Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 32
Leikfélag Akureyrar fer nýja leið við að velja barnaleikrit til sýningar á næsta leikári. „Í fyrsta skipti á Íslandi, kannski bara í heiminum, virkj- um við beint lýðræði í leikhúsinu og leyfum landsmönnum að ráða. Við leggjum þrjú verk undir dóm áhorfenda og leyfum þeim að velja hvaða verk þeir vilja sjá af þessum þremur á fjölum leikhússins næsta vetur,“ segir Marta Nordal leikhús- stjóri. Þekkt og vinsæl verk Verkin þrjú eru Benedikt búálfur, Móglí, sem er leikgerð upp úr Jungle Book og Fíasól. „Við vildum láta valið standa um þekkt og vin- sæl verk þannig að allir eigi auðvelt með að gera upp hug sinn,“ segir Marta. ,,Verkin standa þá líka jafn- fætis gagnvart hvert öðru. Undir- búningur var mikill áður en þessi þrjú urðu að lokum fyrir valinu en við höfum tryggt okkur réttinn á öllum þessum þremur verkum og vitum að við höfum burði til að setja þau upp. Þetta er líka tilraun til að færa valdið til áhorfenda og leyfa þeim að hafa bein áhrif. Yfirleitt er það leikhússtjóri sem velur verk til sýn- inga í samráði við sitt fólk, en þarna ætlum við að leyfa fólki að ráða val- inu. Með þessu vonum við að áhorf- endum og ekki síst börnum finnist þau eignast hlutdeild í leikhúsinu og að á þau sé hlustað. Þetta er auð- vitað aðallega hugsað fyrir börnin. Þetta er ný hugsun og fersk nálg- un að mínu mati. Ég veit að minnsta kosti engin dæmi þess að þetta hafi verið gert með þessum hætti áður. Við tölum mikið um beint lýðræði í stjórnmálum og hvers vegna að reyna það ekki víðar? Á þessum erfiðu tímum held ég að það verði þakklátt.“ Valið með einu klikki Norðlendingar og landsmenn allir geta tekið þátt í valinu en kosning stendur til aprílloka. „Bæði full- orðnir og börn geta valið verk og ég vona að sem flest börn taki þátt í að velja verk sem þau vilja sjá,“ segir Marta. Til að velja úr þessum þremur leikritum þarf einungis að fara á síðu Menningarfélags Akureyrar; mak.is. „Þetta verður mjög einfalt, engar krókaleiðir, fólk velur verkið með einu klikki. Við tilkynnum svo úrslitin með pompi og prakt í lok apríl og þá fá líka tveir heppnir þátttakendur fjóra miða á þá sýningu sem fær flest atkvæði.“ Frumsýnt eftir áramót Sigurverkið verður ekki sýnt fyrr en eftir áramót „Frumsýning er áætluð í febrúar,“ segir Marta. „Næsta haust gæti orðið frekar ótryggt í leikhús- unum. Maður sér ekki alveg fyrir sér hvernig leikárið verður í ljósi aðstæðna en við vonum bara að allt verði komið í sem eðlilegastan farveg þannig að við getum haldið okkar sýningaráætlunum.“ Þríleikur Ragnars Jónassonar um lögreglukonuna Huldu er „meistaralegur“ og „ekkert minna en tímamótaverk í glæpasög- um samtímans“, segir gagnrýnandi The Times í dómi um þriðju bókina í seríunni, Mistur. Í nóvember síð- astliðnum valdi blaðið Drunga, aðra bókina í þríleik Ragnars, sem eina af fimm bestu glæpaögum ársins og þegar Dimma kom út skipaði gagnrýnandi Sunday Times Huldu á bekk með mögnuðustu tragísku kvensöguhetjum í glæpasögum samtímans. Mistur er glæpasaga mánaðarins hjá The Times. Dómurinn um Mistur birtist í The Times á öðrum degi páska í grein um „bestu glæpasögur apríl- mánaðar“. Gagnrýnandinn hefur umsögn sína á því að vitna í hið heillandi lag glæpaseríunnar Brúin: „Og allt / leitar upphafs síns“ og segir að þessar línur dragi saman inntakið í „meistaralegum þríleik Ragnars Jónassonar sem hófst á Dimmu sem gerist í samtímanum og hélt áfram í Drunga sem gerðist aðallega árið 1997. Mistur færir les- andann aftur til ársins 1987. „Hver hluti hefur að geyma frá- bæra ráðgátu en til þess að njóta þessa frábæra þríleiks til fullnustu verður maður að lesa bækurnar í þeirri röð sem þær koma út. Hann er er ekkert minna en tímamótaverk í glæpasögum samtímans,“ segir gagnrýnandinn. – kb MEÐ ÞESSU VONUM VIÐ AÐ ÁHORFENDUM OG EKKI SÍST BÖRNUM FINNIST ÞAU EIGNAST HLUTDEILD Í LEIKHÚSINU OG AÐ Á ÞAU SÉ HLUSTAÐ. Hvað? Hvenær? Hvar? Fimmtudagur hvar@frettabladid.is 16. APRÍL 2020 Hvað? Myndlist Hvenær? 17.00 Hvar? samkoma.cargo.site Sýningin Samkoma er samstarf meistaranema við Háskóla Íslands og myndlistardeildar Listahá- skóla Íslands og stóð til að opna sýninguna í Veröld – húsi Vigdísar við Háskóla Íslands. Vegna heims- faraldurs og samkomubanns var sýningin færð yfir á vefsvæðið samkoma.cargo.site. Beint lýðræði hjá Leikfélagi Akureyrar Leikfélag Akureyrar býður áhorfendum að velja barnaleikrit til sýningar. Valið stendur um þrjú verk. Kosið er á netinu. Sigurverkið verður frumsýnt í febrúar. Ekkert minna en tímamótaverk Ragnar fær mikið lof frá The Times. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Verk eftir Solveigu Pálsdóttur. Bæði fullorðnir og börn geta valið verk og ég vona að sem flest börn taki þátt í að velja verk sem þau vilja sjá, segir Marta Nordal. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Jaðarlist ahátíðin Reyk jav ík Fringe fer fram í sumar, 4.-12. júlí, en með breyttu sniði. Búist var við um 50 erlendum atriðum, með yfir hundrað listamönnum, en allir erlendir listamenn hafa verið afbókaðir með lifandi atriði, en þess í stað verður þeim boðið upp á að streyma atriðum sínum á sérstakri RVK-Fringe rás. Búist er við að inn- lendir listamenn geti enn sýnt sín atriði á sviði, miðað við að sam- komubann verði ekki í gildi í júlí. Reykjavík Fringe fer fram í þriðja sinn í sumar, en á hátíðinni geta gestir séð alls konar listform, þar á meðal leiklist, kabarett, ljósmynda- sýningar, sirkus, drag, málverka- sýningar og uppistand. Miðaverði er haldið í lágmarki og áhersla er lögð á sköpunargleði og nýstárleika. Um 250 Fringe-hátíðir eru til í heiminum, en sú elsta og stærsta þeirra er hin árlega Edinborgar- hátíð, sem hefur nú verið af lýst í fyrsta sinn í 73 ára sögu hátíðar- innar. Til stóð að halda RVK-Fringe á sjö sýningarstöðum í ár, en vegna aðstæðna verður sýningarstöðum fækkað niður í fjóra. Dagskráin verður kynnt þegar ljóst þykir að lifandi viðburðir geti átt sér stað. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu hátíðarinnar: RVKfringe.is. Jaðarlistahátíð í júlí Jaðarlistahátíð verður haldin í ár. TIL ÞESS AÐ NJÓTA ÞESSA FRÁBÆRA ÞRÍLEIKS TIL FULLNUSTU VERÐUR MAÐUR AÐ LESA BÆKURNAR Í ÞEIRRI RÖÐ SEM ÞÆR KOMA ÚT Í. 1 6 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.