Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 6
FRAKKLAND Eitt ár er liðið síðan Notre Dame dómkirkjan í París varð eldi að bráð. Óhætt er að full- yrða að heimsbyggðin hafi grátið þegar hin 850 ára gamla bygging stóð í ljósum logum. Um tíma leit út fyrir að mann- virkinu fræga yrði ekki bjargað en loks tókst að slökkva eldinn og vonir fóru að glæðast. Gríðar- legar skemmdir urðu á kirkjunni og í raun hafa þær enn ekki verið metnar til fulls. Stærsta turnspíra kirkjunnar hrundi og mannvirkið er í svo slæmu ástandi að lítið má út af bregða svo það hreinlega hrynji ekki. Líklega kemur aldrei í ljós hvað olli þessum menningarlega harm- leik. Helstu getgáturnar snúast um að bálið hafi með einhverjum hætti kviknað út frá viðgerðum sem stóðu yfir á kirkjunni og jafnvel að sígar- ettuglóð sé um að kenna. Þak kirkjunnar er afar viðkvæmt auk þess sem mikil hætta á alvar- legri blýmengun á vinnustaðnum tafði verkið mikið. Svo kaldhæðnis- lega vill til að ein mesta hættan fyrir bygginguna snýst um vinnu- og stuðningspalla utan um kirkjuna sem bráðnuðu að hluta til í elds- voðanum. Losa þarf pallana mjög varlega frá byggingunni og má lítið út af bregða. Eldurinn í kirkjunni var varla slökknaður þegar efnt var til alþjóð- legrar söfnunar til að endurbyggja kirkjuna. Söfnuðust um 850 millj- ónir evra, andvirði um 130 millj- arða, sem sýndi glögglega hversu miklu máli Notre Dame-kirkjan skiptir heimsbyggðina. Enn liggur þó ekki fyrir hversu stór hluti þess- arar upphæðar skilar sér að lokum en aðeins lítill hluti upphæðarinnar hefur verið greiddur. Þá var strax efnt til alþjóðlegrar samkeppni um útlit á nýrri turn- spíru kirkjunnar og hafa nokkrar tillögur litið dagsins ljós. Hafa þær valdið talsverðu fjaðrafoki enda eru sumar tillögurnar framúrstefnu- legar á meðan aðrar eru meira í stíl við upphaflega mannvirkið. Kynna átti vinningstillöguna á fyrri hluta þessa árs auk þess sem gert var ráð fyrir því að lokið væri við að losa áðurnefnda palla frá kirkjunni um miðjan júnímánuð. Þær áætlanir voru þó gerðar áður en kórónavírusinn hóf yfirreið sína um heimsbyggðina. Faraldurinn hefur gert það að verkum að framkvæmdirnar við Notre Dame hafa legið niðri síðan 16. mars og alls óvíst er hvenær þær geta hafist að nýju. Franska þjóðin, og heimsbyggðin öll, hefur um annað að hugsa um þessar stundir en þegar stríðinu við vírusinn lýkur verður haldið áfram að græða hið menningarlega svöðu- sár sem eldsvoðinn olli. bjornth@frettabladid.is Ár liðið frá brunanum mikla í Notre Dame Ár er liðið frá eldsvoðanum í dómkirkjunni frægu Notre Dame í Parísarborg. Uppbygging dómkirkjunnar gengur hægt og í raun hafa skemmdirnar ekki enn verið metnar að fullu. Kórónavírusinn hefur tafið framkvæmdirnar. Fáir eru á ferli við Notre Dame-kirkjuna nú á tímum kórónaveirunnar. Gríðarlegar skemmdir urðu á kirkjunni og í raun hafa þær enn ekki verið metnar til fulls. Boost í skál ... Það má alveg! Afgreiðslutímar á www.kronan.is I samvinnu við: STÆRSTI DANSVIÐBURÐUR NORÐURSINS dansbandsveckan.se SAMFELLDUR DANS Í 7 KVÖLD 6 DANSGÓLF UNDIR ÞAKI SVÍÞJÓÐ, MALUNG, 12.-18. JÚLÍ 2020 82 HLJÓMSVEITIR Pakkaverð í boði frá 75.700 kr. Nánari upplýsingar gefur Gunnar í síma: 863 5100 BRETLAND Frá byrjun mánaðar hafa skemmdarverk verið unnin á nærri fjörutíu 5G-möstrum í Bretlandi. Verkin vinna fylgjendur samsæris- kenningar sem segir að 5G-tæknin tengist COVID-19 faraldrinum. Telja þeir að tæknin hraði útbreiðslu sjúkdómsins eða skaði ónæmiskerfi fólks. Samsæriskenningin náði flugi innan hópa á samfélagsmiðlum. Kenningar af þessu tagi um 5G eru ekki nýjar af nálinni. Fyrir útbreiðslu COVID-19 var því haldið fram að 5G-bylgjur væru skaðlegar fólki og gætu valdið geislaeitrun. Sérfræðingar hafa ítrekað sagt að kenningarnar séu allar uppspuni. „Þetta er algjört kjaftæði,“ sagði Simon Clarke, prófessor í frumu- líffræði örvera, í samtali við BBC. „Orkan sem kemur frá örbylgjum 5G eru mjög litlar og eru engan veg- inn nógu sterkar til að hafa áhrif á ónæmiskerfið.“ Á þriðjudaginn lýsti þáttastjórn- andinn Eamonn Holmes á bresku sjónvarpsstöðinni ITV yfir óánægju sinni með afgreiðslu fjölmiðla á samsæriskenningunni. „Ég get ekki samþykkt það að fjölmiðlar ákveði að eitthvað sé ósatt þegar þeir vita ekki hvort það er satt eða ósatt,“ sagði hann í þættinum. Bresku fjar- skipta- og fjölmiðlastofnuninni bár- ust nærri því 500 kvartanir vegna ummælanna. Stofnunin rannsakar nú hvort Holmes hafi brotið siða- reglur með ummælunum. 5G er fimmta kynslóð farsíma- kerfa. Um er að ræða hraðara net sem ræður við talsvert meiri netum- ferð en 4G. Einnig er 5G oft tengt við snjallvæðingu. Snjallvæðing í dag er aðallega bundin við heimili eða vinnustaði, en aukinn hraði og geta 5G-tækninnar getur meðal annars stutt net sjálfkeyrandi bíla. Vodafone á Íslandi gangsetti fyrstu 5G-sendana á Íslandi í júlí árið 2018. Nýsköpunarverkefni á vegum fyrirtækisins nýta sér tæknina sem meðal annars á að þróa snjallvæðingu borgarsamfélagsins. Nova gangsetti einnig sendi í byrjun árs 2019. – así Skemma 5G-möstur af ótta við eitrun Það var því miður ekki gengið nógu vel um grenndarstöðvarnar. Þorkell Ingi Ingimarsson, verkstjóri hjá Rauða Krossinum Fyrir útbreiðslu COVID-19 var því haldið fram að 5G-bylgjur væru skaðlegar fólki og gætu valdið geislaeitrun. 1 6 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SAMFÉLAG „Það voru greinilega allir að taka til um páskana og við erum núna að vinna í að taka saman páskadótið,“ segir Þorkell Ingi Ingi- marsson, verkstjóri hjá fataverkefni Rauða krossins. „Það var því miður ekki gengið nógu vel um grenndarstöðvarnar. Það voru mjög margir pokar skildir eftir og þeir höfðu annaðhvort verið rifnir upp eða skildir eftir opnir, þá rignir ofan í þá og fötin skemmast. Við fórum samt aukaferð á laugar- daginn til grynnka aðeins á því. Við erum að vinna í að flokka það frá.“ Gerir hann ráð fyrir að flokkuninni á öllu sem kom um páskana ljúki í dag. Alls eru 116 gámar á vegum Rauða krossins sem taka við fötum og skóm af öllu tagi. Þorkell segir að frá því að Góða hirðinum var lokað vegna samkomubannsins hafi verið meira um lítið dót sem sett er í gám- ana. Minni leikföng sem séu heil eru seld í verslunum Rauða krossins en því miður þurfi að henda f lestu. „Þetta endar því miður flest í Sorpu sem er þá bara aukinn kostnaður fyrir okkur,“ segir hann. Þorkell hefur ekki orðið var við neina sérstaka aukningu á fata- magni síðustu vikur. „Þetta er mjög háð veðri. Um leið og það kemur gott veður þá eykst magnið í litlu gámunum.“ Hvetur hann fólk til að bíða með að fara með föt í gáma þegar þeir eru fullir. „Við búum á Íslandi og vitum aldrei hvernig veður kemur næst, ef pokinn rifnar er mikil hætta á að öll fötin eyði- leggist og munið að öllum fatnaði á að skila í vel lokuðum pokum inn í fatagáma Rauða krossins.“ – ab Fólk bíði ef gámarnir eru fullir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.