Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 16
Heimsbyg gðin hef ur orðið f y r ir á fa l l i . COVID-19 virðir engin l a nd a mær i . Aðr a r h n at t r æ n a r ó g n i r fyrirfinnast, eins og loftslagsbreyt- ingar, en lífi okkar og heilsu stafar nærtækari hætta af þessum heims- faraldri. Eftir því sem veiran breiðist um hnöttinn, kemur betur í ljós hve vægðarlaus þróun hennar er og hve alvarlegar af leiðingar hennar eru fyrir efnahagslíf og mannúðarsjón- armið. Reynslan af öðrum smitsjúk- dómum eins og alnæmisveirunni og ebólu sýnir að undirliggjandi sam- félagsleg vandamál – einkum ójöfn- uður, fátækt og átök – gera ástandið verra. Afleiðingarnar sjást nú þegar og þær koma til með að aukast. Harð- ast koma þær niður á fátækum og óstöðugum ríkjum með veikburða heilbrigðiskerfi. Þær bitna líka sér- staklega á konum sem verða fyrir fjárhags-, félags- og heilsufarslegu álagi, auk þess sem þær eiga meiri hættu á að verða fyrir of beldi. Það er ekki aðeins samstaða með efnaminni hagkerfum sem hvetur okkur áfram. Hnattrænar aðgerðir varðandi COVID-19 eru nauðsyn- legar ef við viljum vernda almenn- ing í okkar eigin löndum og efna- hagslíf. Við verðum að bregðast við ástandinu í okkar eigin löndum, en einnig er mikilvægt að við grípum til hnattrænna, fjölþjóðlegra við- bragðsaðgerða. Veikleikar í heil- brigðiskerfum þróunarríkja hafa í för með sér einna mesta áhættu hvað varðar hnattræna útbreiðslu veirunnar. Náið samstarf okkar allra – ríkja innan sem utan ESB – er mikilvægt í því skyni að auka áhrif okkar, bæði fjárhagslega og á vettvangi. Þess vegna þurfa allir samstarfsaðilar á alþjóðavísu, meðal annars Samein- uðu þjóðirnar og stofnanir þeirra, að gera allt sem í valdi þeirra stend- ur til að berjast gegn faraldrinum, draga úr afleiðingum, efla viðbúnað og auka möguleika á endurreisn. Við munum leggja áherslu á aðgerðir á eftirfarandi sviðum: Tafarlaus viðbrögð Skjót, samræmd og öflug viðbrögð til hjálpar viðkvæmustu ríkjunum eru nauðsynleg. Stuðningur við marg- hliða kerfi og samstarfsaðila sem eru í framlínunni er skilvirkasta leiðin. Við styðjum Alþjóðaheilbrigðis- stofnunina að fullu í hlutverki sínu sem leiðtogi og samræmingaraðili á heimsvísu vegna viðbragða við COVID-19 á heilbrigðissviðinu, og gerum okkur grein fyrir mikilvægi annarra hnattrænna heilbrigðis- stofnana eins og Gavi-sambands- ins, Heimssjóðsins (Global Fund) og Unitaid stofnunarinnar. Við styðjum eindregið hnattræna viðbragðsáætl- un aðalframkvæmdastjóra Samein- uðu þjóðanna um mannúðaraðstoð til að hjálpa berskjaldaðasta fólkinu sem þegar býr við neyðarástand í mannúðarmálum, einkum f lótta- fólk og vegalaust fólk innan eigin lands. Við teljum einnig að nýr fjöl- þjóðlegur vörslusjóður Sameinuðu þjóðanna vegna viðbragða og endur- reisnar sé nauðsynlegur til að hjálpa lág- og millitekjuríkjum að takast á við heilsufarsleg og efnahagsleg áhrif sjúkdómsins. Lausnir fyrir alla Skilvirkt viðbragð á heimsvísu verð- ur að fela í sér aðgang að bóluefni, nýrra meðferða, og sýnatöku fyrir alla. Bandalag um nýsköpun í við- búnaði vegna farsótta (CEPI) gegnir lykilhlutverki við þróun bóluefnis en það gera einnig vísindamenn í löndum okkar. Við ættum að vinna saman að því að þróa bóluefni eins f ljótt og auðið er og sjá til þess að það sé tiltækt öllum, ekki einungis þeim sem hafa tök á að greiða fyrir það. Sérfræðiþekking og alþjóðleg staða Gavi-sambandsins mun þar skipta sköpum. Lokun fjármögnunarbila Við verðum að grípa til skjótra aðgerða og setja saman heildstæðan pakka með efnahagslegum, heilsu- farslegum, næringarfræðilegum og félagslegum ráðstöfunum í sam- starfi við Sameinuðu þjóðirnar og aðrar alþjóðastofnanir. Við köllum eftir því að opinberir lánardrottnar vinni saman og með Alþjóðabank- anum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að því að kanna möguleika á tíma- bundinni frestun endurgreiðslna frá fátækustu ríkjunum sem eru hvað viðkvæmust. Við verðum að skuldbinda okkur til að leggja til og virkja frekari úrræði umfram opinbera þróunaraðstoð ef við viljum að sönnu auka viðnámsþrótt landa gegn kórónaveirunni. Einka- geirinn mun leika mikilvægt hlut- verk við að finna nýstárlegar lausnir og virkja fjármagn til að halda við- skiptum og aðfangakeðjum gang- andi, til ábata fyrir bæði hátekju- og lágtekjuríki. Þetta hjálpar til við að halda hagkerfum uppi og að lokum styðja við endurreisn þeirra. Enginn verði skilinn eftir Við verðum að tryggja að þeir hópar sem verða fyrir mestum áhrifum fái tafarlausa aðstoð við að byggja upp félagslega vernd sem og heilsu- og næringartengda þjónustu. Við horfum einkum til Sameinuðu þjóðanna, Alþjóða- bankans og Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins til að leiða á þessu sviði. Við verðum að vernda þá sem eru viðkvæmastir fyrir, þ.m.t. konur og stúlkur. Menntun ætti einnig áfram að vera forgangsatriði. Endurnýjun birgða hjá Gavi-sambandinu síðar á þessu ári er einnig brýn. Við þurfum reglubundna bólusetningu fyrir þær milljónir manna sem verða fyrir áhrifum af þessum heims- faraldri í fátækustu ríkjunum.Til lengri tíma verðum við að auka stórlega viðleitni okkar til að ná fram meira félagslegu öryggi og tryggja heilbrigðisþjónustu fyrir alla á heimsvísu. Hvika ekki frá meginreglum Mikilvægur og dýrkeyptur lærdóm- ur stendur skýr eftir úr baráttunni gegn alnæmisveirunni og ebólu: öll viðleitni okkar og viðbrögð verða að byggja á grunni meginreglna um jafnræði, þ.m.t. varðandi kyn, fjölbreytileika, mannréttindi og alþjóðalög. Við skuldbindum okkur til að verja þessar meginreglur og væntum þess að samstarfsað- ilar okkar deili þeim. Fjölmiðlar, aðgerða sinnar og óháðir sérfræð- ingar hafa allir hlutverki að gegna við að móta viðbrögð okkar. Hrekja falsfréttir Hvert ríki verður að bregðast við COVID-19 með sínum hætti, en við munum halda áfram að mæla með opinni, gagnsærri, ábyrgri og heiðarlegri nálgun. Við munum einnig takast af festu á við villandi upplýsingar og treysta á alþjóðlega samstarfsaðila okkar að gera slíkt hið saman. Byggja betur upp á ný Við höfum tækifæri til að styrkja heilbrigðisöryggi á heimsvísu. Fjár- festing í faraldsfræðilegu eftirliti í öllum ríkjum er augljós upphafs- reitur. En þetta gæti líka verið tæki- færi til að komast burt frá þeirri nálgun sem er svo ríkjandi í dag, að einblína á veikindi og sjúkdóma, og stíga fyrsta skrefið í átt að því að hugsa um tengslin á milli heilbrigðs lífs, heilbrigðra samfélaga og heil- brigðs umhverfis – og verið besta vörn sem við höfum gegn farsóttum í framtíðinni. Langtímahugsun frá byrjun Félagslegar og hagrænar afleiðingar faraldursins verða reiðarslag. Millj- ónir hafa þegar misst atvinnu sína. Við verðum að grípa þetta tækifæri og hugsa til lengri tíma, einbeita okkur að loftlagsmálum og viðnámi gegn loftslagsbreytingum, grænum störfum og orku, betri félagslegri vernd og stjórnunarháttum. Við styðjum ákall aðalframkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna um að gera endurreisnaráætlun til að halda okkur á réttri leið í átt að Heimsmarkmiðum um sjálf bæra þróun fyrir árið 2030 og Parísar- samningnum um loftslagsbreyt- ingar. Við styðjum einnig ákall hans um vopnahlé á heimsvísu. Við skuldbindum okkur til að vinna að þessum markmiðum, og beita og virkja pólitískan vilja, tæknilega þekkingu og fjármuni. Við hvetjum allar þjóðir til að styðja þetta sameiginlega átak. Við eigum þann valkost einan að fást við þenn- an sjúkdóm í sameiningu. Samvinna í baráttunni gegn COVID-19 er hagur okkar allra Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnu- ráðherra Anne-Marie-Trevelyan þróunarmálaráðherra Bretlands Rasmus Prehn þróunarmálaráðherra Danmerkur Ville Skinnari þróunarmálaráðherra Finnlands Dag Inge Ulstein þróunarmálaráðherra Noregs Peter Eriksson þróunarmálaráðherra Svíþjóðar Gerd Müller þróunarmálaráðherra Þýskalands Þúsund og ein nótt Ókeypis um tíma Hlusta.is 1 6 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.