Fréttablaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 2
Sú aðgerð kostar
ríkissjóð ekki
krónu en gæti hjálpað til að
fá stór verkefni til landsins.
Kristinn Þórðarson, formaður
Sambands íslenskra
kvikmyndaframleiðenda
Veður
Sunnan 10-18 í dag og rigning, en
áfram þurrt norðaustanlands.
Snýst í norðan 3-8 á norðvestan-
verðu landinu seint í dag með
slyddu eða snjókomu og kólnar á
þeim slóðum. Hiti 3 til 10 stig.
SJÁ SÍÐU 36
Mikið fjör á matarmarkaði
Reykjavík Street Food skellti upp matarmarkaði á bílaplaninu við Menntaskólann í Kópavogi í gær. Fólk f lykktist að og gæddi sér á þeim gómsæta
mat sem var í boði. Matarbílar frá fyrirtækinu verða staðsettir við Árbæjarlaug í dag og svo víðs vegar um bæinn næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ekki er rétt sem sagði í blaðinu
í gær að einn starfsmaður
þjóðgarðsins á Þingvöllum hefði
smitast af COVID-19, heldur hafði
viðkomandi orðið fyrir barðinu á
sjúkdómnum á þann hátt að lenda í
sóttkví án þess að vera smitaður.
LEIÐRÉTTING
Millimál í fernu
VÍTAMÍN
& STEINEFNI
PRÓTEIN GLÚTENS LAKTÓSAORKA
ÁN ÁN
COVID-19 Greint var frá því á vef
Landspítalans í gær að einn sjúkl-
ingur hefði látist síðastliðinn sólar-
hring af völdum COVID-19 sjúk-
dómsins sem kórónaveiran veldur.
Um er að ræða níunda andlátið
af völdum COVID-19 hér á landi.
Af þeim sem hafa látist voru sjö á
Landspítala, einn á Húsavík og einn
í Bolungarvík.
Alls hafa 1.754 smitast af COVID-
19 samkvæmt upplýsingum frá því
í gær en greindum tilfellum hefur
fækkað töluvert síðustu daga. 1.224
hafa náð bata eftir að hafa smitast
og eru virk smit 522 talsins. – fbl
Níunda andlátið
vegna COVID
1.754
hafa smitast af COVID-19 og
þar af hafa 1.224 náð bata.
KJARAMÁL Félag framhaldsskóla-
kennara (FF) og Félag stjórnenda
í framhaldsskólum (FS) skrifuðu í
gær undir samkomulag við ríkið um
breytingar og framlengingu á kjara-
samningi. Samningur félaganna
rann út í lok mars á síðasta ári en
verður nú framlengdur til ársloka.
Samkomulagið verður kynnt
félagsmönnum á næstu dögum og
svo borið undir atkvæði þeirra.
Þá lauk í gær rafrænni atkvæða-
greiðslu aðildarfélaga BHM sem
sömdu nýlega við ríkið.
Þrjú félaganna, Félag geisla-
fræðinga, Félag íslenskra náttúru-
fræðinga og Félag lífeindafræðinga,
felldu samningana.
Samningurinn var felldur með
yfirgnæfandi mun hjá Félagi geisla-
fræðinga en rúm 89 prósent kusu
gegn honum.
Hins vegar var samningur sam-
þykktur með 72 til 79 prósentum
atk væða hjá Dýralæknafélagi
Íslands, Iðjuþjálfafélagi Íslands,
Þroskaþjálfafélagi Íslands, Kjara-
félagi viðskipta- og hagfræðinga og
Félagsráðgjafafélagi Íslands. – sar
FF og FS sömdu
til skamms tíma
Framhaldsskólakennarar sömdu
til áramóta. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
COVID -19 Eins og margar aðrar
atvinnugreinar hérlendis hefur
kvikmyndagerð orðið illa úti
vegna faraldursins sem geisar um
heimsbyggðina. Framleiðsla og
þróun fjölmargra verkefna hefur
stöðvast og þar af leiðandi tekju-
streymi. Ef ekkert er að gert er stað-
an grafalvarleg fyrir iðnaðinn.
Um 60 prósent kvikmynda-
framleið enda hérlendis telja sig
ekki geta haldið starfi sínu gang-
andi lengur en í mánuð vegna
skyndilegs tekju miss is. Þetta eru
niðurstöður könn unar sem Félag
kvik mynda gerðarmanna gerði
meðal sinna félagsmanna.
Hagsmunaaðilar hafa því sent
ráðherrum tillögur í nokkrum
liðum um nauðsynlegar aðgerðir
til að bregðast við þessum tíma-
bundna vanda. Þær felast meðal
annars í því að tryggja af komu
verktaka í greininni, styrkja hand-
ritagerð og þróun verk efna, hlaupa
f járhagslega undir bagga með
þeim verkefnum sem voru langt
komin þegar far ald urinn hófst,
endurgreiða virð is aukaskatt vegna
sýninga í VOD-kerfum og ekki síst
hækka endur greiðsluhlutfall vegna
verkefna í kvikmyndagerð.
„Til skamms tíma þá er staðan
erfið en við teljum að með þessum
aðgerðum skapist mikil tækifæri,“
segir Kristinn Þórðarson, formaður
Sambands íslenskra kvikmynda-
framleiðenda.
Hann segist sannfærður um að
kvikmyndagerð geti leikið stórt
hlutverk í efnahagslegri upp risu
Íslands eftir að COVID-19 faraldur-
inn er yfirstaðinn. Þar skipti miklu
máli að hækka endurgreiðslur ríkis-
ins til kvikmyndagerðar. Lagt er til
að end ur greiðslan verði 35 prósent
næstu 18 mánuði. „Sú aðgerð kostar
ríkissjóð ekki krónu en gæti hjálpað
til að fá stór verkefni til landsins,“
segir Kristinn. Slík verkefni skipti
þjóðarbúið gríðarlegu máli.
„Það er óvíst hvenær ferðamanna-
straumurinn til landsins kemst í
samt horf. Þá geta stór erlend kvik-
myndaverkefni fyllt upp í ákveðið
tómarúm,“ segir Kristinn. Hann
segir miklar líkur á því að stórir
erlendir framleiðendur muni horfa
hýru auga til Íslands. „Við höfum
staðið okkur vel í baráttunni gegn
faraldrinum og hér er endalaus
víðátta sem veitir ákveðið öryggi.“
Ekki skemmi fyrir að kvikmynda-
gerðarfólk eyði miklum peningum
á meðan verkefni eru í vinnslu.
„Þetta eru yfirleitt stórir hópar sem
dveljast lengi á landinu og eyða
háum upphæðum í gistingu, uppi-
hald og leigu á margs konar búnaði.
Auglýsingagildi þessara verkefna er
því mikið og verkefnin halda áfram
að gefa af sér eftir að upptökum er
lokið,“ segir Kristinn.
Hann segir að viðbrögð ráða-
manna hafi einkennst af jákvæðni
og áhuga en tíminn sé af skornum
skammti. „Þessar aðgerðir þarf að
ráð ast hratt í. Bæði aðgerðir til þess
að hjálpa þeim sem starfa í þessum
geira sem og að koma fljótt út skila-
boðum um hækkaða endurgreiðslu.
Þannig getum við barist til að fá
þessi stóru verkefni til landsins,“
segir hann. bjornth@frettabladid.is
Mikil tækifæri þrátt
fyrir að staðan sé erfið
Íslenskir kvikmyndaframleiðendur hvetja ríkisstjórnina til að bregðast hratt
við og fjárfesta myndarlega í íslenskri kvikmyndagerð. Formaður Sambands
íslenskra kvikmyndaframleiðenda segir tækifæri í greininni þrátt fyrir vanda.
Kristinn segir stjórnvöld þurfa að bregðast hratt við til að grípa tækifærin.
1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð