Hugur og hönd - 2018, Side 3

Hugur og hönd - 2018, Side 3
4 HUGUR OG HÖND 2018 Það er alltaf gleðiefni þegar ársrit Heimilisiðnaðar- félags Íslands Hugur og hönd kemur út. Ritið nýtur virðingar og hefur fyrir löngu skipað sér heiðurssess á meðal handverksfólks enda komið út í rúma hálfa öld. Hugur og hönd er mikilvæg stoð í starfi félagsins, stolt okkar og sómi. Á þessu ári er 100 ára afmælis fullveldis Íslands minnst. Af því tilefni auglýsti afmælisnefnd skipuð af Alþingi eftir styrkumsóknum vegna dagskrárliða á afmælisárinu. Félagið hlaut styrk fyrir verkefni sitt ÚT ÚR SKÁPNUM – ÞJÓÐBÚNINGANA Í BRÚK! en markmið þess er að vekja athygli á þjóð- búningum og hvetja til notkunar þeirra. Styrkurinn skapar hvatningu og tækifæri til að standa enn betur að þeim viðburðum sem hefð er fyrir, svo sem Þjóð- búningakaffi í Hannesarholti og Þjóðbúningadegi í Safnahúsinu. Einnig opnast möguleiki á að hrinda í framkvæmd nýjum hugmyndum. Ein þeirra var þegar gestum og gangandi bauðst að koma í Nethyl og fá ráðgjöf og ráðleggingar sérfræðinga um þjóðbúninga, búningahluta og búningasilfur. Eins og greint er frá í sérstakri grein hér í ritinu er skemmst frá því að segja að viðburðurinn sló í gegn. Fullt var út úr dyrum og fjölmargir fengu svör við erindum sínum, en við- kvæði margra var að þeir hefðu lengi ætlað að draga búningana út úr skápunum. Einu sinni á ári hittast fulltrúar frá Noregi, Sví- þjóð, Danmörku, Finnlandi, Eistlandi og Íslandi og bera saman bækur sínar undir formerkjum Nordens husflidsforbund. Að þessu sinni bættust við fulltrúar frá Heimavirki í Færeyjum en félagið hefur verið óvirkt í samtökunum um langt skeið. Á meðal sam- starfsverkefna þetta árið eru handaverksbúðir fyrir ungmenni á aldrinum 16-22 ára sem haldnar verða í Noregi í byrjun ágúst. Norðmenn sjá um skipulagið en hvert þátttökuland leggur til einn kennara. Mælst var til þess að kennarar væru undir þrítugu. Í þessu fólst skemmtileg áskorun þar sem félagsmenn HFÍ eru sannarlega ekki á aldrinum 16-22 ára og enginn kennari Heimilisiðnaðarskólans undir þrítugu. Frábær kennari fékkst til fararinnar, Auður Björt Skúladóttir og mun hún kenna áhugasömum að prjóna lopapeysu. Átta þátttakendur fara frá Íslandi auk fararstjóra og kennara. Í þessu verkefni felst ánægjulegt tækifæri til huga að ungu fólki – í því felst framtíðin. Heimilisiðnaðarfélagið hefur undanfarin ár kynnt starfsemi sína á Handverkshátíðinni á Hrafnagili í ágúst. Á hátíðinni á síðasta ári buðu félagsmenn gestum og gangandi að læra gamla íslenska kross- sauminn. Lifandi þátttaka gesta mæltist einstaklega vel fyrir enda áhugi á útsaumi vaxandi um þessar mundir. Þátttaka á Hrafnagili er mikilvæg leið fyrir félagið til að kynna starfsemi sína á landsvísu en til hátíðarinnar kemur mikill fjöldi gesta alls staðar að af landinu. Við munum ekki láta okkur vanta á Hrafnagil þetta árið og hvetjum félagsmenn sem leið eiga um hátíðina til að koma við á bás HFÍ. Sjálfboðavinna í nefndum er mikilvægasti þátturinn í starfi félagsins. Í góðum félagsskap verða hin fjöl- breyttustu verkefni bæði gefandi og skemmtileg. Heimilisiðnaðarfélagið væri ekkert án félagsmanna sinna sem margir leggja félaginu lið á einn eða annan hátt í sjálfboðavinnu. Ég þakka öllum þeim sem lagt hafa sitt að mörkum til að gera félagið að því sem það er í dag. Framtíð Heimilisiðnaðarfélagsins er björt. Margrét Valdimarsdóttir, formaður Heimilsiðnaðarfélags Íslands Formannspisti l l 2018 HUGUR OG HÖND 5

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.