Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 18
Björg Þorláksdóttir hefur mikinn áhuga á tísku og fer gjarnan eigin leiðir í þeim
efnum. „Ég hugsa tísku sem tæki-
færi til þess að tjá sig. Tíska þarf
ekki endilega að vera eitthvað sem
er vinsælt þessa stundina. Fyrir
mér er hún frekar það sem manni
sjálfum finnst f lott og líður vel
í á ákveðnum tíma og það getur
síðan verið eitthvað allt annað á
öðrum tíma. Tíska getur þannig
verið breytileg eftir einstaklingum
og smekk. Klæðaburður getur
líka undirstrikað tilfinningar, ef
maður klæðist fatnaði sem manni
líkar og líður vel í ýtir það undir
sjálfsöryggi, sem sést síðan langar
leiðir,“ segir Björg en hún fékk
snemma áhuga á fötum og stíl.
„Það var alveg ómeðvitað. Ég
á eldri systur sem ég leit upp til
þegar ég var yngri og ég stalst oft
til að fara í föt af henni sem mér
fannst f lott. Stundum sá ég föt í
tímaritum eða á Netinu sem mig
langaði til að eignast og þá dró
ég fram gamalt efni frá mömmu,
Þórhildi Pétursdóttur, og reyndi
að sauma mér eitthvað svipað.
Ég hef alltaf verið skapandi og
finnst gaman að horfa á eitthvað
hversdagslegt sem einhvers konar
listform. Maður getur notfært
sér svo margt sem tækifæri til
þess að tjá sig og fatastíll er eitt af
því,“ segir Björg, sem lagði stund
á grafíska hönnun í lýðháskóla í
Danmörku áður en hún hóf nám í
umhverfis- og byggingarverkfræði
við Háskóla Íslands.
Blómakjólar og blúndur
Björg lýsir eigin fatastíl sem frekar
hefðbundnum, skandinavískum
með 90’s ívafi. „Ég er hrifin af litum
og nota mest víðar, uppháar galla-
buxur og litríkar peysur. Ég er líka
mikið fyrir blómakjóla, mynstr-
aðar skyrtur, kögur og blúndur.
Þannig að stíllinn er sambland af
áhrifum frá hippatímabilinu og úr
öðrum áttum.“
Björg eyðir ekki miklu í föt
heldur reyndir að vera nægjusöm
og nýta það sem hún á í fata-
skápnum. „Stundum nota ég flíkur
ekki í langan tíma en gref þær svo
seinna upp. Ég kaupi mest notuð
föt, eins og á nytjamörkuðum.
Þar leynast gersemar og mér
finnst gaman að hugsa til þess
að fötin eigi einhverja sögu. Ég
fæ oft gamlar flíkur hjá mömmu
minni, eins og t.d. Millet-úlpu og
Don Cano sem voru móðins þegar
hún var ung, og eru aftur komnar
í tísku. Það er hentugt að tískan
fer í hringi. Þegar mig bráðvantar
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Kjóllinn er úr Spúútnik og jakkinn úr Gyllta kettinum. Dr. Martens-skórnir og Lacoste-veskið setja síðan punktinn
yfir i-ið. Björg hefur gaman af því að blanda saman ólíkum klæðnaði en frjálslegum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Uppáhaldstaskan er frá Lacoste.
Framhald af forsíðu ➛
ný föt vel ég vandaðar flíkur sem
endast vel. Ég nota ekki mikið af
fylgihlutum, aðallega eyrnalokka
en ég á mörg pör af sólgleraugum í
ýmsum litum.“
Della fyrir kósí peysum
Uppáhaldslitur Bjargar í klæða-
vali er rauður en hún segir stutt
síðan hún gerði sér grein fyrir því.
„Þá var ég á Spáni með vinkonu
minni og við ætluðum eitthvað
út. Ég klæddi mig í f lýti og fattaði
síðan að ég var ekki bara í rauðu
pilsi og rauðum bol, heldur líka
með rauð sólgleraugu, rauða tösku
með rauðum sundbol í og rautt
naglalakk. Ég áttaði mig á að þetta
væri engin tilviljun því algengasti
liturinn í fataskápnum mínum er
rauður,“ segir hún.
Þegar Björg er spurð hvernig
hún klæði sig dagsdaglega segist
hún yfirleitt vera á síðustu stundu
að velja sér föt og því verði upp-
áhaldsgallabuxurnar og kósí
peysa gjarnan fyrir valinu. „Ég er
nefnilega með algjöra dellu fyrir
kósí peysum þannig að það er
nóg úrval af þeim í fataskápnum.
Síðan nota ég mest svarta North
Face úlpu sem yfirhöfn eða gamla,
rauða Don Cano úlpu af mömmu.
Á sumrin nota ég mest Levi’s-galla-
jakka. Til spari blanda ég saman
einhverju einföldu og skrautlegu
og svo finnst mér gaman að vera
í fallegri yfirhöfn. Kannski vegna
þess að við búum á Íslandi og oftar
en ekki er maður í yfirhöfninni
mest allan tímann. Ég á margar
yfirhafnir sem ég held upp á en í
mestu uppáhaldi er svarti kögur-
jakkinn minn sem ég nota mikið
en hann fékk ég í Gyllta kettinum.
Þegar ég er að fara eitthvað mjög
fínt finnst mér skemmtilegast að
vera í kjól í fallegum lit.“
Amma tískufyrirmyndin
Föt sem Björg er hætt að nota
eignast nýtt líf hjá Rauða kross-
inum eða öðrum nytjamörkuðum.
„Stundum nota ég sköpunar-
gleðina og breyti þeim í eitthvað
nothæft, t.d. hef ég breytt kjól sem
var hættur að passa í pils. Ef fötin
eru alveg ónýt á ég til að klippa þau
í sundur og nota sem tuskur.“
Yfirleitt kaupir Björg föt í
Spúútnik, Gyllta kettinum eða á
fatamörkuðum. „Ég reyni að kaupa
sem mest notað og sneiða fram
hjá „fast fashion“ fyrirtækjum,
þar sem framleiðslan hjá þeim er
mjög mengandi fyrir umhverfið.
Af íslenskum hönnuðum er Hildur
Yeoman í mestu uppáhaldi en
helsta tískufyrirmyndin mín
er amma mín heitin, Guðrún
Sigurðardóttir. Amma klæddist
litríkum drögtum, hælaskóm og
bar áberandi skartgripi. Maður
sá vel að henni leið vel í fötunum
sem hún klæddist og þau voru stór
partur af hennar framkomu. Að
því leyti er hún tískufyrirmynd
fyrir mér því það er langflottast að
klæðast því sem maður er sjálfur
ánægður í,“ segir Björg.
Ég klæddi mig í
f lýti og fattaði
síðan að ég var ekki bara
í rauðu pilsi og rauðum
bol, heldur líka með
rauð sólgleraugu, rauða
tösku með rauðum sund-
bol í og rautt naglalakk.
Kjóll pils, eða buxur? Kjóll.
Blúnda eða leður? Blúnda.
Gull eða silfur? Gull.
Doppur eða köflótt? Köflótt.
Háir hælar eða flatbotna? Flat-
botna.
Þröngt eða vítt snið? Vítt.
Gloss eða varalitur? Varalitur.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R