Fréttablaðið - 11.03.2020, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 11.03.2020, Blaðsíða 15
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Eftirspurnin er því sífellt að aukast og að undanförnu hefur orðið algjör sprenging í fjölda pantana, sendinga og fyrirspurna. Litlu bílarnir frá Neolix hjálpa viðskiptavinum að takmarka líkamlega snertingu og mæta vinnuaflsskortinum sem einangrun í sóttkví og ferðatakmarkanir skapa. Kórónavírusinn hefur valdið efnahagssamdrætti í mörgum geirum, en heim­ sendingarþjónusta virðist ekki hafa orðið fyrir samdrætti. Kín­ verska sprotafyrirtækið Neolix, sem framleiðir sjálfkeyrandi sendi­ bíla, hefur séð gríðarlega aukningu í eftirspurn eftir bílunum þeirra að undanförnu, samkvæmt frétta­ veitu Bloomberg. Fyrirtækið er nú komið í við­ skipti við ýmis kínversk stórfyrir­ tæki og samkvæmt stofnanda þess, Yu Enyuan, hefur það bókað pantanir fyrir meira en 200 bíla síðustu tvo mánuði, en fyrir það höfðu aðeins 125 bílar verið framleiddir síðan framleiðsla hófst í maí á síðasta ári. Kórónavírusinn hefur því veitt sjálfstýrðum vöruflutningum óvænta innspýtingu. Litlu bílarnir frá Neolix hjálpa viðskiptavinum að takmarka líkam­ lega snertingu og mæta vinnuaflsskortinum sem einangrun í sóttkví og ferðatakmarkanir skapa. Allir bílar Neolix eru nú í notkun, en þeir eru notaðir til að flytja sjúkragögn til sjúkrahúsa, meðal annars í Wuhan, þar sem faraldurinn hófst. Bílarnir eru líka notaðir til að sótthreinsa götur og flytja mat til fólks sem er í fremstu víglínu í baráttunni gegn vírusnum. „Eftirspurn hefur rokið upp síðan faraldurinn hófst og það sem skiptir enn meira máli er að viðhorf fólks gagnvart sjálfstýrðri heimsendingu hefur alveg snú­ ist við,“ sagði Yu. „Fólk gerir sér grein fyrir því að slíkir bílar geta gert hluti sem væru hættu­ legir fyrir fólk.“ Breytingar á regluverki Milljarðamæringurinn Jack Ma spáði því fyrir þremur árum að innan áratugar myndi einn milljarður heimsendinga fara fram á degi hverjum í Kína og að tæknin fyrir sjálfkeyrandi sendla gæti komið að gagni í þróun sjálf­ keyrandi bíla til fólksflutninga. Hingað til hafa samt verið strangar takmarkanir á slíkum ökutækjum á vegunum í Kína, en vegna farald­ ursins eru göturnar auðar og því hefur verið slakað á reglunum. Bill Russo, forstjóri ráðgjafar­ fyrirtækisins Automobility, segir að stafræni þjónustugeirinn í Kína hafi blómstrað í faraldrinum og að það muni flýta fyrir markaðssetn­ ingu sjálfkeyrandi heimsendinga. Kínversk stjórnvöld niðurgreiða nú kaup og rekstur á sjálfkeyrandi sendibílum um allt að 60%, sam­ kvæmt Neolix. Fyrirtækið segir að þessar niðurgreiðslur muni flýta fyrir kynningu ökutækjanna og að það geri ráð fyrir að selja 1.000 bíla á árinu. Það sem koma skal? Þróun sjálfkeyrandi sendibíla er ekki bara að verða sífellt hraðari í Kína. Fyrirtækið Nuro, sem framleiðir vélmenni fyrir heim­ sendingar og er aðalkeppinautur Neolix í Bandaríkjunum, fékk nýlega leyfi til að framleiða öku­ tæki sín og það gerir þeim kleift að hefja heimsendingar á matvöru. Leyfi Neolix gildir í tvö ár og gefur til kynna að bandarísk yfir­ völd telji sjálfkeyrandi sendibíla eiga heima á götum Bandaríkjanna. Mögulega hægist á þróuninni þegar faraldurinn er að baki, því vinnuafl er ódýrt í Kína. En kannski er þetta vísir að því sem koma skal og að nú séu nýjar þarfir og neysluvenjur að myndast sem þarf að halda áfram að mæta þegar faraldurinn er genginn yfir. Mun meiri heimsending í Kína Kórónavírusfaraldurinn hefur valdið mikilli aukningu í eftirspurn eftir heimsendingar þjónustu í Kína. Gæti endað með því að faraldurinn flýti fyrir þróun og framleiðslu sjálfkeyrandi sendibíla. Bílar Neolix eru notaðir í verkefni sem gætu reynst hættuleg fólki, eins og að flytja sjúkragögn og mat til sjúklinga og heilbrigðis­ starfsfólks og sótthreinsa götur á svæðum þar sem fólk er sýkt af kóróna­ vírus. MYND/GETTY Að sögn Kristins Jens Bjart­marssonar, rekstrarstjóra hjá aha.is, er fyrirtækið á vissan hátt brautryðjandi á sínu sviði, það er í því að bjóða upp á lausn fyrir almenn fyrirtæki til að selja vörur sínar á netinu og senda heim til viðskiptavina. „Við not­ umst við hugbúnað sem við höfum sjálf þróað og þykir einstakur á heimsvísu. Hann tengir saman marga mjög ólíka verkþætti og manneskjur í rauntíma sem gefur stjórnendum skýra yfirsýn yfir verkefnin og nýtir gervigreind til að styðja frekar við réttar ákvarð­ anir hjá stjórnendum. Yfir þúsund manns eiga samskipti í rauntíma í gegnum kerfið á hverjum degi – hlutir sem voru áður gerðir með símtölum og póstsamskiptum. Frá árinu 2017 notum við eingöngu rafmagnsbíla,“ segir Kristinn og bendir á að fyrirtækið hafi alltaf lagt mikla áherslu á að veita góða þjónustu og eiga heiðarlegt og gott samstarf við söluaðila og við­ skiptavini. Meira frí fyrir fjölskyldur „Við leggjum líka mikið upp úr því að framkvæma sendingarnar á umhverfisvænan hátt. Á hverjum degi keyrum við vegalengd sem samsvarar fjarlægðinni til London á rafmagnsbílum. Frá því að við skiptum yfir í rafmagnsbíla höfum við keyrt sem nemur til tunglsins og til baka tæplega tvisvar. Þegar fólk nýtir sér þjónustu okkar getur það átt mun meiri frítíma með fjölskyldu sinni. Eftirspurnin er því sífellt að aukast og að undan­ förnu hefur orðið algjör sprenging í fjölda pantana, sendinga og fyrir­ spurna,“ segir Kristinn. Starfsemi aha.is hefur gjörbreyst frá því fyrirtækið var stofnað árið 2011. „Fyrst var þetta heimasíða með ýmis tilboð sem síðan hefur þróast mikið. Til dæmis fórum við að senda veitingar frá veitinga­ stöðum yfir í að tengja almennar verslanir við netið og sameina þær í eins konar markaðstorg á netinu. Sífellt bætast f leiri sölu­ aðilar í hópinn. Samstarf við stórar verslanir eins og Nettó hefur svo verið lykillinn að stöðugum vexti undanfarin ár. Við höfum alltaf haft það að leiðarljósi að vaxa á þeim hraða sem við teljum okkur geta ráðið við og leggjum áherslu á góð tilboð og framúrskarandi þjónustu. Matinn heim að dyrum Íslendingar eru fljótir að tileinka sér nýjungar en þeir eru einnig kröfuharðir og vilja að hlutirnir gangi fumlaust fyrir sig. Við höfum sent matvöru heim að dyrum á höfuðborgarsvæðinu síðan í maí 2016 með Iceland og frá árinu 2017 með Nettó. Í dag er hægt að kaupa matvöru á aha.is í 14 verslunum Nettó um allt land. Við sendum heim frá höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesbæ og á Akureyri. Þar fyrir utan sendum við auðvitað mat heim frá um 100 veitingastöð­ um og þó nokkrum verslunum, en það færist stöðugt í aukana að fólk sé að redda hlutunum þegar þá vantar í gegnum aha. Í kjölfar frétta af Covid­19 höfum við sett upp ákveðna viðbragðsáætlun en starfsfólk okkar hefur brugðist eldsnöggt við að breyta ferlum og lágmarka áhættuna. Við verðum samt á sama tíma að biðja fólk afsökunar á því að við höfum ekki náð að halda uppi því þjónustu­ stigi sem við höfum viljað á háannatímum síðustu vikuna, en við erum að fjölga bílum og ráða inn fólk eins hratt og við getum,“ segir Kristinn og bætir við að mat­ vörur séu vinsælasta vara þeirra á eftir veitingum frá veitinga­ stöðum. „Við sendum ólíkar vörur til fólks, það getur verið nýtt hjól, fallegt úr eða eitthvað annað. Við­ skiptahópur okkar er kominn yfir 130 þúsund. Gjafabréf á hótel, veit­ ingastaði og snyrtistofur eru alltaf vinsæl og um þessar mundir er til dæmis hægt að kaupa tilboðs­ gjafabréf á Holtið, Humarhúsið og Höfnina. Á næstunni munum við kynna sérstök heimsendingartil­ boð frá völdum veitingahúsum.“ Matvörur eru langvinsælastar Aha.is hefur starfað í tæpan áratug en á þeim tíma hefur reksturinn og netverslun þróast og breyst. Aha.is er í senn netverslun, dreifingarfyrirtæki, auglýsingastofa og hugbúnaðarfyrirtæki. Kristinn Jens Bjartmarsson, rekstrarstjóri hjá aha.is, segir heimsendingar stöðugt aukast. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . M A R S 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.