Fréttablaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 8
Þeim virðist verða ágengt í málflutn- ingi sínum. Ónefndur breskur erindreki K JARAMÁL Nýr kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) og samninganefndar ríkisins var undirritaður þann 10. apríl síð- astliðinn en þá höfðu hjúkrunar- fræðingar verið samningslausir í rúmt ár. Samningurinn, sem á að taka gildi frá aprílbyrjun á þessu ári til loka mars árið 2023, felur meðal annars í sér launahækkun samkvæmt Lífskjarasamningnum um 17 þúsund krónur á þessu ári, ákvæði um nýja launatöflu, endur- skoðun stofnanasamninga og hækkun desember- og orlofsupp- bótar. Þá felur samningurinn einnig í sér ákvæði um styttingu vinnuviku hjúkrunarfræðinga og umbreytingu verðmæta í vaktavinnu. Fari svo að samningurinn verði samþykktur verður vinnuvika hjúkrunarfræð- inga 36 klukkustundir í stað 40 stunda. Í kynningu á samningnum sem send var félagsmönnum kemur fram að til að hámarksstytting náist verði „grein um matar- og kaffitíma óvirk. Þó verður áfram heimilt að matast en ekki er um formlegt hlé að ræða.“ Mikil óánægja ríkir meðal hjúkr- unarfræðinga vegna nýja samnings- ins og hefur skapast um hann mikil umræða á samfélagsmiðlum. Óánægj- an snýr meðal annars að ákvæði um styttingu vinnuvikunnar á kostnað matar- og kaffitíma og er það upp- lifun margra innan stéttarinnar að eitt ákvæði sé selt fyrir annað. Guðlaug Pálsdóttir, formaður FÍH, segist hafa orðið vör við óánægju félagsmanna sinna en segir hana á misskilningi byggða. Hún segir að hafist hafi verið handa við að kynna samninginn fyrir félagsmönnum og að hún vonist til að þannig takist að vinda ofan af þeim misskilningi. „Við sáum strax mikil viðbrögð,“ segir Guðbjörg. „Það var í rauninni allt endurskoðað við gerð samnings- ins þannig að fólk verður auðvitað að horfa á þennan samning með öðrum augum og setja upp ný gler- augu því að stytting vinnuvikunnar, matar- og kaffitímar eru ekki einu verðmætin í þessum samningi,“ bætir hún við. Verði samningurinn samþykktur tekur ákvæði um stytta vinnuviku ekki gildi fyrr en 1. maí á næsta ári. Óánægja ríkir meðal hjúkrunar- fræðinga um það hversu langan tíma muni taka að virkja ákvæðið en Guðbjörg segir ferlið f lókið. „Þetta skref sem verið er að taka í styttingu vinnuvikunnar er stærsta skref sem hefur orðið á vinnumark- aði í yfir 40 ár og það er sérstaklega f lókið hjá vaktavinnufólki. Þess vegna tekur það ekki gildi fyrr en að svo löngum tíma liðnum. Það þarf að vinna mikla undirbúningsvinnu svo þetta sé hægt,“ segir Guðbjörg. Á samfélagsmiðlum hafa ómað raddir hjúkrunarfræðinga sem tala um skert málfrelsi þegar kemur að nýja samningnum og að tilmæli FÍH hafi verið þau að ræða ekki samninginn opinberlega. Guðbjörg segir að félagsmenn hafi einungis verið beðnir um að halda trúnaði um samninginn við aðra hjúkr- unarfræðinga. „Þetta er enn einn misskilningurinn,“ segir Guðbjörg. „Í kynningarmyndbandi um samninginn sem birt var á læstu vef- svæði bið ég fólk að virða trúnað við aðra hjúkrunarfræðinga um þennan samning svo stéttin fái kynningu á honum áður en hann fer út í sam- félagið, ég kannast ekki við að það sé einhver þöggun í gangi,“ segir hún. Samningurinn var opinberaður félagsmönnum FÍH síðasta mið- vikudag og kynntur félagsmönn- um á fimmtudag. Kosið verður um samninginn í næstu viku. birnadrofn@frettabladid.is Óánægja með nýjan kjarasamning Kosið verður um kjarasamning hjúkrunarfræðinga í næstu viku. Óánægja hefur skapast um samninginn meðal hjúkrunarfræð- inga sem segja vegið að áunnum réttindum og að beint hafi verið til þeirra tilmælum um að ræða samninginn ekki opinberlega. Hjúkrunarfræðingar hafa verið án kjarasamnings í rúmt ár. Kosið verður rafrænt um nýjan kjarasamning þeirra í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Öryggisíbúðir Eirar til langtíma leigu Grafarvogi Reykjavík Eir öryggisíbúðir ehf. Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík.  522 5700 milli 8:00 og 16:00 virka daga. Nánari upplýsingar í síma 522 5700 virka daga milli kl. 8 og 16 eða sendið fyrirspurn á netfangið sveinn@eir.is Nokkrar tveggja og þriggja herbergja vandaðar öryggisíbúðir Eirar til leigu í Grafarvogi, Reykjavík. Eirborgir, Fróðengi 1—11, 112 Reykjavík. Eirarhús, Hlíðarhúsum 3—5, 112 Reykjavík. • Rólegt og notarlegt umhverfi með aðgengi að metnaðarfullri aðstöðu og þjónustu með það að markmiði að einstaklingurinn geti búið lengur heima. • Öryggisvöktun allan sólarhringinn. • Aðgengi að mötuneyti og félagsmiðstöð. • Góðar gönguleiðir í nágrenninu. UTANRÍKISMÁL Nýuppgötvuð gögn frá Þjóðskjalasafni Bretlands sýna að Íslendingar beittu sér í Afríku og Asíu á tímum þorskastríðanna og sögðust vera beittir „nýlendumis- notkun“. Breska dagblaðið Express fann gögnin, þar sem breskir erind- rekar lýsa baráttu sinni við Íslend- inga í þessu áróðursstríði. Vitnað er í breskan erindreka sem sat sem áheyrnarfulltrúi á fundi vís- indanefndar Afríkusamtakanna (sem ekki eru lengur til) árið 1972 í borginni Ibada í Nígeríu. Á þeim fundi hafi íslenskur áheyrnarfull- trúi náð vel til Afríkumannanna. „Þeir (Íslendingarnir) hafa haldið því hér fram að þeir séu að verða fyrir sams konar nýlendumis- notkun og lönd Afríku og Asíu hafa orðið fyrir áður,“ og bætir við: „Þeim virðist verða ágengt í málflutningi sínum.“ Í gögnunum kemur einnig fram að Íslendingar hafi fyrirhugað að senda erindreka á fund sameigin- legrar lögfræðilegrar ráðgjafa- nefndar Afríku og Asíuríkja í Lagos, þáverandi höfuðborg Nígeríu. Þorskastríðin voru þrjú og eru þessi gögn frá upphafi annars stríðsins, 1972 til 1973. Þá færðu Íslendingar fiskveiðilögsöguna í 50 sjómílur og skipstjórar varðskipa hófu að nota vírklippurnar frægu á breska togara. Á þessum tíma litu Bretar á Alþjóðadómstólinn í Haag sem hinn rétta vettvang til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri en samkvæmt gögnunum töldu þeir sig verða að bregðast við áróðri Íslend- inga á öðrum vígstöðvum með því að senda eigin fulltrúa. Það hafi hins vegar gengið illa því að nýlenduspilið hafi virkað vel gagnvart ýmsum Afríku- og Asíu- ríkjum, sem mörg hver höfðu eigin hagsmuni af útfærslu fiskveiðilög- sögunnar. Þessar þjóðir hafi einn- ig talið alþjóðahafréttarsamninga aðeins hannaða fyrir stóru siglinga- þjóðirnar, eins og til dæmis Breta. Fram kemur í gögnunum að í Afríku töldu Bretar líklegast að ná eyrum ráðamanna í Zaír (nú Kongó), Gana og Fílabeinsströndinni. – khg Ísland beitti nýlenduspili óspart í áróðursstríði Íslendingar klipptu net breskra togara í þorskastríðinu. MYND/BJARNLEIFUR Ég kannast ekki við að það sé einhver þöggun í gangi. Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.