um þetta fyrir mörgum árum og færðist mikið í fang. Sú bók vakti aldrei þá athygli, sem hún verðskuldaði, því að hún er fnll af skemmtilegum og nýstárlegum sjónarnrið- um, og hún er skýr vitnis'burður um fjölbreytileik efnis- ins. Hún sýnir það sjálf og sannar, að efniviðurinn nægir í margar bækur fremur en eina. I einni slíkri bók mætti fjalla um hestinn og listiðnaðinn, eða þá hvöt og tæki- færi til listsköpunar, sem fargervi eða búnaður hestsins veitti. Listin var á fyrri tíð nær eingöngu þjónn daglegra hluta, en ekki sjálfs sín herra. I skáldskap Islendinga nefnist hesturinn beizlahundur og söðuldýr og reiðarljón og gjarðagammur, og það eru einmitt þessir einkennishlutir hestsins, sem eru vettvangur ýmiss konar tilburða til skreytilistar, beizli og söðull með reiða og gjörð. Góðum hesti hæfði fagur búnaður, því að hann var ekki eingöngu tæki til að komast á milli staða, heldur einnig þjóðfélagslegt stöðutákn á mannamóti, mælikvarði (stundum falskur) sem menn vildu láta meta sig á. Þar gat verið allmikil sundurgerð í, en nú geta menn verið þakklátir fyrir hana. Það sem kallað er hé- gómaskapur hefur oft orðið hvöt til dýrmætrar list- sköpunar. Hér skal vakin athygli á merkilegu dæmi um reið- tygjaskraut, einu af mörgum. Kvensöðlarnir voru öðru fremur tilvaldir til skrautlegs búnaðar, einkum þeir sem HUGUR OG HOND 15

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.