Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 36
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@ frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is VIÐ STEFNUM AÐ ÞVÍ AÐ GERA ÞETTA VIKULEGA OG Á MEÐAN EIN- HVER NENNIR AÐ HLUSTA Á ÞETTA ÞÁ HÖLDUM VIÐ ÁFRAM. Orkan býður lítrann á lægsta verðinu í öllum landshlutum — án allra skilyrða. LÆGSTA VERÐIÐ Í ÖLLUM LANDS- HLUTUM Bullur sem elta enska bolt ann af ást r íðu engjast margar í til-vistarkreppu eftir að COVID-19 gaf ensku úrvalsdeildinni rauða spjaldið. Birgir Ólafsson, formaður Tottenhamklúbbsins á Íslandi, og Gestur Valur Svansson meðstjórn- andi dóu þó ekki ráðalausir í fásinn- inu og ákváðu að bjarga boltageð- heilsu sinni og væntanlega f leiri Spursara með vikulegu hlaðvarpi. „Okkur langaði að gera eitthvað tengt Tottenham á meðan þetta samkomubann er og engir leikir spilaðir. Þetta er svona okkar til- raun til að reyna stytta boltabullum stundirnar fram að næsta leik,“ segir Gestur Valur og þakkar sínum sæla fyrir að þótt boltinn rúlli ekki sé endalaust hægt að tala um hann því ómögulegt er að segja til um hvenær næst verður flautað til leiks. Nýttu dauðafæri „Við höfðum áður talað um að gera þetta einhvern tímann, að vera með svona þátt vikulega eða á hálfs mánaðar fresti eða eitthvað,“ heldur Gestur áfram og segir þetta hafa legið beint við á þessum dauðu tímum. „Það var bara gráupp- lagt að gera þetta núna þannig að við fórum að skoða hvernig þetta gengur fyrir sig og enduðum á Pod- cast stöðinni sem er náttúrlega bara snilld og þegar við áttuðum okkur á hvað þetta var auðvelt létum við bara vaða.“ Gestur Valur segir þá félaga í raun ekki þurfa að hugsa um neitt nema boltann og gæta þess að hafa um nóg að tala í hljóðnemana sem bíða tilbúnir eftir þeim. „Við pöntum bara tíma, tökum upp og þeir græja allt og redda þessu fyrir okkur á netið þannig að það er hægt að finna okkur á Spotify og f lestum hlaðvarpsveitum undir Spursarar.“ Tilfinningalegt tómarúm Eins og alþjóð veit hefur fólk sem ánetjast enska boltanum og þeim liðum sem þar keppa ríka tilhneig- ingu til þess að gefa sig í sparkið af lífi og sál þannig að upplifunin verður því sem næst trúarleg. Ástríðubullurnar eru því á þess- um velli, eins og víðar, að upplifa fordæmalaust ástand. Gestur tekur sjálfan sig sem dæmi um mann sem stendur frammi fyrir því að ára- tugalangur og jafn taktur tilveru hans hefur verið rofinn. „Þetta er eins og ég segi. Menn eru bara vanir þessu og ótrúlegasta fólk spyr sig nú að því hvað í veröld- inni maður gerði áður en boltinn kom inn í lífið? Það eru engir leikir. Engir! Og það er ekki einu sinni hægt að horfa á íslenska boltann, handboltann eða eitthvað í stað- inn. Það er bara ekkert og maður er búinn að liggja yfir þessu nánast bara hverja helgi síðan maður var tólf ára gamall, eða eitthvað svoleið- is og maður nennir ekki að horfa á einhverja gamla leiki,“ segir Gestur sem hefur fundið sáluhjálpina við hljóðnemann. Sprittaðir Spursarar Þættirnir eru orðnir tveir og Frétta- blaðið truflaði Gest í miðjum undir- búningi þeirra félaga á upptöku fyrir þann þriðja sem ætti að detta inn undir lok vikunnar. „Fyrsti þátturinn fór aðallega í að kynna okkur og hvernig við urðum stuðningsmenn Tottenham og svo framvegis. Annars blöðrum við um allt og ekkert, um Totteham og ensku úrvalsdeildina,“ segir Gestur og lætur fljóta með að viðtökurnar hafi verið fínar. „Við stefnum að því að gera þetta vikulega og á meðan einhver nennir að hlusta á þetta þá höldum við áfram.“ Gestur Valur og Birgir eru vita- skuld ekki einu Spursararnir á Íslandi þannig að einhver gesta- gangur er fyrirsjáanlegur í þætt- inum. „Við ætlum að fá stuðnings- menn í settið til okkar og spjalla um Tottenham og enska boltann. Hjá l ma r Ör n Jóha n ns son, snappar i og skemmtik raf tur, ætlar að koma í næsta þátt. Hann er Tottenham-maður og við erum með allar græjur til þess að taka á móti gestum. Þarna er passað upp á að hafa gott bil á milli og það eru sprittbrúsar úti um allt þarna þannig að þetta er bara gaman.“ toti@frettabladid.is Sprittaðir Spursarar bjarga í horn Stjórnarmenn í Tottenhamklúbbnum hafa brugðist við leikja- leysinu í enska boltanum og bjargað um leið geðheilsu sinni í horn með vikulegu hlaðvarpi sem þeir nefna einfaldlega Spursarar. Spursararnir Gestur Valur Svansson og Birgir Ólafsson, stjórnarmenn í Tottenhamklúbbnum á Íslandi, fara í and- lega sturtu í podcastklefanum, láta dæluna ganga og halda þannig sönsum á meðan enski boltinn hreyfist ekki. 1 6 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.