Hugur og hönd - 01.06.1972, Page 31

Hugur og hönd - 01.06.1972, Page 31
halds þessari gömlu handiðn og jafnframt sem hvatning til réttra aðila um endurvakningu hennar í skólum landsins. Aðsókn að útskurðarnámskeiðunum sýndi mik- inn almennan áhuga. Horn- og spónvinna er, sem kunnugt er, gömul, þjóðleg iðja, sem sannarlega er þess virði að varðveitast. Einn er þó hængur á, sá, að kýr eru nú flestar kollóttar og því lítið um innlent hráefni. Leðurvinnu er einnig ástæða til að gefa meiri gaum en gert er. Þar ættum við að eiga gott, innlent hráefni, sem nota mætti á fjölbreyttan hátt. Makramé-hnýtingar eru ævafornt handbragð, sem nýtur nú mikilla vinsælda víða um lönd. Aðsókn að fyrstu námskeiðum H.I. í þessari grein bendir til sömu við- bragða hér á landi. Á útsaumsnámskeiðunum var nemendum gefinn kost- ur á frjálsri útfærslu eigin munstra. Unnir voru marg- ir nýstárlegir munir. Á tóvinnunámskeiði var eins og áður kennt að spinna á rokk og önnur vinnubrögð, sem tilheyra rokkspuna, s. s. að taka ofan af, hæra, kemba, lyppa, tvinna, þrinna o. s. frv. Spunnið var bæði úr kemburn og lopa, þeli og togi. Einnig er venja að nemendur læri að gera íslenzka skó á tóvinnunámskeiðum. Vefnaðarnámskeiðin voru með líku sniði og áður. Lögð er áherzla á að kenna uppsetninguna og nokkrar tegundir almenns vefnaðar. Á einu námskeiði (um 100 kennst.) vefur hver nemandi um 4—8 muni af mismunandi stærð og gerð, skrautmuni og nytjamuni. Vefnaðarnámskeiðin hafa ævinlega verið síðdegis og jafnan verið mjög vel sótt. I vetur er fyrirhugað að halda námskeið i sömu grein- um og áður og e. t. v. fleiri. HUGUR OG HÖND 31

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.