Hugur og hönd - 2018, Qupperneq 27
52 HUGUR OG HÖND 2018 2018 HUGUR OG HÖND 53
Frágangur
Gangið frá öllum endum.
Brjótið slétta kaflan sem fyrst var prjónaður, inn í
húfuna og saumið fastan.
Par Vettlingar
Stærð Medium.
Efni
Kambgarn 50 gr dokkur.
2 dokkur af aðallit og um 1/3 dokka af hvorum auka-
lit. Athugið að ef prjóna á bæði húfuna og vettlingana
duga 3 dokkur af aðallit og 1 af hvorum aukalit.
Prjónar nr 2 ½.
Aðferð
Fitja upp 60 lykkjur á prjóna númer 2 ½ með aðallit
Prjóna slétt 20 umferðir.
Nú er prjónuð ein brugðin umferð (brotlína). Prjóna
munstur eftir teikningu.
Rauða línan í 17. umferð táknar þumalinn. Þar eru 10
lykkjur prjónaðar á aukaband sem síðar verður rakið
úr til að prjóna þumalinn.
Þumallinn á vinstri vettlingi er staðsettur á 2.prjóni. Á
hægri vettlingnum er þumallinn prjónaður á 3.prjóni.
Úrtaka
1.prjónn: prjóna eina lykkju, prjóna tvær lykkjur
saman hallandi til vinstri. Prjóna út prjóninn.
2.prjónn: prjóna þar til 3 lykkjur eru eftir, prjóna þá
tvær lykkjur saman
hallandi til hægri.
Prjóna eina lykkju.
3.og 4.prjónn, eins og
1.og 2.prjónn.
Eftir fyrstu úrtöku
eru prjónaðar tvær
umferðir slétt.
Eftir aðra úrtöku er
prjónuð ein umferð
slétt.
Eftir það er gerð
úrtaka í hverri umferð
þar til 8 lykkjur eru
eftir. Þá er bandið
slitið frá og dregið í
gegn.
Þumall
Aukabandið er rakið úr og teknar upp 22 lykkjur.
Prjónað í hring alls 21 umferð eftir teikningu.
Eftir það er úrtaka samkvæmt teikningu þar til 6
lykkjur eru eftir.
Frágangur
Gangið frá öllum endum.
Brjótið slétta kaflann sem fyrst var prjónaður, inn í
vettlinginn og saumið fastan.
© Ó l ö f E n g i l b e r t s d ó t t i r
Par - Húfa
Efni
Kambgarn 50 gr dokkur
2 dokkur af aðallit og um 1/3 dokka af hvorum aukalit. Athugið að ef prjóna á bæði húfuna og
vettlingana duga 3 dokkur af aðallit og 1 af hvorum aukalit.
Prjónar nr 3 ½
Fitja upp 132 lykkjur og tengja í hring.
Prjóna slétt 20 umferðir.
Prjóna eina brugðna umferð (brotlína).
Prjóna nú eftir teikningu.
Prjóna áfram slétt þar til húfan mælist 25 cm frá brotlínu, þá hefst
úrtaka.
Úrtaka
Prjóna 2 lykkjur, prjóna 2 saman, endurtaka út umferð. 99
lykkjur eftir á prjónunum
Prjóna eina umferð slétt.
Prjóna 1 lykkju, prjóna tvær lykkjur saman, endurtaka út
umferð. 66 lykkjur eftir á prjónunum.
Prjóna eina umferð slétt.
Prjóna tvær lykkjur saman, endurtaka út umferð.
Prjóna eina umferð slétt.
Prjónið eina lykkju, svo tvær lykkjur saman út umferðina. 17 lykkjur eftir á prjónunum
Prjónið eina lykkju, svo tvær lykkjur saman út umferðina. 8 lykkjur eftir á prjónunum
D ag bandið í gegnum lykkjurnar sem eftir eru.
Frágangur
Gangið frá öllum endum.
Brjótið slétta kaflan sem fyrst var prjónaður, inn í húfu a og saumið fastan.
Peysa og húfa
á káta krakka
H ö f u n d u r : Herborg Sigtryggsdóttir - L j ó s m y n d i r : Guðmundur Ingólfsson