Hugur og hönd - 2018, Blaðsíða 7

Hugur og hönd - 2018, Blaðsíða 7
12 HUGUR OG HÖND 2018 2018 HUGUR OG HÖND 13 var haldið. Þegar Inga Arnar fór að vera með þjóð- búninganámskeið hér á Akureyri saumaði ég mér 19. aldar upphlut. Einnig saumaði ég þá upphlut á yngstu dóttur mína. Svo fór ég ásamt fleiri konum hér að sauma faldbúning. Nú í nokkur ár hafa kennarar frá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands komið norður eina helgi í mánuði yfir veturinn. Námskeiðin eru haldin í gamla Húsmæðraskólanum á Laugalandi í samvinnu við Þjóðháttafélagið Handraðann. Það er mikill áhugi á þjóðbúningasaumi hér um slóðir og margar ungar konur komnar í hópinn. Þessi búninganámskeið á Laugalandi eru svo vel sótt að bæta þurfti þriðja deg- inum við þannig að saumahelgarnar eru orðnir þrír dagar en ekki tveir. Fólk bíður eftir að komast að. Svo er líka lúxusvandamál hve erfitt er að losna við þær sem ljúka við búninga því þær byrja bara á nýjum! Þannig að ég er að sauma peysuföt núna á elstu dóttur mína. Það er ákaflega mikilvægt fyrir okkur hér fyrir norðan að fá þessa aðstoð og kennslu frá Heimilis- iðnaðarfélaginu og kennararnir eru alveg einstakir. Námskeiðin sækja líka konur úr Þingeyjarsýslu og úr Skagafirði. Þegar ég fermdist saumaði mamma á mig hvítan kyrtilbúning. Þetta var rétt áður en ferm- ingarkyrtlarnir voru teknir upp í kirkjum og ég fékk veglegt stokkabelti í fermingargjöf. Þjóðbúningarnir hafa því fylgt mér lengi.“ Söfnun og útgáfa Næst snúum við talinu að söfnun Jennýjar. „Ég fór snemma að safna handavinnu þannig að nú á ég heil- mikið textílsafn. Hvað verður um það veit ég ekki en mér er nokkuð sama hvert á land það fer ef það fær viðeigandi umgjörð og verður sýnilegt. Ég vil líka helst að fólk geti skoðað, þreifað og þuklað á einhverjum J e n n ý m e ð ge r s e m a r n a r s í n a r. V í ra v i rk i – J e n n ý s m í ð a ð i . hluta þess án hvítra hanska. Þannig getur það fundið fyrir efni og áferð og fengið hlutdeild í sögu fólksins sem lagði metnað og mikla vinnu í að skreyta og fegra heimili sín. Mig langar ekki að setja það á safn þar sem það yrði sett í kassa og geymslur og látið liggja þar. Handavinna er hluti af menningararfi okkar sem bæði verðskuldar og þarf að vera komandi kynslóðum sýnileg. Munstrum hef ég safnað líka. Fólk fór að leita til mín eftir munstrum af þessu og hinu. Ég fór því að taka saman munstur, ljósrita og setja í hefti og selja á Handverkshátíðinni á Hrafnagili. Einnig fór ég að endurútgefa elstu íslensku handverksbækurnar, t.d. Leiðarvísi til að nema ýmsar kvenlegar hannyrðir sem kom út 1886 og Leiðarvísi til að nema ýmsar hannyrðir og fatasaum frá 1928, sem og þrjú jurta- litunarkver frá 20. öld og tvö smíðakver frá 19. öld. Útgáfan hlóð svo utan á sig eins og snjóbolti og er í raun tvískipt. Annars vegar er endurútgáfa á þessum gömlu bókum eins og þær voru upprunalega nema ég bætti gjarnan við smá formála um höfundana. Ég hafði samband við afkomendur höfunda þar sem þess þurfti og fékk ómældar þakkir fyrir að vekja athygli á verkum þeirra. Þó að ég fengi þakklæti úr ýmsum áttum var þetta líka litið hornauga af sumum sem töldu að þetta gæti vart staðið undir því að vera útgáfa. Hins vegar hef ég verið að taka saman munstur héðan og þaðan og sett saman í þemahefti. Samtals eru þetta orðnir 48 titlar. Markmiðið var að koma þessu til sem flestra sem hafa áhuga á hand- verki og til hönnuða sem vonandi geta nýtt sér þetta efni sem einskonar hugmyndabanka. Af því að ég geri þetta allt sjálf á þennan einfalda og ódýra hátt hafa heftin farið víða. Núna er ég að hætta þessu, allt hefur sinn tíma. Ég á smávegis af pappír og ætla að nota á meðan hann endist í þær bækur sem mér finnst sjálfri merkilegastar. Svo er þetta bara búið. Heftin hafa til dæmis talsvert verið í útláni á Amtsbókasafninu og þetta slitnar af notkuninni, þannig að í sumar endur- nýjuðu þeir það sem mest var fengið að láni, því þeir vilja hafa þetta áfram, sem mér finnst mjög jákvætt.“ Við ræðum um misjafnar skoðanir fólks á hand- verki og munstrum eftir því hvaðan þau eru upp- runnin og Jenný segir: „Það er gaman að segja frá því hvernig munstur berast á milli manna. Ég útbjó fjögur hefti í stóru broti sem ég kalla Gömul munstur og tók þá mikið af munstrum upp úr Nýju kvennablaði sem kom út á árunum 1940–1967. Síðar rakst ég á þessi sömu munstur í gömlum eintökum af Familie journal frá því um 1920. Þannig berast munstur gjarnan frá einni kynslóð til annarar eftir ýmsum leiðum og reyndar ótrúlegt hvað hugmyndir og munstur voru oft fljót í förum milli landa. Danska blaðið Familie journal var mikið keypt hér á landi og þegar komið er á byggðasöfn sjást ýmsar hugmyndir þaðan á íslensku handverki. Eftir að hafa skoðað tuttugu árganga af Familie journal frá 1915–1935 virðist mér vera fátt sem ekki var hægt að læra af því ágæta blaði. Það var fjölbreyttur hugmyndabanki með munstrum og teikningum af ýmsum spennandi munum. Séríslensk munstur er flókið mál því erfitt er að fastsetja J e n n ý í f a l d b ú n i n g i 18 . a l d a r s e m h ú n s a u m a ð i s j á l f .

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.