Hugur og hönd - 2018, Side 14

Hugur og hönd - 2018, Side 14
26 HUGUR OG HÖND 2018 2018 HUGUR OG HÖND 27 Spaðafaldur og treyjur Á 19. öld báru konur spaðafald. Spaðinn er úr stífum pappa sem klæddur er lérefti. Hann er festur í litla húfu sem er tyllt á höfuðið og klútur bundinn um. Ekki er greinanlegur munur á treyjum 18. og 19. alda faldbúninga. Hér eru treyjur skreyttar með vír- borðum, flauelsskurði sem lagður er vírsnúru og með baldýruðum borðum. Faldbúningur Eddu Árnadóttur er með spaðafald, flauelsskurður lagður vírsnúru er á treyjuborðum og samfellan er blómstursaumuð. Upphlutur var alltaf hluti faldbúnings. Upphlutsbolur getur verið úr svörtu, grænu, rauðu eða bláu ullarefni eða flaueli. Borðar að framan vírborðar eða baldýraðir. Nú er upphlutur 19. aldar notaður sem sjálfstæður búningur með dökku pilsi og borin við hann djúp skotthúfa og dúksvunta. Leggingar eru yfir saumum, úr flaueli eða vírborðum eða þær eru kniplaðar. Þrjár leggingar eru eftir miðju baki. Upphlutur Kristínar Bjarna- dóttur er með baldýruðum borðum, sex myllupörum og knipluðum leggingum á baki. Peysuföt 19. aldar urðu til þegar konur fóru að prjóna treyjurnar í stað þess að sníða þær og sauma úr klæði. Þá not- uðu þær líka prjónaðar, djúpar húfur í stað falds. Í fyrstu voru konur í upphlut undir treyjunni en slepptu honum svo og voru þá aðeins í skyrtu undir treyjunni (peysunni). Síðar á öldinni var aftur farið að sníða og sauma peysur úr klæði. Á boðöngum og fremst á ermum er svart flauel. Þröng treyjan er höfð hálfopin að framan þar sem glittir í nær- skyrtu eða peysubrjóst. Peysuföt Lilju Guðmunds- dóttur er klæðispeysa. Búningar 19. aldar. Faldbúningur, upphlutur og peysuföt

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.