Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 40
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg. ehf DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Kolbeins Marteinssonar BAKÞANKAR buzzador® Eitt sinn trúði ég því, í barns-legri einlægni, að bjartsýni væri mikilvægasta dyggðin sem maður gæti tamið sér til góðs lífs. Reynslan hefur kennt mér annað. Bjartsýni er ágæt en hún er eins og lottómiði rétt fyrir útdrátt, draumur sem fer sjaldnast saman við veruleikann. Verandi Íslendingur með áföll þjóðar í DNA-mengi mínu þá er ég sannfærður um að seiglan (resili- ence á ensku) sé sá þáttur sem gerði þessari þjóð fært að standa upp aftur og aftur þrátt fyrir regluleg stóráföll og hörmungar. Frosta- vetur, skelfileg veður, mannskæðar pestir, náttúruhamfarir með tilheyrandi búhnykkjum og há tíðni barnadauða eru næg tilefni til algerrar uppgjafar. Það gefur auga- leið að bjartsýnn maður á þessum tímum hefur væntanlega neyðst til að endurskoða afstöðu sína. Þó þessar hörmungar heyri for- tíðinni að mestu í dag þá er seiglan enn sá eiginleiki sem gagnast okkur best. Það þarf seiglu til að standa í rekstri þessa dagana þrátt fyrir að starfsfólk sé í leyfi og tekjur nánast engar. Það þarf seiglu til að mæta dag eftir dag í vinnu vitandi að mögulega verði uppsagnir óhjákvæmilegar og þitt starf jafnvel á meðal þeirra sem munu fjúka. Það þarf seiglu til að rísa upp úr rúminu á hverjum degi eftir að maki eða barn eru ekki lengur til staðar. Það er samt hlut- skipti sumra, slík áföll hljóta að setja tímabundna efnahagserfið- leika okkar núna í rétt samhengi. Það eina sem skiptir máli núna er að gefast ekki upp, setja undir sig hausinn eins og langalangafi þinn og -amma gerðu norpandi í koti sínu með dauðar skepnur, borðandi skemmdan mat í sulti, eymd og volæði. Ef þau hefðu ekki þraukað værir þú ekki í hlýju eldhúsi þínu að lesa þennan pistil. Vorið kemur aftur. Seiglan ARIZONA 500 ML 299 KR/STK 598 KR/L Auðvelt að versla á byko.is Það er lítið mál að mála 25% afsláttur af öllu parketi og flísum Verslaðu í vefverslun SENT HEIM og fáðu Innimálning á veggi & loft 20% pottar & pönnur Notalegt í garðinum garðhúsgögn 20% Matar- & kaffistell 25% 20%Tilboðsverð Hekksnyrtir ISIO 3,6V, 1,3 Ah. 12.796 74897861 Almennt verð: 15.995 reiðhjóla- fylgihlutir 20% B ir t m eð fy ri rv ar a um p re nt vi ll ur o g/ eð a m yn da br en gl . Fleiri tilboð á byko.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.