Fréttablaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 10
Ég hef lagt mikinn metnað í að veiði- bækur Sandár séu réttar og snyrtilega færðar. Arthur Bogason, formaður veiði- félagsins Þistla Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn spáir því að landsframleiðsla Bretlands skreppi saman um 6,5 prósent en eftirlitsstofnun fjármálaráðuneytisins spáir 13 prósenta samdrætti hagkerfisins á þessu ári. BREXIT Þó að gervöll heimsbyggðin sé að kljást við voveiflega drepsótt og efnahagslegar hamfarir sem fylgja henni, atvinnuleysi rjúki upp, fólk sé lokað inni á heimilum sínum og samgöngur milli landa liggi niðri, þá er eitt mál sem stoppar ekki. Brexit. Jafnvel þó að Evrópusambandslöndin og Bret- land séu þau sem verst hafa orðið úti, og Boris Johnson sjálfur sé nýkominn af gjörgæsludeild. Samn- ingaviðræður munu halda áfram á miðvikudag og Johnson heldur fast við sína tímatöflu. 2020 verður árið sem samningarnir verða að nást. Bretland yfirgaf formlega Evr- ópusambandið í lok janúar en framtíðar viðskipta- og réttinda- sambandið er enn á huldu. Margir skýrendur hafa sagt ómögulegt að ná samningum á innan við einu ári, en um áramótin lýkur svokölluðu aðlögunartímabili. Ýmis deilumál eru uppi og einn mesti hnúturinn að leysa er fiskveiðideilan og um hana hverfðist umræðan í janúar og febrúar, áður en COVID-19 setti viðræðurnar á frest. Ekki var annað hægt en stöðva viðræðurnar í einhvern tíma því ríki heimsins þurftu að gera neyð- arráðstafanir. Þá veiktust einnig bæði Johnson og Michel Barnier, aðalsamningamaður Evrópusam- bandsins. Johnson er kominn af gjörgæsludeild og Barnier er nú fyrst að ná sér eftir mánaðarlöng veikindi. Hvað Evrópusambandið varðar þurfa ekki að nást samningar á þessu ári. Bretar mega sækja um frest, til annaðhvort eins eða tveggja ára, en hafa til júníloka til þess að sækja um hann. Þrátt fyrir ástandið sem nú ríkir, beggja vegna Ermarsundsins, tilkynnti nýr fjár- málaráðherra Bretlands, Rishi Sunak, á þriðjudag að ekki yrði sótt um slíkan frest. Meira að segja hörðustu Brexit- sinnar í Bretlandi bjuggust við því að landið myndi taka á sig einhvern efnahagslegan skell eftir útgöng- una. En nú er ljóst að svartsýnustu Brexit-spár eru dropi í hafið miðað við tollinn sem COVID-19 tekur af landinu. Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn spáir því að landsframleiðslan skreppi saman um 6,5 prósent en eftirlitsstofnun fjármálaráðuneyt- isins spáir 13 prósenta samdrætti hagkerfisins á þessu ári. Búist er við því að allt að tvær milljónir Breta verði atvinnulausar, eða 10 prósent landsmanna. Þá er óvissan um rénun faraldursins gríðarleg. Viðræðurnar hefjast að nýju með þremur fjarfundum, 20. apríl, 11. maí og 1. júní. Stefnt er á að Boris Johnson og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, fundi síðan á ráðstefnu um miðjan júní. Óvíst er hvaða áhrif faraldur- inn hefur á viðræðurnar en óum- flýjanlegt er að hann geri það með einhverjum hætti. Margir telja að Bretar muni sækja um frest, þrátt fyrir yfirlýsingarnar, og það er það sem hörðustu Brexit-sinnar á borð við Nigel Farage óttast mest og vara við. kristinnhaukur@frettabladid.is Brexit komið aftur í gang eftir veikindi samningamanna Viðræður eru að hefjast á ný á milli Bretlands og Evrópusambandsins um framtíðar viðskipta- og rétt- indasamband. Bretar segjast ekki ætla að sækja um frest í sumar en margir búast við því vegna COVID-19 faraldursins og tafa á viðræðum. Bæði Boris Johnson og Michel Barnier veiktust illa af veirunni. Johnson flutti ávarp til bresku þjóðarinnar eftir að hann var útskrifaður af gjörgæsludeild. MYND/EPA Deit í kvöld? Heima í stofu! Allt fyrir ostaveisluna eða kósý kvöldið hjá okkur! Afgreiðslutímar á www.kronan.is STANGVEIÐI „Þeir sem ekki þekkja til draga þá ályktun að Þistlar séu annaðhvort að pukrast með upp- lýsingar eða óreiðan alger. Ekkert er fjær sanni,“ segir Arthur Boga- son, formaður Veiðifélagsins Þistla sem hefur haft laxveiðiána Sandá í Þistilfirði á leigu frá árinu 1964. Ekki er rétt sem kom fram í blað- inu á fimmtudag að veiðitölum úr Sandá í Þistilfirði hefði ekki verið skilað til Veiðimálastofnunar árin 2016 til 2018. Í fréttinni var byggt á upplýsingum á vef Landssambands veiðifélaga sem Arthur kveður ekki réttar, veiðitölum hafi verið skilað inn fyrir fyrrgreind ár eins og öll önnur ár. „Ég hef lagt mikinn metnað í að veiðibækur Sandár séu rétt og snyrtilega færðar. Auk þess hef ég haldið utan um gagnagrunn með hverjum einasta laxi sem færður hefur verið til bókar frá árinu 1964 ásamt öllum upplýsingum um hvern fisk. Ég veit ekki um neinn hliðstæðan gagnagrunn um íslenska veiðiá og efast um að mörg dæmi séu yfirleitt til,“ segir Arthur og upplýsir að fjöldi veiddra laxa í Sandá frá árinu 1964 sé 13.589 fiskar. – gar Nærri fjórtán þúsund laxar í tíð Þistla Sandá hefur verið í leigu Þistla frá árinu 1964. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR 1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.