Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —8 9 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 6 . A P R Í L 2 0 2 0
NÝTT
– Hagkvæm matarkaup
– Heitar og ilmandi
– Ljúffengar og næringarríkar
– Án allra rotvarnarefna
KJARAMÁL Sjö stéttar- og fagfélög
hafa rætt við Lilju Alfreðsdóttur,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, vegna fjölda umkvartana
sem þeim hafa borist frá skjólstæð-
ingum sínum um einelti, atvinnuróg
og samningsbrot af hálfu Íslensku
óperunnar.
Þóra Einarsdóttir söngkona stefn-
ir nú Óperunni vegna vangoldinna
launa við uppfærslu á Brúðkaupi
Fígarós síðastliðið haust. Málið er
ekki einstakt og hafa allir helstu
söngvarar sýningarinnar leitað til
stéttarfélaga vegna samningsbrota.
Málið snýst um að Íslenska óper-
an gerði verktakasamninga þar
sem vísað er í kjarasamning Félags
íslenskra hljómlistarmanna (FÍH)
en hefur ekki greitt samkvæmt þeim
samningi. Steinunn Birna Ragnars-
dóttir óperustjóri segir samningana
bindandi.
„Við teljum að undirritaðir verk-
takasamningar við söngvarana
séu bindandi og rétt að benda á að
heildargreiðslur Íslensku óperunnar
til söngvaranna í Brúðkaupi Fígarós
voru hærri en taxtar FÍH gera ráð
fyrir,“ segir hún.
Þóra segir málið ekki aðeins snú-
ast um greiðslur heldur vinnuálag
sem hafi farið langt fram úr ákvæð-
um samninganna. Hún hneig niður
af álagi á æfingu fyrir sýninguna.
„Þetta var ekki eðlilegt og fór langt
fram yfir öll mörk,“ segir Þóra.
Gunnar Hrafnsson, formaður
FÍH, segir skort á gagnsæi í rekstri
Íslensku óperunnar.
„Sagt er að reksturinn sé í járnum
vegna þess að listamenn séu of dýrir
en við sjáum yfir árabil að laun
þeirra virðast hafa farið línulega
lækkandi. Mér fyndist áhugavert að
ársskýrslur Óperunnar yrðu gerðar
opinberar svo hægt væri að meta
reksturinn. Hvað er til dæmis hlut-
fall stjórnunarkostnaðar og hvað er
hlutfall flytjendakostnaðar?“
Umræður hafa skapast á sam-
félagsmiðlum þar sem fagfólk og
söngvarar hafa svipaða sögu að
segja um reynslu sína af Íslensku
óperunni. Búið er að stofna undir-
skriftalista til stuðnings söngvurum
í kjarabaráttu.
Lilja samþykkti í fyrra að veita
Íslensku óperunni fjögurra millj-
óna króna styrk þremur vikum eftir
að fag- og stéttarfélögin höfðu haft
samband við ráðherrann og kvartað
um vangoldin laun.
Féð sem Íslenska óperan fékk var
ekki til þess að leiðrétta laun söngv-
ara, heldur til að setja upp nýtt verk
eftir Daníel Bjarnason.
Í ráðuneytinu hefur því legið fyrir
vitneskja um óánægju fagaðila með
starfsemi Óperunnar og kjarabar-
áttu söngvara þegar samþykkt var
að veita styrkinn. Óskuðu félögin
eftir því að „ráðstöfun hárra fjár-
hæða af almannafé fari eftir fag-
legum leiðum en sé ekki í höndum
einkaaðila“. – ilk
Kvörtuðu til
ráðherra vegna
Óperunnar
Sjö stéttar- og fagfélög hafa kvartað til mennta-
og menningarmálaráðherra undan einelti,
samningsbrotum og atvinnurógi í Íslensku
óperunni. Söngkona hefur stefnt fyrir vangoldin
laun en óperustjóri segir samninga bindandi.
Meira á frettabladid.is
Hópur ofurhuga lék sér við f lugdrekabrim úti við Gróttuvita á Seltjarnarnesi í rokinu í gærdag. Kapparnir
styðjast við f lugdreka í 25 metra löngum böndum sem þeir eru með festa við fæturna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
HEILBRIGÐISMÁL Ný afeitrunardeild
fyrir börn verður opnuð á Land-
spítalanum í júní. Aðstoðardeildar-
stjóri segir að lengi hafi skort úrræði
fyrir börn og ungmenni sem eru
með vímuefna- og geðrænan vanda.
Deildin verður til húsa í geð-
deildarbyggingu Landspítalans
og pláss verður fyrir tvo sjúklinga.
Deildarstjóri fíknigeðdeildar segir
mikilvægt að börn í fráhvörfum frá
fíkniefnum séu meðhöndluð af heil-
brigðisstarfsfólki. – bdj / sjá síðu 4
Ný deild á LSH
AT VI N N U M ÁL Um 40 prósent
atvinnulausra eru erlendir ríkis-
borgarar og ekki má búast við
miklum brottf lutningi þeirra á
yfirstandandi samdráttarskeiði.
Verður hérlendur vinnumarkaður
því fyrir þyngra höggi en ella vegna
útbreiðslu COVID-19. „Við verðum
því að leysa þennan vanda sjálf,“
segir Ari Skúlason, sérfræðingur
hjá Landsbankanum. – kij / sjá síðu 8
Atvinnuleysi
erlendra mikið