Fréttablaðið - 11.03.2020, Síða 49
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg. ehf
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Davíðs
Þorlákssonar
BAKÞANKAR
Það skiptir auðvitað mestu máli að hefta útbreiðslu kór-ónaveirunnar til að vernda
heilsu landsmanna. Það þarf þó
líka að huga að efnahagslegum
áhrifum sem eru farin að birtast.
Heimili hér heima og erlendis
halda að sér höndum varðandi
útgjöld, svo sem vegna ferðalaga.
Þetta hefur áhrif á eftirspurn eftir
íslenskum vörum og þjónustu,
einkum ferðaþjónustu. Það
kemur sérstaklega illa við okkur
á Íslandi þar sem ferðaþjónusta er
okkur hlutfallslega mikilvægari
en nágrannalöndum okkar. Fyrir-
tæki halda einnig að sér höndum,
bíða með fjárfestingar og að ráða í
laus störf. Hlutabréfaverð lækkar
og það hægir á öllu hagkerfinu.
Þetta bætist við erfiðar aðstæð-
ur sem voru fyrir vegna samdrátt-
ar í ferðaþjónustu, loðnubrests,
náttúruhamfara og verkfalla. Hið
opinbera hefur ýmis úrræði til að
bregðast við þessu. Seðlabankinn
getur farið í duglega vaxtalækkun
og beitt öðrum tólum til að slaka
á aðhaldi peningastefnunnar.
Góðu fréttirnar eru að staða
ríkissjóðs er góð eftir uppgang í
atvinnulífinu síðustu árin. Það
er því svigrúm til skattalækkana.
Einnig má f lýta fyrir og auka arð-
bærar innviðafjárfestingar, svo
sem í f lutnings- og dreifikerfum
raforku og samgöngum.
Það er aldrei góður tími fyrir
heimsfaraldur eða efnahags-
lægð, hvað þá heimsfaraldur ofan
í efnahagslægð. Ef ekkert er að
gert má búast við að efnahags-
lægðin sem var hafin verði dýpri
og lengri en ella. Öll tól og tæki
til að draga úr slæmum áhrifum
stöðunnar eru hins vegar í okkar
höndum. Nú er tími til að standa
saman, leggja pólitík til hliðar og
fara í aðgerðir sem raunverulega
skipta máli.
Vont versnar
OPAL
2 TEG - 40 G
169
KR/PK
4225 KR/KG
laugardalsvelli · opið kl. 10-21 öll kvöld
Ljúfar
lestrarstundir
Vantar þig
bók á
náttborðið?
siminn.is
Af hverju er Dóri DNA
alltaf svona reiður?
DÓRI DNA
Halldór Laxness Halldórsson er rithöfundur, grínisti,
tónlistarmaður, handritshöfundur, leikari, eiginmaður
og faðir og langar að gera meira af þessu öllu. Dóri DNA
er í einlægu spjalli í næsta þætti af Með Loga.
Þátturinn kemur á fimmtudag
í Sjónvarp Símans Premium