Fréttablaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 30
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara við Landsrétt.
Stefnt er að því að skipa í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni
umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. Um launakjör fer
samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016, sbr. lög nr. 79/2019.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 21. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við
4. gr. reglna nr. 620/2010, um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda
um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) núver-
andi starf, 2) menntun og framhaldsmenntun, 3) reynslu af dómstörfum, 4) reynslu
af lögmannsstörfum, 5) reynslu af stjórnsýslustörfum, 6) reynslu af fræðistörfum,
s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar
greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 7) reynslu af stjórnun, 8) reynslu af
öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning
lagasetningar o.fl., 9) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 10) upp-
lýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 11) upplýsingar um tvo
fyrrverandi eða núverandi samstarfsmenn eða yfirmenn sem geta veitt dómnefnd
bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda
og 12) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni
umsækjanda sem máli skipta fyrir störf landsréttardómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma
í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu
12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur
samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda
sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit
af tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa
verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni
umsækjanda til starfa sem landsréttardómari.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 4. maí 2020. Til þess
að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn
berist dómsmálaráðuneytinu með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu,
17. apríl 2020.
Embætti dómara við Landsrétt
laust til umsóknar
Fagval óskar eftir starfsmönnum
Fagval óskar eftir að ráða starfsmann til starfa
við uppsetningu á álhurðum og gluggum.
Eingöngu er leitað er eftir einstakling með reynslu,
annaðhvort faglærðum eða einstaklingi með starfsreynslu.
Fagval er rótgróið fyrirtæki og hefur áratuga reynslu
af smíði á álhurðum, gluggum og sjálfvirkum rennihurðum.
Verkstæðið er þrifalegt og vel tækjum búið.
Vinsamlegast leggið inn umsókn ásamt ferilskrá
á netfangið fagval@gmail.com
Sími 575 0000 • www.sindri.is
Verslanir Véladeild Þjónustudeild
Sindri leitar að rafvirkja og/eða vélvirkja.
Starfið felur í sér í þjónustu á rafmagnsverkfærum.
Sindri er verslunar- og þjónustufyrirtæki
á sviði byggingalausna, festinga, véla,
verkfæra og vinnufatnaðar. Fyrirtækið
var stofnað árið 1933 og er hluti af
Johan Rönning hf.
Hjá félaginu starfa rúmlega 120
starfsmenn í Reykjavík, Kópavogi,
Fjarðarbyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði,
Selfossi, Grundartanga og á Akureyri.
Johan Rönning hefur í 8 ár í röð verið
valið fyrirmyndarfyrirtæki VR og hlotið
nafnbótina fyrirtæki ársins.
Rafvirki
eða vélvirki
Hæfniskröfur:
• Rík þjónustulund og nákvæmni
• Öguð vinnubrögð
• Frumkvæði og metnaður í starfi
• Góð enskukunnátta
• Góð tölvukunnátta
• Reynsla af sambærilegum
störfum kostur
Menntun:
Rafvirki og/eða vélvirki
með þekkingu á rafmagni og vélum.
Upplýsingar um starfið veitir Gunnar
Pétur Róbertsson í síma 575 0000
eða gpr@sindri.is.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. maí.
Hjúkrunarfræðingar óskast
Eir hjúkrunarheimili óskar eftir hjúkrunarfræðingi í stöðu
hjúkrunardeildarstjóra. Um er að ræða deildarstjórastöðu sem
sinnir tveimur einingum heimilisins. Ábyrgð deildarstjóra felst í
faglegri og rekstrarlegri stjórnun starfseininga í samræmi við
stefnu og markmið heimilanna.
Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2020. Umsóknir sendist
rafrænt gegnum www.eir.is undir flipanum „Umsóknir“.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Högnadóttir í síma 552 5757 eða
gegnum netfangið kristinh@eir.is .
Ítarlegri lýsing á störfunum má finna inni á heimasíðu Eirar.
Eir hjúkrunarheimili:
Hjúkrunardeildarstjóri
óskast
BUILDING ENGINEER SUPERVISOR
AND
HEATING, VENTILATION AND AIR
CONDITIONING MECHANIC
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking individuals for
the positions of Building Engineer Supervisor and Heating,
Ventilation and Air Coditioning Mechanic.
The closing date for these postions is April 26, 2020.
Application instructions and further information
can be found on the Embassy’s home page:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through
Electronic Recruitment Application (ERA)
Skráðu fyrirtækið þitt á alfred.is
2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R