Fréttablaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 26
Lilja segir að þau hafi ákveðið þetta með skömmum fyrir-vara og hafi í rauninni verið
búin að gera öll páskainnkaup
þegar hugmyndum kom upp. „Við
ákváðum á miðvikudeginum fyrir
páska að elda úr því hráefni sem
við áttum til en halda okkur við
þemadagana. Venjulega erum við
með heimabakaða pitsu á föstu-
dögum en við færðum hana yfir á
miðvikudag og útbjuggum ítalskt
þema. Settum ítalska tónlist á
fóninn og fengum okkur rauðvín
frá héraði. Venjulega finnum við
lagalista á netinu með ákveðnum
þemum og látum músíkina hljóma
á meðan við eldum og borðum,“
segir hún.
Lilja og Valli, eins og hann er
kallaður, eru mikið útivistarfólk
og þau höfðu ákveðið að fara í
skíðaferð vestur um páskana. Þau
fara venjulega á fjöll þegar færi
gefst en að þessu sinni var ekki í
boði að fara vestur á firði. Hug-
myndin var að fara á fjallaskíði í
Jökulfirði. Þemadagarnir heima
urðu að nægja. Og það tókst vel.
Lilja og Valli kynntust í göngu-
klúbbi og hafa notið þess að deila
sameiginlegum áhugamálum.
Ferðast venjulega mikið innan-
lands með tjald. Hún á þrjú börn
frá fyrra hjónabandi og hann
fjögur svo fjölskyldan er stór þegar
allir koma saman. Einn sonur býr
heima og var sá eini sem fékk notið
þemadaganna um páskana.
„Þegar umræðan fór að snúast
um að ferðast innanhúss um
páskana fórum við að velta fyrir
okkur hvað við gætum gert.
Okkur datt nú ekkert sniðugt í
hug varðandi það að ferðast á milli
herbergja,“ segir Lilja. „Þannig að
við ákváðum að ferðast bara við
eldhúsborðið. Við byrjuðum með
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Áhugamál þeirra falla vel saman, hvort sem það snýst um fjallaferðir, hreyfingu eða mat. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hrísgrjóna-
rétturinn
hennar Lóu í
Lóuhreiðri. Hér
með fiski en í
uppskriftinni er
kjúklingur.
Framhald af forsíðu ➛ Hrísgrjónaréttur Lóu
1 laukur
2 hvítlauksrif
1 paprika
2-3 gulrætur
6-8 sveppir
1 bolli hrísgrjón
2 bollar vatn
2 msk. karrímauk (curry paste í
dós)
1-2 tsk. karrí (sú blanda sem er til
hverju sinni)
Salt
Pipar
Smá chilli-mauk, Salam olek (eftir
smekk)
Olía
1 bakki kjúklingabitar
Kjúklingakrydd
Kjúklingabitarnir eru kryddaðir
með kjúklingakryddinu og eldaðir
í ofni við um það bil 200°C eða þar
til þeir eru tilbúnir.
Á meðan þeir eru að steikjast í
ofninum þá gerum við kryddhrís-
grjónin.
Söxum niður lauk og hvítlauk og
látum mýkjast í olíunni á pönnu.
Bætum síðan niðurskornum
sveppum og gulrótum (má í raun
bara vera það grænmeti sem til
er hverju sinni) út í og steikjum
ítalskt þema á miðvikudeginum
og á fimmtudeginum snerum við
okkur til Indlands. Við drógum
upp dúk sem passaði því þema og
klæddum okkur upp í indverskan
stíl og vorum berfætt. Síðan var
hafist handa við að útbúa ind-
verskan rétt frá grunni, naan
brauð og tilheyrandi. Við áttum
því miður ekki indverskt léttvín
en létum duga það sem til var í
húsinu.
Á föstudeginum langa ákváðum
við að kaupa mat frá veitinga-
húsinu Von í Hafnarfirði en þeir
buðu upp á smalaböku þann dag
og við fórum í pöbbarölt á breskri
grundu. Dúkurinn var tekinn af
borðum enda breskir pöbbar ekki
með dúklögð borð. Einnig settum
við fyrir gluggana til að fá myrkur
inn og kveiktum á kertum. Það var
fín pöbbastemming í húsinu og að
sjálfsögðu drukkum við bjór með
smalabökunni,“ segir Lilja.
„Á laugardeginum ákváðum við
að hafa íslenskt þema með páska-
lambi. Þá var skreytt með íslenska
fánanum og hefðbundnu páska-
skrauti,“ segir hún. „Páskadagur
var síðan spænskur. Þá útbjuggum
við dúk á borðið sem var eins og
spænski fáninn og elduðum vel
kryddaðan fisk. Svo var leikin
tónlist frá Spáni,“ segir Lilja en á
annan í páskum ákváðu þau að
slá af kröfunum og borða afganga.
„Það er hægt að gera margt
skemmtilegt með það sem til er í
ísskápnum hverju sinni.
Þemadagarnir okkar voru
frábær tilbreyting úr því maður
þurfti að vera heima,“ segir hún en
Lilja hefur komið til allra þeirra
landa sem þemað snerist um.
Lilja segir að þau Valli hafi
mjög gaman af því að elda mat
og sömuleiðis að nýta það sem
til er. „Okkur finnst áhugavert
að prófa nýjar uppskriftir og
þær mega alveg vera flóknar og
taka tíma. Annars höfðar einföld
matargerð til mín hversdags, við
erum mikið með rótargrænmeti
og fisk eða kjúkling. Á tímabili
fylgdi ég lækninum í eldhúsinu í
uppskriftunum hans en núna er
ég farin að nota netið og leita bara
eftir því hráefni sem til er heima.
Saumaklúbburinn minn hefur
verið duglegur í gegnum tíðina að
halda alls konar þemakvöld og þá
bjóðum við mökum að vera með.
Þá koma allir með einn rétt og
klæðast búningum. Það er alltaf
mjög gaman,“ segir hún.
Hjónin eru dugleg að fara á fjöll
en þau eru líka öflugir hlauparar.
Lilja segist ekki hafa verið áhuga-
manneskja um útiíþróttir fyrr en
eftir fertugt. „Í raun fór ég ekki
að stunda markvissa hreyfingu
fyrr en eftir fimmtugt. Núna er
hreyfingin fastur liður og við
hlaupum daglega. Einnig höfum
við farið í göngur í nágrenni
Hafnarfjarðar. Við vorum búin
að ákveða að ganga í Ölpunum í
sumar en það verður bara að koma
í ljós hvort það verður hægt,“ segir
Lilja sem gefur hér uppskrift sem
er frá móður hennar, Lóu, sem er
mjög góður kokkur og rak fyrsta
kaffihúsið á Laugaveginum, Lóu-
hreiður, sem margir muna eftir.
„Mamma hefur líklega haft
áhrif á mig varðandi það að búa til
notalega og skemmtilega stemm-
ingu við allar aðstæður. Hún hefur
alltaf verið ótrúlega dugleg og
skapandi, finnur til dúka, kveikir
á kertum, setur tónlist á fóninn og
býr til góðan mat. Hún fékk hug-
myndina að þessum rétti þegar
hún smakkaði paellu, þjóðar-
rétt Spánar, en gerði hann á sinn
hátt og ég hef síðan gert hann að
mínum,“ segir Lilja og hér kemur
rétturinn sem er ætlaður fjórum.
aðeins áfram. Þá er karríinu
og Salam olek bætt við og látið
krauma smá stund í olíunni en
þá er hrísgrjónunum bætt við allt
saman. Hrærið aðeins í blöndunni
og bætið síðan vatninu út í. Papr-
ikan skorin í stóra bita og raðað
ofan á. Þetta er látið krauma við
lágan hita með loki þar til grjónin
eru tilbúin.
Rétt áður en rétturinn er borinn
fram eru elduðu kjúklingabitarnir
lagðir fallega ofan á hrísgrjóna-
réttinn og safanum hellt yfir allt
saman. Best er að bera réttinn
fram í pönnunni.
Þessi réttur er líka mjög góður
með fiski og risarækjum en þá er
fiskurinn kryddaður með sítrónu-
pipar og salti og steiktur upp úr
hveiti. Risarækjurnar eru létt-
steiktar upp úr íslensku smjöri og
nóg af hvítlauk. Þetta er síðan lagt
snyrtilega á hrísgrjónaréttinn og
borið fram í pönnunni.
Við ákváðum á
miðvikudeginum
fyrir páska að elda úr því
hráefni sem við áttum til
en halda okkur við
þemadagana.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R