Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 20
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Ivanka Trump
hefur líka klæðst
eins flíkum og Kate
Middleton oftar en einu
sinni.
Svo virðist sem
dóttir Bandaríkja-
forseta sé ekki ónæm
fyrir Markle-áhrifunum.
Nýlega benti tískubloggarinn @royalreplimeghan á Insta gram á það að Meghan
Markle og Ivanka Trump hafa
mörgum sinnum sést í líkum
flíkunum.
Meghan Markle er þekkt fyrir
stíl sinn, sem hefur haft mikil áhrif
á tískuheiminn, og svo virðist sem
dóttir Bandaríkjaforseta sé ekki
ónæm fyrir Markle-áhrifunum.
Þessi tiltekni tískubloggari
fjallar um tísku kóngafólksins og
hefur því gott auga fyrir flíkum
sem Markle hefur látið sjá sig í.
Hún bendir á ýmiss konar líkindi
milli klæðnaðar þessara tveggja
kvenna.
Árið 2018 var Markle í svörtum
kjól frá tískumerkinu Black Halo
sem varð mjög vinsælt í kjölfarið.
Ivanka hefur einnig sést í þessum
sama kjól. Þær eiga líka báðar sama
hneppta kjólinn frá Emilia Wick-
stead og hafa báðar látið sjá sig með
sama hatt frá hönnuðinum Philip
Treacy.
Tískhönnuðurinn Misha Nonoo
er vinkona bæði Markle og Trump
og þær mættu báðar í brúðkaup
hennar í Róm í september síðast-
liðnum. Þær hafa líka báðar látið
sjá sig í litríku pilsi sem Nonoo
hannaði.
Þær stöllur hafa líka íklæðst
glæsilegum kjól frá Carolina
Herrera sem Markle klæddist í
myndatöku fyrir Vanity Fair árið
2017. Fleiri stjörnur hafa sést í eins
kjól, þar á meðal Mandy Moore.
Markle og Trump virðast líka
deila dálæti á svipuðum kápum,
sniði og skyrtukjólum.
Markle tók viðtal við Trump
árið 2014 fyrir lífsstílsbloggið sitt,
The Tig, þar sem hún lýsti aðdáun
sinni á velgengi Trump, en þær hafa
aldrei sést saman opinberlega.
Ivanka Trump hefur líka klæðst
eins flíkum og Kate Middleton
oftar en einu sinni. Þær eiga báðar
græna Beulah-kjólinn og Trump
hefur sést í kjól með kraga eftir
Alessandra Rich sem varð vinsæll
eftir að Kate Middleton birtist
opinberlega í honum.
Trump og Markle oft í stíl
Þær Meghan Markle og Ivanka Trump hafa þó nokkrum sinnum látið sjá sig í líkum fatnaði. Svo
virðist sem Ivanka, eða stílistinn hennar, fylgist grannt með tískunni hjá breska kóngafólkinu.
Þessi kjóll frá Black Hole varð mjög vinsæll eftir að
Meghan Markle sást í honum opinberlega og Trump
virðist hafa verið hrifin. INSTAGRAM/ROYALREPLIMEGHAN
Ivanka Trump og Meghan Markle eru báðar hrifnar af
svona kápum. INSTAGRAM/ROYALREPLIMEGHAN
Í litríku pilsi frá hönnuðinum Misha
Nonoo, sem er vinkona þeirra
beggja. INSTAGRAM/ROYALREPLIMEGHAN
Þær eiga báðar hneppta kjólinn frá
Emilia Wickstead.
INSTAGRAM/ROYALREPLIMEGHAN
Svona kápur höfða greinilega til þeirra beggja. INSTAGRAM/ROYALREPLIMEGHAN
Markle og Trump eru líka báðar
hrifnar af því að klæðast skyrtu
kjólum. INSTAGRAM/ROYALREPLIMEGHAN
Þær eru greinilega hrifnar af svipuðum sniðum. INSTAGRAM/ROYALREPLIMEGHAN
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING á Hringbraut
og hringbraut.is
Fylgstu með!
DAG HVERN LESA
93.000
ÍSLENDINGAR
FRÉTTABLAÐIÐ
AÐ MEÐALTALI HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP OKT-DES 2019, 12-80 ÁRA,
ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R