Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 26
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sigurjón Þorbergsson
lést miðvikudaginn 1. apríl.
Jarðarförin fer fram frá kirkju Jesús
Krists hinna síðari daga heilögu að
Ásabraut 2, Garðabæ, 17. apríl nk.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verður fjöldi takmarkaður
við 20 manns. Jarðarförin verður tekin upp og streymt
síðar á netinu. Minningarathöfn verður haldin síðar þegar
aðstæður í þjóðfélaginu leyfa.
Þórunn Gunnþórsdóttir
Þorbergur Pétur Sigurjónsson Amy Sigurjónsson
Jóhannes Elías Sigurjónsson Mitzi G. Sigurjónsson
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón H. Bergs
fv. forstjóri SS og
aðalræðismaður Kanada,
lést á dvalarheimilinu Eir mánudaginn
13. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey.
Jón Gunnar Bergs María Soffía Gottfreðsdóttir
Magnús Helgi Bergs Klara Zelei
Björn Alfreðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður,
faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og vinur,
Þorsteinn Pétursson
tryggingasölumaður,
er látinn. Kistulagning með nánustu
aðstandendum fór fram miðvikudaginn
8. apríl. Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu
verður útför auglýst síðar.
Þökkum hlýhug og góðar kveðjur.
Aðstandendur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Nanna Kolbrún Bjarnadóttir
Bleiksárhlíð 18, Eskifirði,
lést laugardaginn 11. 04. 2020
á Umdæmissjúkrahúsi Austurlands.
Kristinn Guðmundsson
Stefán Kristinsson Helga Katrín Leifsdóttir
Guðmundur Bjarni Kristinsson Hrafnhildur G. Atladóttir
Jóhann Magnús Kristinsson Margrét Karlsdóttir
Ingibjörg Laufey Kristinsdóttir Sigurður T. Sigfússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Úlfur Sigurmundsson
hagfræðingur,
Kópavogstúni 10, Kópavogi,
lést 11. apríl sl.
á hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Minningarathöfn verður haldin síðar.
Sigríður Pétursdóttir
Þóra Sæunn Úlfsdóttir Jóhann Ísak Pétursson
Einar Úlfsson
og fjölskyldur.
Elskulegur sonur minn,
faðir okkar og bróðir,
Gísli Már Sigurjónsson
lést 13. apríl.
Gyða Richter
Kári Gíslason
Alex Birgir Gíslason
Eiríkur Steinarsson
Unnur Atashi Steinarsdóttir
Eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Gísli Gunnarsson
prófessor emeritus,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 7. apríl.
Jarðarförin fer fram í kyrrþey.
Minningarstund verður auglýst síðar.
Sigríður Ingileif Sigurbjörnsdóttir
Birna Bragadóttir
Málfríður Gísladóttir Byrial Rastad Bjørst
Þórunn Ingileif Gísladóttir Michael Cramer Andersen
Sigríður, Jens, Thorvald Gisli, Júlíus, Úlrik og Lauritz
Ástkær sonur okkar,
pabbi minn, bróðir okkar og mágur,
Guðlaugur Sigurgeirsson
Jörfabakka 2,
lést laugardaginn 11. apríl.
Í ljósi aðstæðna verður útförin
aðeins fyrir nánustu aðstandendur en
minningarathöfn verður haldin síðar.
Í undirbúningi er minningarsjóður í nafni Lauga en
tilgangur hans er að styrkja eftirlifandi dóttur hans í
komandi framtíð. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
reikning 513-14-403714 – kennitala: 230281-4599.
Sigríður Guðlaugsdóttir Sigurgeir Þór Sigurðsson
Kolbrá Mjöll Guðlaugsdóttir
Anna Sigurgeirsdóttir Jóhann Loftsson
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir Hlöðver Már Brynjarsson
Sindri Sigurgeirsson Guðrún Lilja Ingólfsdóttir
Sólrún Sigurgeirsdóttir Reynir Jónsson
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Elín Klara Davíðsdóttir
lést á skírdag, 9. apríl sl.,
á hjúkrunarheimilinu Grund. Útför fer
fram í kyrrþey mánudaginn 20. apríl.
Ættingjar vilja þakka starfsfólki
Minni-Grundar góða umönnun.
Svava Ásdís Sigurðardóttir Oddur R. Oddsson
Kristín R. Sigurðardóttir
Davíð Logi Sigurðsson Sigrún Erla Egilsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sveinn Pétur Kjartansson
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
sunnudaginn 5. apríl.
Útförin mun fara fram í kyrrþey.
Helga Stefánsdóttir
Kjartan Sveinsson Anna María Elíasdóttir
Ásgeir Sveinsson Helga Sævarsdóttir
Hanna Lára Sveinsdóttir
Magnús Sveinsson Sólveig Krista Einarsdóttir
Stefán Sveinsson Ragnhildur Sigurbjartsdóttir
Guðmundur Sveinsson Vala Hrönn Guðmundsdóttir
afabörn og langafabörn.
Elskuleg eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir og amma,
Díana Þórunn
Kristjánsdóttir
f. 30. ágúst 1928, andaðist á
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í
Kópavogi þriðjudaginn 14. apríl. Útförin fer
fram í kyrrþey, en minningarathöfn verður auglýst síðar.
Starfsfólki Sunnuhlíðar eru færðar þakkir fyrir alúð og
einstaka umönnun.
Ari G. Þórðarson
Þórður Arason Elínborg G. Sigurjónsdóttir
Kristján M. Arason Andrea J. Mohr-Arason
Ari, Sigurjón, Bjarmi, Benjamín, Elías og Helgi
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þorkell Guðmundsson
Eir, Hlíðarhúsum 3,
lést á Landakoti 3. apríl sl.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Eir öryggisíbúðum
og þeirra sem önnuðust hann á B6 og B4 í Fossvogi.
Einnig þakkir til starfsmanna á K2 Landakoti sem hjúkruðu
honum af mikilli nærgætni í erfiðum veikindum
og heimsóknarbanni.
Erna K. Þorkelsdóttir Ágúst Guðmundsson
Hildur Þorkelsdóttir Atli Viðar Jónsson
Gerður Þorkelsdóttir Torfi Emil Kristjánsson
Fanney Þorkelsdóttir Hafsteinn Þór Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ellefu manna áhöfn skipsins Richelien
bjargaðist giftusamlega eftir að skipið
strandaði á Koteyjarfjöru í Meðal-
landi í Vestur-Skaftafellssýslu þennan
mánaðardag árið 1898. Skipið var gert
út frá bænum Calais í Norður-Frakk-
landi.
Strandmennirnir munu hafa verið
fluttir til Hornafjarðar og þaðan með
skipinu Hjálmari til Lerwick i Skotlandi.
Fargjald þeirra yfir hafið var 1.000
krónur, sem amtmaður Suðuramtsins
greiddi. Aðalreikningnum fylgdu afrit
af uppboðsbók, sjóferðabók in forma,
dómsmálabók og fleira. Einnig bréf til
franska konsúlatsins í Lerwick og skip-
stjórans á Hjálmari.
Nokkur verðmæti komu úr skipinu,
því á aðalreikningi voru 300 boð
seld á 846,10 krónur. Þorlákur Jóns-
son á Fagurhólsmýri er sagður hafa
keypt skipsskrokkinn á 50 krónur. En
kostnaður við strandið hljóðaði upp á
3.396.08 krónur.
Þetta var þriðja strandið á þessu
vori á fjörum Meðallands og úr þeim
björguðust allir, 49 manns. Franska
fiskiskútan Maurice hafði strandað á
Koteyjarfjöru, 6. mars og áhöfnin, tutt-
ugu og fimm manns, komist í land. Úr
því strandi fengust kaðlar og segl, rör,
möstur og laus áhöld, brauð, kartöflur,
flesk og nokkurt magn af cider, víni og
konjaki. Halldór Jónsson í Vík keypti
100 pt. af konjaki á 13,50 krónur.
Þá hafði þýska fiskiskipið President
Herwig frá Geestemünde strandað á
Suður-Steinsmýrarfjöru 29. mars og
áhöfnin, þrettán manns, lifað af. Átta
komust í land, holdvotir, klæðlitlir og
flestir skólausir en frönsk fiskiskúta
hafði bjargað hinum fimm frá sjó.
Ófært var í skipið frá landi en á upp-
boði á því litla sem á land barst úr því
var um að ræða 67 boð sem seldust á
99.60.
Skipbrotsmenn tveggja síðarnefndu
skipanna voru fluttir til Reykjavíkur
eftir aðhlynningu á bæjum í Meðal-
landi.
Heimild: Dynskógar, rit gefið út af
Sögufélagi Vestur-Skaftfellinga 2001.
Þ E T TA G E R Ð I S T: 16 . A P R Í L 18 9 8
Skipið Richelien frá Calais strandaði á Koteyjarfjöru
Strandmenn af Brandenburg sem strandaði 1909. MYND/BYGGÐASAFNIÐ Á SKÓGUM
1 6 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R18 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT