Fréttablaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 18.04.2020, Blaðsíða 32
Staða skólastjóra Djúpavogsskóla er laus til umsóknar. Djúpavogshreppur auglýsir starf skólastjóra Djúpavogs­ skóla. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastar­ fi, framsækna skólasýn og er tilbúinn að leiða skólann inn í framtíðina samkvæmt gildandi skólastefnu sveitarfélagsins. Djúpavogsskóli er heildstæður sameinaður grunn­ og tón­ skóli með ríflega 80 nemendur frá Djúpavogi og aðliggjandi dreifbýli. Í Djúpavogshreppi eru u.þ.b. 500 íbúar. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið er að finna á heimasíðunni sveitarfélagsins: djupivogur.is Nýr skólastjóri þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. ágúst nk. Helstu verkefni og ábyrgð: • Veita faglega forystu og leiða þróun skólastarfs í grunn­ og tónskóla til framtíðar í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá grunnskóla, aðalnámskrá tónlistarskóla og lög og reglugerðir um grunn­ og tónlistar­ skóla. • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans. • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnu­ tilhögun og starfsþróun. • Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins. • Hafa umsjón með daglegu starfi í lengdri viðveru sem er í boði fyrir 1.­3. bekk frá 13:10 – 16:00. Menntunar- og hæfnikröfur: • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara. Framhaldsmenn­ tun á sviði stjórnunar eða farsæl stjórnunarreynsla. • Færni og reynsla í starfsmannastjórnun, stefnumótun og áætlanagerð. • Hæfni og reynsla í að leiða þróun skólastarfs. • Framúrskarandi hæfni í samskiptum, jákvæðni og metnaður. • Reynsla í fjármálastjórnun kostur. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samninganefndar sveitarfélaga (SNS) og Skólastjórafélags Íslands (SÍ). Næsti yfirmaður er sveitarstjóri. Umsóknarfrestur er til 10. maí nk. Umsóknum skal skila á netfangið sveitarstjori@djupivogur.is. Með umsókn skal skila starfsferilskrá, nöfnum 2 um­ sagnaraðila, stuttri kynningu á umsækjanda og greinar gerð þar sem umsækjandi gerir grein fyrir sýn sinni á skólamál og faglegri reynslu og getu sem nýtist í starfi. Frekari upplýsingar má finna á: djupivogur.is, undir liðnum „Þjónusta.“ Umsækjandi þarf að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Sveitarstjóri gefur fúslega frekari upplýsingar í síma 470­8700 og 843­9889 Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðnin­ gu hefur verið tekin. Réttur áskilinn til að hætta við ráðningu og/ eða auglýsa stöðuna að nýju. Laus störf í Helgafellsskóla Helgafellsskóli í Mosfellsbæ auglýsir lausar stöður haustið 2020 Helgafellsskóli er leik- og grunnskóli og fléttast frístund inn í skólastarfið. Skólaárið 2020-2021 verður 1. – 7. bekkur í grunnskólahlutanum og þrjár leikskóladeildir. Starfsfólk vinnur í teymum og mikil áhersla er lögð á góðan starfsanda meðal nemenda og starfsfólks og fjölbreytta kennsluhætti. Leitað er að menntaðarfullum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna með börnum og hafa mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Þetta verður annað skólaárið sem skólinn starfar og því er þetta spennandi tækifæri til að fá að taka þátt í faglegri þróun og uppbyggingu skólastarfsins. Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Sækja skal um starfið á ráðningarvef Mosfellsbæjar, www.mos.is Lausar stöður:● Umsjónarkennari á yngsta stigióknarkennari á miðstigiHeimilisfræði kennari● Tónlistarken ariSérkennariÍþróttakennari● tuðningsfulltrúiS arfsfólk í frístundDeildarstjóri á leikskóladeild (afleysing þetta skólaár) ● Leikskólakennari Umsóknarfrestur um starfið er til og með 2. maí 2020. Sækja skal um öll störf á www.mos.is/storf. Umsóknir skulu innihalda starfsferilskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Rósa Ingvarsdóttir skólastjóri Helgafellsskóla í síma 694-7377. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni. Leikskólakennari óskast til starfa í Vík í Mýrdal Mýrdalshreppur er vaxandi 750 manna sveitarfélag. Síðastliðin tvö á hefur íbúafjölgun á landinu verið mest í Mýrdalshreppi á landsvísu. Í Vík er öll almenn þjónusta svo sem leik-, grunn - og tónskóli, heilsugæsla, dvalar- og hjúkrunarheimili og góð aðstaða til íþróttaiðkunar. Náttúrufegurð er rómuð í Vík og nágrenni og samgöngur greiðar allt árið. Sutt í góðar göngu- og hjólaleiðir, golfvöllu og motocrosbraut, paradís fyrir útivistarfólk. Ferðaþjónusta er öflug og vaxandi í sveitarfélaginu. Það er margt að gerast á svæðinu og er Vík því áhugaverður staður fyrir öflugt og dugmikið fólk. Leikskólinn Mánaland óskar eftir leikskólakennurum til starfa. Leikskólinn er tveggja deilda leikskóli í Vík í Mýrdal og er fyrir börn á aldrinum 1-5 ára. Mánaland vinnur að því að verða heilsueflandi leikskóli sem er verkefni á vegum Landlæknisembættisins. Við leggjum áherslu á holla og góða næringu auk góðrar almennrar lýðheilsu. Við vinnum einnig með ART og erum með Vináttuverkefnið Blæ á báðum deildum leikskólans. Leikskólinn okkar er í sífelldri þróun og leitum við að leikskólakennurum sem eru tilbúnir til að ganga í liðið okkar og þróa starfið enn meira ásamt því að vera hluti af samfélaginu okkar. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn leiðbeinandi eða starfsmaður með aðra uppeldismenntun. Við bjóðum upp á: · Húsnæðishlunnindi. · Flutningsstyrk. · Tækifæri til að taka þátt í að þróa leikskólastarfið. · Tækifæri til að kenna börnum leikni og að upplifa gleði. · Tækifæri til símenntunar. · Að verða hluti af fersku, áhugasömu og faglegu vinnuumhverfi sem er í stöðugri þróun. · Umfram allt skemmitlegan vinnustað. Frekari upplýsingar um starfið Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/Félags leikskólakennara. Leiðbeinendur falla undir kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og Foss. Um framtíðarstarf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið. Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2020 Umsóknarfrestur til 15. maí 2020 Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorbjörg Gísladóttir sveitarstjóri í síma 487-1210 eða netfangi sveitarstjori@vik.is. Umsóknir ásamt ferilskrá og afrit af leyfisbréfi auk sakavottorðs skal senda á sveitarstjori@vik.is. Vík, mynd eftir Þ. N. Kjartansson Hlutfall: Fullt starf Tegund: Sérfræðingur Agaður og metnaðarfullur skoðunarmaður á rafmagnssviði óskast. Sjá nánar á Job Skoðunarmaður BSI á Íslandi 4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.