Fréttablaðið - 16.04.2020, Síða 4

Fréttablaðið - 16.04.2020, Síða 4
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla. Úrval af felgum fyrir Jeep® og RAM Upphækkunarsett í Wrangler Upphækkunarsett í RAM Falcon demparar ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK SÍMI 534 4433 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00 ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK. FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI BREYTINGAR Á JEEP®, RAM OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 534 4433 UMBOÐSAÐILI STANGVEIÐI Laxveiðiáin Sandá í Þistilfirði verður frá sumrinu 2021 leigð Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. Eru það talsverð tímamót í stang- veiðiheiminum hérlendis því land- eigendur hafa allt frá árinu 1964 leigt veiðina í Sandá til Þistla sem er lokaður félagsskapur. Eins og aðrar laxveiðiár í Þistil- firði er Sandá þekkt fyrir hátt hlut- fall stórlaxa. Veiðitölur næstliðin ár hafa ekki alveg leikið á lausu því, að undanskildu árinu í fyrra, hefur þeim ekki verið skilað til Veiðimála- stofnunar frá árinu 2015. Sumarið 2019 veiddust þar 292 laxar. Stangaveiðifélag Reykjavíkur kveðst í tilkynningu hafa gert sam- starfssamning til langs tíma. „Það er í einu orði sagt stórkostlegt fyrir SVFR að geta boðið sínum félags- mönnum leyfi í þessari perlu Þistil- fjarðar, sem er í hópi albestu lax- veiðiáa landsins,“ er haft eftir Jóni Þór Ólafssyni, formanni SVFR. „Það er stórkostleg upplifun að veiða í Sandá. Hún er margslungin og fjöl- breytt, því bæði er veitt í tilkomu- miklum gljúfrum, í straumþungum strengjum, guðdómlegum breiðum og löngum, djúpum hyljum.“ – gar Vatnaskil eftir 57 ár í Sandá Sandá leigð Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR NÁMSLÁN Af borganir af náms- lánum munu lækka um 25 þúsund krónur á ári að meðaltali sam- kvæmt tillögum stjórnvalda sem kynntar voru í gær. Alls munu 45 þúsund greiðendur námslána njóta lægri af borgana. Tillögurnar voru unnar af starfs- hópi stjórnvalda og fulltrúa launa- fólks sem skipaður var í tengslum við kjaraviðræður á opinberum vinnumarkaði. BHM fagnar í yfir- lýsingu aðgerðunum enda séu ára- löng baráttumál loks í höfn. Vextir á námslánum verða lækk- aðir úr einu prósenti í 0,4 prósent og endurgreiðsluhlutfall lækkað til samræmis. Þá verður veittur allt að 15 prósenta afsláttur af við- bótargreiðslum og uppgreiðslu lána. Einnig verða ábyrgðir af um 30 þúsund lánum sem eru í skilum felldar niður. Forsætisráðherra segir fjárhags- stöðu Lánasjóðs íslenskra náms- manna sterka og lánþegar njóti nú góðs af því. Kostnaður er metinn á um 14 milljarða króna. – sar Afborganir námslána lækka og ábyrgð felld niður Kostnaður við tillögurnar er metinn 14 milljarðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK DÓMSMÁL Fimm af sjö útgerðar- félögum hafa ákveðið að falla frá málsókn um skaðabætur á hendur ríkinu vegna úthlutunar makríl- kvóta á árunum 2011 til 2018. Eru þetta Eskja, Gjögur, Ísfélag Vest- mannaeyja, Loðnuvinnslan og Skinney-Þinganes. Í yfirlýsingu er ástæðan sögð áhrif COVID-19 far- aldursins á ríkissjóð og allt íslenskt samfélag. Þau tvö félög sem ekki standa að yfirlýsingunni eru Hug- inn og Vinnslustöðin. Kröfurnar hafa valdið mikilli reiði í samfélaginu og hafa verið harðlega gagnrýndar af núverandi og fyrrverandi ráðherrum. Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra talaði um taktleysi og Gylfi Magnús- son, fyrrverandi viðskiptaráðherra, um „Íslandsmet í græðgi“. – khg Fimm hætta við makrílmálsókn HEILBRIGÐISMÁL „Manni finnst svo hræðilegt að hugsa til þess að til séu börn með fíknivanda og margir loka augunum fyrir því en raunin er sú að það eru til börn með fíknivanda og þörfin fyrir þessa deild er virkileg,“ segir Snærún Ösp Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og aðstoðar- deildarstjóri nýrrar deildar sem verður opnuð á Landspítalanum í júní. Deildin er ætluð börnum yngri en 18 ára sem þurfa á afeitrun að halda vegna fíkniefnanotkunar. „Það hefur verið kallað mikið eftir þessu en hingað til hefur ekki verið til neitt svona úrræði fyrir börn og ungmenni sem eru með vímuefna- og geðrænan vanda,“ segir Snærún, en börn sem hafa þurft á afeitrun að halda hafa hingað til farið í afeitrun á Stuðlum, þar sem ekki er starfandi heilbrigðisstarfsfólk. Afeitrun getur verið hættulegt ferli og segir Maríanna Bernharðs- dóttir, deildarstjóri fíknigeðdeildar Landspítalans, að unnið hafi verið að þróun deildarinnar frá því snemma á síðasta ári. „Ég fagna því að það sé verið að opna þjónustu fyrir þennan hóp af krökkum því að vandinn er til staðar og það þarf að meðhöndla hann á réttum stað því að fráhvarf eftir neyslu er líkamlegt og geðrænt ástand og það þarf heil- brigðisstarfsfólk til að meðhöndla það,“ segir Maríanna. „Í fyrra var settur af stað þverfag- legur starfshópur sem hefur unnið að þróun deildarinnar. Í honum sat fólk frá BUGL, Geðþjónustunni, barna- og kvennasviði, barna- læknar og hjúkrunarfræðingar frá Barnaspítalanum svo þetta er mikil samvinna. Þetta er svo verkefni sem okkur var falið og okkur ber skylda til þess að gera það vel, “ segir Marí- anna. Nýja deildin verður á geðsviði Landspítalans, undir fíknigeðdeild- inni, og þar verður pláss fyrir tvo sjúklinga í einu. Gert er ráð fyrir að sjúklingar dvelji á deildinni í einn til þrjá sólarhringa og að þeim lokn- um taki við önnur úrræði. Snærún og Maríanna eru sammála um að mikilvægt sé að heilbrigðiskerfið og félagslega kerfið vinni saman og að í boði séu úrræði fyrir þau börn sem lokið hafa afeitrun. „Ég get ekki lagt nógu mikla áherslu á það hvað við fögnum því að þessi þjónusta verði til staðar fyrir þessi ungmenni og hversu mikilvægt það er að það sé eitthvað sem tekur við og að allir sinni sínu hlutverki. Svo verður nýja deildin í stöðugri endurskoðun af því að við erum auðvitað að gera þetta í fyrsta skipti,“ segir Maríanna. „Það verður forvitnilegt að sjá hvernig þetta mun vinnast. Þarfa- greining bendir til þess að tvö rými séu nóg en kannski sjáum við að þörfin sé meiri og þá skoðum við það,“ segir Snærún. „Það er mikill áhugi á deildinni og þessu málefni og við erum spennt að opna 1. júní.“ Deildin verður til húsa í geð- deildarbyggingu Landspítalans við Hringbraut og er vinna nú í fullum gangi við að breyta kaffistofum í sjúkrarými. „Það er verið að byggja deildina alveg frá grunni og allt fer að verða tilbúið. Þarna voru kaffi- stofur starfsmanna fyrir nokkrum vikum en iðnaðarmenn spítalans eru ótrúlega snöggir,“ segir Marí- anna stolt. birnadrofn@frettabladid.is Ný afeitrunardeild fyrir börn og ungmenni á Landspítala Ný deild verður opnuð á Landspítala við Hringbraut í júní. Þar verða tvö rými ætluð börnum sem þurfa á afeitrun vegna fíkniefnanotkunar að halda. Aðstoðardeildarstjóri segir að kallað hafi verið eftir úr- ræði fyrir þennan hóp. Mikilvægt er að börn í fráhvörfum séu meðhöndluð af heilbrigðisstarfsfólki. Nýja deildin verður til húsa í geðheilbrigðisbyggingu Landspítalans við Hringbraut. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 1 6 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.