Fréttablaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 66
ÞAÐ ERU SVO MARGIR MÖGULEIKAR HEIMA VIÐ OG Í NÁTTÚRUNNI TIL AÐ HREYFA SIG OG MARGIR LEIDDIR TÍMAR OG ÆFINGAR Í BOÐI Á NETINU. BAKARÍIÐ FRÁ KLUKKAN 09:00 - 12:00 Eva Laufey og Svavar Örn opna Bakaríið alla laugardagsmorgna. Maður sér aldrei eftir því að hreyfa sig Valdís gerir jógamyndbönd sem birtast á YouTube og eru fullkom­ in fyrir þá sem vilja halda sér í formi. Hún segir hreyfingu lykilþátt þegar kemur að góðri andlegri heilsu á tímum sem þessum. Sjálf sigraðist Valdís á slæmum bakverkjum með aukinni hreyfingu og ástundun jóga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Nánar á frettabladid.is Valdís Helga Þorgeirs-dóttir jógakennari tók nýverið upp á því að færa jógakennsl-una yfir á alnetið og birtir nú myndbönd reglulega á YouTube. Fólk hefur því enga afsökun fyrir hreyfingarleysi, þó að landsmenn séu skikkaðir til að halda sig heima eins mikið og mögulegt er. „Ég er stundum kölluð Valla Sport í gríni af vinum og vandamönnum og hef meira að segja gráðuna til að sanna það,“ segir Valdís og hlær. „Ég er með BSc í íþróttafræði frá Háskól- anum í Reykjavík og jógakennara- réttindi frá Jógastúdíó. Ég byrjaði að stunda jóga reglulega fyrir tíu árum og leiddist út í jógakennaranám tveimur árum síðar. Það var í raun alveg óvænt fyrir mér að ég skyldi velja þennan starfsvettvang þar sem mér leið aldrei sérstaklega vel að tala frammi fyrir hóp en þurfti bara heldur betur að komast yfir það hratt, sem gerði mér einungis gott,“ bætir hún við. Áskorun og hugarró Jóga stendur fyrir sameiningu lík- ama, huga og andans, að sögn Val- dísar. „Því er jóga hvort tveggja ástund- un og ástand. Í dag eru til ýmis form af jóga en þau eiga þó ákveðna grunnþætti sameiginlega sem ein- kenna þau flestöll, þar á meðal önd- unaræfingar, stöður og hugleiðslu. Fyrir marga er það huglægi þáttur- inn sem dregur að, en hjá öðrum er það líkamlegi þátturinn og fyrir marga er það blanda af báðu.“ Sjálf segist hún hafa leiðst út í jóga vegna líkamlega þáttarins. „Svo kom þetta huglæga með tím- anum. Ég er háð blöndunni af mýkt og styrk til skiptis og allra möguleik- anna sem maður hefur á dýnunni. Ég tel að jóga hjálpi fólki við að vera betur í tengslum við sjálft sig and- lega og líkamlega,“ segir Valdís. Hreyfingin bjargaði bakinu Sjálf var Valdís ekki mikil íþrótta- manneskja í æsku. „Nei, alls ekki nefnilega. Ég var í íþróttum sem barn og í körfubolta og dansi á unglingsárum en hætti að mestu um 16 ára aldurinn. Þá kom í ljós hryggskekkja hjá mér sem leiddi til þess að ég fór að hlífa bakinu, sem var í raun það síðasta sem ég hefði átt að gera. En ég leiddist út í jóga upp úr tvítugu og byrjaði líka í einkaþjálfun hjá systur minni. Ég fór að finna fyrir aukinni vellíðan líkamlega og andlega. Bakverkir hjá mér fóru að minnka og svo þegar ég byrjaði að æfa eftir aðferðafræði Pri- mal Iceland fyrir þremur og hálfu ári þá hef ég varla fundið fyrir þeim. Nú veit ég hvað þarf að gera til að létta á bakinu og hreyfingin hefur verið árangursríkasta meðalið,“ segir Val- dís. Kýldi á það Það voru tæknilegir örðugleikar sem ollu því fyrir einskæra tilviljun að Valdís stofnaði sína eigin Jógarás á myndbandaveitunni YouTube. „Ég var að taka upp jógatíma fyrir Jógastúdíó og var að reyna að hlaða inn upptökunni af tímanum inn á Facebook-síðuna þeirra en það gekk illa og vildi ekki fara inn. Þannig að eftir nokkrar tilraunir ákvað ég að hlaða því fyrst inn á YouTube og birta það þaðan, þannig að ég eigin- lega bjó óvart til YouTube-rás, það var aldeilis aldrei planið. Þar sem mér fannst eitt sinn erfiðara að koma fram fannst mér tilhugsunin um að taka mig upp á myndband heldur ekkert sérstaklega spenn- andi, en tel að það hafi verið ágætis áskorun fyrir mig að kýla á það bara.“ Hún segist handviss um að hreyf- ing sé lykilatriði til að líða vel á tímum sem þessum. „Nú er einmitt tíminn til að hugsa vel um okkur sjálf, borða næringar- ríkan og góðan mat, njóta rólegu stundanna og hreyfa líkamann dag- lega ásamt því að huga að svefni. Það eru svo margir möguleikar heima við og í náttúrunni til að hreyfa sig og margir leiddir tímar og æfingar í boði á netinu. Maður sér aldrei eftir því að hreyfa sig. Það er gott að leyfa hjartanu aðeins að vinna og losa um líkamann. Stundum þarf ekki meira en að taka nokkrar teygjur og önd- unaræfingar eða jafnvel göngutúr og maður finnur strax mun á sér,“ segir hún. steingerdur@frettabladid.is 1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R42 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.