Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 10
Móskarðahnúkar eru tignarlegir tví-buratindar austur af Esju og sjást ágætlega úr Reykjavík. Sá eystri stelur athyglinni, enda í laginu eins og píramídi, en báðir eru ljósir yfirlitum sem skýrist af því að
grjótið í þeim er óvenjuljóst líparít. Í Ofvitanum segir
rithöfundurinn Þórbergur Þórðarson einmitt frá því
þegar hnúkarnir plötuðu hann sumarið 1913. Þetta
var rigningarsumar og hann hafði ráðið sig í máln-
ingarvinnu. Af Skólavörðuholti sýndist honum jafnan
þegar hann horfði til veðurs að morgni dags sem sólin
lýsti upp Móskarðahnúka. Hins vegar rigndi f lesta
þessa sömu daga í Reykjavík og málningarvinna því
ekki í boði. Smám saman rann upp fyrir honum að
ekki væri það sólskin heldur líparítið sem lýsti upp
hnúkana sem hann kallaði „sjálflýsandi maurildi“.
Það er feiknagaman að ganga á Móskarðahnúka en
á milli þeirra og Esju eru Laufaskörð og austan við þá
Svínaskarð sem skilur þá frá Skálafelli. Þar var áður
fjölfarin leið norður á land frá Suðurnesjum. Algeng-
ast er að hefja 6 km langa gönguna á Móskarðahnúka
skammt frá Tröllafossi, nánar tiltekið við Skarðsá. Þar
er göngubrú og merktur slóði sem liggur í norður. Er
gengið undir klettanefi sem heitir Hrútsnef og sneitt
undir lægri tindinn sem er 787 m hár. Hægt er að
ganga fyrst á hann en fleiri stefna beint á þann eystri
sem er 20 m hærri. Í hlíðum hans er svartur drangur
sem stingur skemmtilega í stúf við ljóst líparítið.
Önnur leið á Móskarðahnúka liggur frá bænum Star-
dal, meðfram Skálafelli vestan megin og þaðan upp í
Svínaskarð og beint á eystri tindinn.
Þriðja leiðin liggur frá Möðruvöllum í Kjós og
er þá gengið yfir fjallið Trönu (743 m) sem er áfast
Móskarðahnúkum. Sprækt göngufólk getur jafnvel
gengið áfram á einstigi yfir Laufaskörð á Esju og niður
hana sunnan megin. Allar þessar leiðir má ganga að
vetri til eða á fjallaskíðum en þá verður að gæta sín á
snjóflóðum því bratt er efst og jöklabúnað getur þurft
efst ef færi er hart. Þetta á ekki síst við um einstigið
yfir Laufaskörðin sem getur verið snúið yfirferðar.
Af tindum Móskarðahnúka er mikið útsýni í allar
áttir, m.a. yfir Reykjavík og Esju en í norður blasa
við Baula og Botnsúlur. Til austurs er Skála-
fell í aðalhlutverki og Hengill og Bláfjöll í
suðri. Í góðu veðri má fækka fötum efst
líkt og meistari Þórbergur sem stundaði
gjarnan Mullersæfingar á adams-
klæðum í guðsgrænni náttúrunni.
Maurildi
meistarans
Hér skín sólin sannarlega á eystri og hærri tind Móskarðahnúka – en eins og meistari Þórbergur brenndi sig á lýsir líparítið í þeim jafnvel í rigningu. MYND/PÁLL STEFÁNSSON
Móskarðahnúkar eru mikil útivistarparadís. Hér sést grilla í göngustíginn og Botnsúlur í baksýn. MYND/ÓMB
Hnúkarnir sjást vel úr Reykjavík – sem þýðir að það er frábært útsýni af þeim yfir borgina. Esjan til hægri. MYND/ÓMB
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
1 6 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð