Hugur og hönd - 2018, Qupperneq 16

Hugur og hönd - 2018, Qupperneq 16
30 HUGUR OG HÖND 2018 2018 HUGUR OG HÖND 31 Hrosshársnámskeið Hrosshár eru heillandi efniviður í bönd og margskonar fléttur. Á vormánuðum kenndi Lene Zachariassen hrosshárs- fléttun á þriggja kvölda námskeiði í Heimilisiðnaðarskólanum. Það er þolin- mæðisverk að flokka og telja hrosshár áður en hafist er handa við að flétta. Með góðri leiðsögn meistarans varð vinnan auðveld og skemmtileg og voru nemendur mjög ánægðir með námskeiðið. Flétturnar má síðan t.d. nota í skartgripi eða sem skraut í leðurvinnu. Lene býr og starfar á Hjalteyri við Eyjafjörð þar sem hún meðal annars sútar skinn og vinnur úr hrosshári. Til að skapa myndverk þarf í meginatriðum þrennt: Kveikju, hugmynd og handverk. Kveikjan vekur hug- myndina eða verður mynd í huganum, eins og orðið ber með sér. Það sem vekur hugmyndina getur verið eitthvað sem við sjáum eða heyrum og sem kallar fram mynd í huganum. Nafn þessa tímarits, Hugur og hönd, felur í sér þetta ferli. Ef hugmynd á að komast í framkvæmd þá þarf skapandi hugsun og þekkingu á miðlinum sem lista- maðurinn kýs að nota. Það krefst kunnáttu og verk- þekkingar. Þessi þrjú mikilvægu hugtök í sköpunarferlinu, kveikja, hugmynd og handverk, verða eitt og sam- einast í nýju sjónrænu listaverki. Ekkert af þessu má vanta: Kveikjan tendrar hugmynd sem færð er í miðil. Þetta er það ferli sem sjónum er beint að í þessari stuttu grein um grafíklist Kristins G. Jóhannssonar. Listamaðurinn Kristinn G. Jóhannsson fæddist á Dalvík 1936 en fluttist á barnsaldri til Akureyrar með foreldrum sínum. Eins og algengt var á stríðsárunum, og raunar langt fram eftir 20. öldinni, fór Kristinn í sveit sumar hvert til föðurfólks síns á Göngustöðum í Svarfaðar- dal og tengdist dalnum sterkum böndum. Móðir hans var af þingeyskum ættum en í báðum ættum er list- ræn taug. Sagt var um bændur á Göngustöðum, forfeður Kristins, að þeir hafi ekki búið stóru búi en þess er jafnan getið að þeir hafi verið góðir vefarar. Vefstóll var settur upp í baðstofunni á vetrum en hann tekinn niður þegar erill sumarmánaðanna tók við. Kristinn hóf listnám á Akureyri um fermingar- aldur, fyrst hjá Jónasi Jakobssyni myndhöggvara og síðan hjá listmálaranum Hauki Stefánssyni. Þar lærði hann undirstöðu teikningar, myndmótun og byrjaði að mála. Hann stóð síðan stutt við í Handíða- og myndlistaskólanum í Reykjavík eftir stútentspróf frá MA 1956 áður en hann hélt til Skotlands að nema málaralist við Edinburgh College of Art. Kristinn hefur á löngum og farsælum ferli haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum. Hann tók fyrst þátt í Haustsýningu FÍM í Lista- mannaskálanum árið 1962 og efndi síðar sama ár til fyrstu einkasýningar sinnar í Reykjavík í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Hann lauk kennaranámi þetta sama ár og vann síðan við kennslu og skólastjórn alla starfsævina. Ótal sýningar og ötult starf eru að baki og ennþá er Kristinn atorkumikill listamaður. Í september 2018 opnaði hann sýningu á þeim dúkristum, sem hér verður fjallað um, í sýningarsal Íslenskrar Grafíkur í Hafnarhúsinu í Reykjavík. Hugmyndin Um skeið var rekið listhús, sýningarsalur og vinnu- aðstaða nokkurra ungra listamanna, skálda og myndlistarmanna á Akureyri og kallað Rauða húsið. Hvernig það kom til að Kristinn sýndi í þessu musteri nýja málverksins þar sem yfir vötnunum sveif andi H ö f u n d u r : Guðmundur Ármann Sigurjónsson - L j ó s m y n d i r : Guðmundur Ármann Sigurjónsson og Krist inn G. Jóhannsson Vefur málarans Krist inn G. Jóhannsson Hugmynd og handverk

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.