Fréttablaðið - 11.03.2020, Blaðsíða 40
Aðalskipulagsmál
Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að
eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
1. Breyting á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027. Eyvindartunga.
Bláskógabyggð.
Kynnt er skipulagstillaga sem nær til svæðis ofan Laugarvatnsvegar þar
sem 40 hektarar úr frístundasvæðinu F22 er breytt í svæði fyrir skógrækt.
Frístundasvæðið F23 verður stækkað um 16 ha og sett inn nýtt skógræktar-
svæði, um 15 ha að stærð.
Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst eftir-
farandi aðalskipulagsbreyting:
2. Breyting á aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029. Ósbakki, L165463.
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti þann 4.2.2020, tillögu að breytingu
á gildandi aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029, sem tekur til 2 ha lands
Ósbakka, L165463, sem í gildandi aðalskipulagi Flóahrepps er skilgreint sem
frístundasvæði (F36) og er áætlað að breyta landnotkun í landbúnaðarland.
Áætlað er að byggja upp nýtt íbúðarhús og hesthús/skemmu. Samhliða
auglýsingu á aðalskipulagsbreytingu er kynnt tillaga vegna deiliskipulags á
svæðinu.
Deiliskipulagsmál
Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér
kynnt skipulagslýsing fyrir eftirfarandi deiliskipulagsverkefni:
3. Lýsing deiliskipulags. Stórhólmi í Flóahreppi.
Lýsingin tekur til til deiliskipulags væntanlegs lögbýlis, þar sem gert er ráð
fyrir byggingu á einu íbúðarhúsi, allt að 300 m2, á sér byggingarreit og á
öðrum byggingarreit verði reist hesthús, reiðskemma og skemma allt að
2500 m2. Aðkoma er um Holtsveg (314).
Samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér
kynnt skipulagstillaga fyrir eftirfarandi deiliskipulagsverkefni:
4. Ósbakki L165463; Íbúðarhús, reiðskemma, hesthús, vélarskemma;
Deiliskipulag - 1905038
Kynnt er deiliskipulagstillaga sem tekur til um 2 ha spildu og mun gera ráð
fyrir að heimilt verði að byggja allt að 200m2 íbúðarhús og allt að 350m2
hesthús/skemmu. Á landspildunni er 70m2 frístundahús nú þegar.
Aðkoma er af Suðurlandsvegi austan Selfoss, um Villingaholtsveg (nr.305)
sem er tengivegur.
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur
að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum:
5. Fosslækur Hrunamannaafrétti. Deiliskipulag fjallaskálasvæðis.
Hrunamannahreppi.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5.3.2020,
að auglýsa deiliskipulagstillögu vegna Fosslækjar á Hrunamannaafrétti skv.
1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Deiliskipulagstillagan tekur til af-
mörkunar á um 14 ha lóð. Innan hennar eru núverandi mannvirki, hestagerði
og vatnsból og vatnsleiðsla frá því að húsunum. Heimilt er að stækka núver-
andi gistiaðstöðu um allt að 100 m2 og byggja nýtt hús allt að 100m2. Gisting
verður fyrir allt að 50 gesti. Í Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 er
svæðið skilgreint sem fjallasel á afþreyingar- og ferðamannasvæði.
6. Mikluöldubotnar Hrunamannaafrétti. Deiliskipulag fjallaskálasvæðis.
Hrunamannahreppi.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5.3.2020,
að auglýsa deiliskipulagstillögu vegna Mikluöldubotna á Hrunamannaafrétti
skv. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Deiliskipulagstillagan tekur til
afmörkunar á um 5 ha lóð. Innan hennar eru núverandi mannvirki og gerði
fyrir fé/hross. Heimilt er að stækka núverandi gistiaðstöðu um allt að 100
m2 og byggja nýtt hús allt að 100m2. Gisting verður fyrir allt að 30 gesti.
Einnig er gert ráð fyrir salerni, fráveitu og vatnsbóli. Í Aðalskipulagi Hruna-
mannahrepps 2016-2032 er svæðið skilgreint sem fjallasel á afþreyingar- og
ferðamannasvæði.
7. Frægðarver Hrunamannaafrétti. Deiliskipulag fjallaskálasvæðis.
Hrunamannahreppi.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5.3.2020, að
auglýsa deiliskipulagstillögu vegna Frægðarvers á Hrunamannaafrétti skv.
1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Deiliskipulagið tekur til afmörkunar
á um 2 ha lóð umhverfis núverandi mannvirki. Á staðnum er torfkofi og er
gert ráð fyrir viðhaldi og endurbótum á honum í samráði við Minjastofnun Ís-
lands. Einungis verður um áningarstað að ræða en ekki gistingu. Ekki er gert
ráð fyrir akstri að staðnum. Í Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 er
svæðið skilgreint sem fjallasel á afþreyingar- og ferðamannasvæði.
8. Rofshólar Hrunamannaafrétti. Deiliskipulag fjallaskálasvæðis.
Hrunamannahreppi.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5.3.2020,
að auglýsa deiliskipulagstillögu vegna Rofshóla á Hrunamannaafrétti skv.
1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Deiliskipulagið tekur til afmörkunar
á um 1 ha lóð umhverfis núverandi mannvirki. Á staðnum er torfkofi og er
gert ráð fyrir viðhaldi og endurbótum á honum í samráði við Minjastofnun
Íslands. Einungis verður um áningarstað að ræða en ekki gistingu. Í Aðal-
skipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 er svæðið skilgreint sem fjallasel á
afþreyingar- og ferðamannasvæði.
9. Heiðará Hrunamannaafrétti. Deiliskipulag fjallaskálasvæðis.
Hrunamannahreppi.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5.3.2020,
að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir Heiðará á Hrunamannaafrétti skv.
1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Deiliskipulagið tekur til afmörkunar
á um 7 ha lóð. Innan hennar eru núverandi mannvirki. Staðurinn er hugsaður
sem áningarstaður á göngu- og reiðleið með Stóru-Laxá. Ekki er gisting á
staðnum. Heimilar eru endurbætur/viðhald á núverandi mannvirki. Þá er
gert ráð fyrir salerni, fráveitu og vatnsbóli. Í Aðalskipulagi Hrunamanna-
hrepps 2016-2032 er svæðið skilgreint sem fjallasel á
afþreyingar- og ferðamannasvæði.
10. Helgaskáli Hrunamannaafrétti. Deiliskipulag fjallaskálasvæðis.
Hrunamannahreppi.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5.3.2020,
að auglýsa deiliskipulagstillögu vegna Helgaskála á Hrunamannaafrétti skv.
1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Deiliskipulagið tekur til afmörkunar
á um 15ha lóð. Innan hennar eru núverandi mannvirki, hestagerði, vatnsból
og fráveita. Heimilt er að stækka núverandi gistiaðstöðu um allt að 100 m2
og byggja nýtt hús allt að 100m2. Heimilt er að stækka hesthús í allt að 100
m2. Gisting verður fyrir allt að 50 gesti. Í Aðalskipulagi Hrunamannahrepps
2016-2032 er svæðið skilgreint sem fjallasel á afþreyingar- og ferðamanna-
svæði.
11. Efri-Kisubotnar Hrunamannaafrétti. Deiliskipulag fjallaskálasvæðis.
Hrunamannhreppi.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5.3.2020, að
auglýsa deiliskipulagstillögu vegna Efri-Kisubotna á Hrunamannaafrétti skv.
1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Deiliskipulagið tekur til afmörkunar
á um rúmlega 4 ha lóð. Innan hennar er núverandi hús. Heimilt er að byggja
allt að 150 m2 hús og vera með gistingu fyrir allt að 30 gesti. Gert er ráð fyrir
salerni í húsinu. Gerð verður grein fyrir fráveitu og vatnsbóli. Í Aðalskipulagi
Hrunamannahrepps 2016-2032 er svæðið skilgreint sem fjallasel á afþrey-
ingar- og ferðamannasvæði.
12. Grákollur Hrunamannaafrétti. Deiliskipulag fjallaskálasvæðis.
Hrunamannahreppi.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5.3.2020, að
auglýsa deiliskipulagstillögu vegna
Grákolls á Hrunamannaafrétti skv. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Deiliskipulagið tekur til afmörkunar á um
8 ha lóð. Heimilt er að byggja allt að 150 m2 hús og vera með gistingu fyrir
allt að 30 gesti. Gerð verður grein fyrir
fráveitu, vatnsbóli og aðkomu. Í Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-
2032 er svæðið skilgreint sem fjallasel á
afþreyingar- og ferðamannasvæði.
13. Svínárnes Hrunamannaafrétti. Deiliskipulag fjallaskálasvæðis.
Hrunamannahreppi.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5.3.2020,
að auglýsa deiliskipulagstillögu vegna Svínárnes á Hrunamannaafrétti skv.
1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Deiliskipulagið tekur til afmörkunar
á um 9 ha lóð. Innan hennar eru núverandi mannvirki. Heimilt er að stækka/
fjölga húsum fyrir gistingu, veitingasölu og vera með tjaldsvæði. Hámarks
byggingamagn á svæðinu verður allt að 950 m2. Heimilt er að vera með
gistingu fyrir 85 gesti. Gerð verður grein fyrir fráveitu, vatnsbóli og aðkomu.
Í Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 er svæðið skilgreint sem
skálasvæði á afþreyingar- og ferðamannasvæði.
14. Leppistungur Hrunamannaafrétti. Deiliskipulag fjallaskálasvæðis.
Hrunamannahreppi.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5.3.2020,
að auglýsa deiliskipulagstillögu vegna Leppistungna á Hrunamannaafrétti
skv. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Deiliskipulagið tekur til um
5 ha svæðis. Á staðnum er 70 m2 hús sem byggt var árið 1987. Einnig er
þar gamalt leitarmannahús. Þessi hús eru notuð sem leitar-mannahús og
fyrir ferðafólk á sumrin. Einnig er á staðnum 36 m2 hesthús og hestagerði
við það. Gisting er fyrir um 24 gesti. Aðkoma er af vegslóða sem liggur um
Hrunamannaafrétt. Mannvirki eru í eigu Hrunamannahrepps. Starfsemi er
aðallega yfir sumartímann. Innan lóðar/afmörkunar svæðis eru núverandi
mannvirki, hestagerði og vatnsból. Heimilt verður að stækka núverandi
gistiaðstöðu um allt að 100 m2 og byggja nýtt hús allt að 100m2. Heimilt er
að stækka hesthús í allt að 100 m2. Gisting verður fyrir allt að 50 gesti. Í
Aðalskipulagi Hrunamannahrepps
2016-2032 er svæðið skilgreint sem fjallasel á afþreyingar- og ferðamanna-
svæði.
15. Laugar. Hrunamannahreppi. Deiliskipulag.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5.3.2020, að
auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir um 1,2ha svæði undir 3 gestahús á jörðinni
Laugar L166798, í Hrunamannahreppi. Gert er ráð fyrir að stærð hvers húss
geti verið allt að 80m2 með mænishæð allt að 6,0m. Tillagan er í samræmi
við ákvæði í aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 um landbúnaðar-
svæði. Aðkoma að Laugum er um Laugaveg (nr. 3465)
16. Birtingaholt 1Bog 1D, Hrunamannahreppi. Deiliskipulag.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5.3.2020,
að auglýsa deiliskipulagstillögu vegna Birtingaholts 1B L176025 og 1D, í
Hrunamannahreppi. Áformað er að á bæjartorfunni verði stofnuð ný lóð
undir íbúðarhús auk bílskúrs allt að 250m2 og aukahúss allt að 100m2.
Aðkoma er af Birtingaholtvegi (nr.3393).
17. Ás 3 III-2 land, Ásahreppi. Deiliskipulag.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 18.12.2019, að
auglýsa deiliskipulagstillögu sem tekur til 6 frístundahúsalóða ásamt
afmörkun á byggingarreit fyrir íbúðarhús í landi Áss 3 land III-2 L204647
í Ásahreppi. Skipulagssvæðið nær til landsins alls, sem er um 18,6 ha að
stærð. Aðkoma að landsspildunni er af vegi nr. 275, Ásvegi.
18. Mýrarkot, frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Deiliskipulagsbreyting.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti þann 20.11.2019,
að auglýsa breytingu á gildandi deiliskipulagi frístundabyggðar í Mýrarkoti.
Breytingin tekur til skilmála í greinargerð, þar sem nýtingarhlutfall verður
0.03. Stærð sumarhúss getur orðið allt að 150m2 á lóðum undir 5000m2.
Mænisstefna verður N-S og þakhalli 14-45 gráður. Þá er heimilt að byggja
aukahús, gestahús eða gróðurhúss allt að 40m2 og smáhús/geymslu allt að
15m2.
19. Snæfoksstaðir frístundabyggð. Deiliskipulagsbreyting. Grímsnes-
og Grafningshreppi.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti þann 15.1.2020, að
auglýsa breytingu á gildandi deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Snæ-
foksstaða sem nær yfir svæði frístundabyggðar, merkt F20c í greinargerð
aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 m.s.br. Svæðið
sem breytingin nær yfir er um 70 ha að stærð og er merkt sem svæði D í
deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Snæfoksstaða. Í deiliskipulagsbreyt-
ingunni er gert ráð fyrir að fjölga frístundalóðum úr 47 lóðum í 53 lóðir. Þar af
eru 49 frístundalóðir byggðar og 4 óbyggðar. Enn fremur er innan svæðisins
gert ráð fyrir einni landbúnaðarlóð (Nautavakavegi nr. 2) sem tengist starf-
semi skógræktarinnar á
Snæfoksstöðum. Lóðirnar eru frá 6.980 m2 til 17.678 m2 að stærð.
20. Spóastaðir í Bláskógabyggð. Deiliskipulagsbreyting.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti þann 5.3.2020 að auglýsa
breytingu á gildandi deiliskipulagi frístundabyggðar við Dynjandisveg í
landi Spóastaða í Bláskógabyggð. Breytingin nær til um 35ha svæðis og 40
lóða og tekur til breytinga á nýtingarhlutfalli og byggingarmagni á lóðum.
Nýtingarhlutfall lóða frá nr. 1-23 verður allt að 0.045 og á lóðum nr. 24-46,allt
að 0.03. Heimilt verður að byggja allt að 40 m2 aukahús/gestahús og allt að
15m2 smáhýsi á lóðum. Við gildistöku þessarar deiliskipulagsbreytingar
fellur úr gildi núgildandi deiliskipulag frístundabyggðar við Dynjandisveg.
------------------------------------------------------------------------------
Niðurstaða sveitarstjórnar auglýst í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulags-
laga nr. 123/2010.
Hnaus 2 L192333, í Flóahreppi. Breytt landnotkun. Óveruleg breyting á
gildandi aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029.
Rökstuðningur sveitarstjórnar Flóahrepps dags. 3.3.2020, vegna athuga-
semda Skipulagsstofnunar í bréfi dags. 9.12.2019:
Lögð er fram umsókn Gísla B. Björnssonar, dags. 7. júní 2019, vegna óveru-
legra breytinga á gildandi aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029, í landi
Hnaus 2, L192333. Óskað er eftir að breyta landnotkun á 1,5 ha svæði úr
landbúnaðar- og skógræktarsvæði yfir í íbúðasvæði. Fyrir er íbúðasvæði
(ÍB17, Mosató 1) sem er um 0.5 ha. Samtals verður heildar íbúðarsvæði því
um 1,9 ha að stærð eftir breytingu. Frístundasvæði (F16) sem í núgildandi
aðalskipulagi er sýnt sem mjó ræma meðfram aðkomuvegi er alls um 3,5 ha.,
þ.e. land innan Hnauss 2. Óskað er eftir að það svæði (3,5 ha) verði gert að
landbúnaðarlandi. Svæði F16 tilheyrir því Hnaus I eftir breytingu. Frístunda-
húsasvæði SL-6, á milli raflínanna (F16c) og svæði þar norðan við (F16a)
eru nú færð inn skv. deiliskipulagi. Nyrst á SL6 er sýnd ný stök frístunda-
húsalóð (F16d). Heimilað verði nýtt frístundahúsasvæði (F16b, 1,1ha) uppi á
ásnum, heim við bæjarhús Hnaus 2. Heildarstærð frístundahúsasvæða að
meðtöldum lóðum sem getið er um undir lið 3 hér að framan og eru innan
Hnauss 2, verða því alls um 3,5ha. Á uppdrátt er bætt við vatnsbóli VB5 skv.
ósk Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Samþykkt um vatnsbólið liggur þegar
fyrir skv. gildandi deiliskipulagi. Sökum smæðar og mælikvarða er ekki hægt
að sýna aðliggjandi vatnsverndarsvæði á þessum uppdrætti en þau koma
fram í gildandi deiliskipulagi. Hótel á svæðinu hefur nú tengst Vatnsveitu
Flóahrepps og ekki lengur háð VB5. Landbúnaðarsvæði stækkar um 2 ha þar
sem syðsti hluti af frístundabyggð F16 fellur niður og færist að hluta sunnar
þar sem landbúnaðarland var skilgreint áður, fyrir breytingu. Skógræktar-
og landgræðslusvæði minnka um 1,5ha. vegna fjölgunar á frístunda- og
íbúðalóðum.
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkir framlagða tillögu Landforms dags.
6.9.2019, breytt 14.1.2020 að breytingu á gildandi aðalskipulagi Flóahrepps
2017-2029, sem óverulega breytingu skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr.
123/2010.Að mati sveitarstjórnar Flóahrepps víkur breytingin ekki verulega
frá meginstefnu gildandi aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029, og samræmist
núverandi ástandi á svæðinu. Það er ekki vilji sveitarstjórnar Flóahrepps að
koma í veg fyrir að íbúar geti byggt íbúðarhúsnæði í dreifbýli sveitarfélagsins
þó svo að í markmiðum aðalskipulags sé kveðið á um að ekki skuli gera ráð
fyrir nýjum svæðum fyrir íbúðabyggð. Þar var fyrst og fremst átt við þéttbýlis-
kjarna, ekki stakar íbúðalóðir. Vilji sveitarstjórnar beindist að því að draga úr
stórum samfelldum íbúðarsvæðum (þéttbýliskjörnum) innan sveitarfélagsins
en ekki að því koma í veg fyrir að íbúar gætu byggt stök íbúðarhús í hinum
dreifðu byggðum sveitarinnar. Sé það vilji Skipulagsstofnunar að almennu
orðalagi aðalskipulags Flóahrepps verði breytt þannig að orðalag sé skýrara
hvað þetta varðar, kemur í framhaldi þessa máls til greina að ráðist verði í
breytingu aðalskipulagsins með það að markmiði að skerpa á skilgreiningu
milli þess sem kallað er ,,íbúðabyggð” í aðalskipulaginu og þess sem kalla má
,,stakar íbúðalóðir”. Umfang landnýtingar eykst óverulega við þá nýtingu sem
fyrir er á svæðinu þar sem um litlar og stakar lóðir er að ræða. Svæðið nýtur
engrar verndar vegna náttúru- og / eða menningarminja. Umfang breyttra
landnotkunarreita er óverulegt og undir viðmiðunarstærðum (3ha) sem getið
er um vegna óverulegra breytinga aðalskipulags skv. leiðbeiningum Skipu-
lagsstofnunar (sbr. bls. 2, liður a í 2. kafla) og skv. gátlista fyrir mati stofnunar-
innar um ástæður óverulegra breytinga á aðalskipulagi. Breytingin felur ekki í
sér ákvæði um byggingarmagn er hefur áhrif á stórt svæði né er hún líkleg til
að hafa veruleg áhrif innan eða utan við skipulagssvæði. Breytingin mun ekki
hafa áhrif á einstaka aðila innan svæðisins þar sem hún er unnin í nánu sam-
ráði við alla hagsmunaaðila auk þess sem hún var auglýst án þess að fram
kæmu athugasemdir. Breytingin leiðir ekki til þess að verðmæti eða hagnýting
fasteigna skerðist umfram það sem vænta má miðað v/ óbreytta landnýtingu.
Skipulagsfulltrúa UTU er falið að senda Skipulagsstofnun tillöguna ásamt
rökstuðningi sveitarstjórnar Flóahrepps og auglýsa niðurstöðu sveitarstjórnar
skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.Samþykkt með 5 atkvæðum.
Ás 3 III-2 land L204647, Ásahreppi. Óveruleg breyting á gildandi aðalskipu-
lagi Ásahrepps 2010-2022.
Rökstuðningur hreppsnefndar Ásahrepps 19.2.2020:
Hermann Ólafsson leggur fram f.h. Ástu Beggu Ólafsdóttur og Gísla Sveins-
sonar tillögu að breytingu á gildandi aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022. Í
breytingu fellst að íbúðasvæði er breytt í annarsvegar frístundahúsasvæði
og hins vegar í landbúnaðarsvæði. Að auki er viðkomandi svæði hliðrað til
innan landskikans. Samhliða aðalskipulagsbreytingunni verður unnið deili-
skipulag af svæðinu. Skipulagssvæðið nær til landspildu sem er um 18,6 ha
að stærð. Aðkoma að landsspildunni er af vegi nr. 275, Ásvegi.
Bókun/rökstuðningur hreppsnefndar Ásahrepps:
Í skipulagslögum nr.123/2010 segir: „Við mat á því hvort breyting á aðalskipu-
lagi geti talist óveruleg skal taka mið af því hvort hún hafi verulegar breytingar
á landnotkun í för með sér eða sé líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila
eða hafa áhrif á stór svæði.“
Það er mat hreppsnefndar Ásahrepps að miðað við ofangreinda lýsingu í
lögunum þá sé umrædd breyting á landi Áss 3, land III-2 óveruleg.
Um er að ræða breytingu sem breytir smáu íbúðasvæði í dreifbýli í frístunda-
húsasvæði. Frístundahúsabyggð er landnotkun sem að mati hreppsnefndar er
umhverfislega líkari því sem hún er í dag og líkari því sem er í næsta nágreni
við skipulagssvæðið. Jafnframt verður að teljast líklegt að með breytingunni
aukist líkur á að stærri hluti af núverandi skógi á svæðinu verði varðveittur
sem frístundahúsaland heldur en sem íbúðasvæði.
Hreppsnefnd Ásahrepps telur áhrif af breytingunni á einstaka aðila eða stór
svæði verða að teljast mjög takmörkuð. Inngrip í land og umhverfi, almenn
umferð og almennt áreiti ætti með breytingunni að vera minna en ella og má
þannig segja að áhrifin, ef einhver eru, verði jákvæð í skilningi skipulagslaga.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir greinargerð og uppdrátt dagsett
10.12.2019 sem óverulega breytingu á gildandi aðalskipulagi Ásahrepps
2010-2022, vegna Áss 3. III-2 land, L204647, skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010.
Skipulagsfulltrúa UTU er falið að senda Skipulagsstofnun tillöguna til
afgreiðslu skv. 2. mgr. 36.gr. skipulagalaga nr. 123/2010, og auglýsa
niðurstöðu hreppsnefndar.
--------------------------------------------------------------------------------
Ofangreindar skipulagslýsingar/skipulagstillögur liggja frammi til kynningar
á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma
embættisins. Að auki er hægt að nálgast lýsingar og tillögur á vefslóðinni
http://www.utu.is.
Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna:
https://www.blaskogabyggd.is; https://www.gogg.is;
https://www.fludir.is;
https://skeidgnup.is; https://www.floahreppur.is; http://asahreppur.is/
Skipulagslýsingar og tillögur nr. 1, 3 og 4 eru í kynningu frá 11. mars til 1.
apríl 2020, en tillögur nr. 2, og 5-20 eru í auglýsingu frá 11. mars til 22. apríl
2020. Athugasemdir og ábendingar við tillögum nr. 1,3 og 4 þurfa að berast
skipulagsfulltrúa eigi síðar en 1. apríl 2020, en fyrir tillögur nr. 2 og 5-20 eigi
síðar en 22. apríl 2020.
Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Rúnar Guðmundsson
skipulagsfulltrúi
utu@utu.is
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi