Fréttablaðið - 18.04.2020, Page 24
ÉG SEGI STUNDUM AÐ
FERILL SÉ EINS OG GERILL.
HANN VINDUR STATT OG
STÖÐUGT UPP Á SIG OG
ÓLÍKIR HLUTAR HANS
GETA LEITT TIL ÓVÆNTRA
VERKEFNA.
Það síðasta sem ég átti von á í líf inu var að flytja aftur hingað. Lífið kemur manni stöðugt á óvart,“ segir tónskáldið Atli Ör varsson sem
f lutti aftur til Akureyrar frá Los
Angeles fyrir fimm árum ásamt
eiginkonu sinni Önnu.
„Los Angeles er spennandi staður
til að búa á þegar maður hugsar
mest um sjálfan sig, en ekkert endi-
lega þegar þú hefur f leiri til að
hugsa um,“ segir Atli og nefnir sem
dæmi margra klukkutíma akstur á
milli staða í Bandaríkjunum. „Við
ákváðum að fara eitthvert þar sem
lífið er þveröfugt. Það tókst, því á
háannatíma á Akureyri tekur ekki
tíu mínútur að keyra niður í bæ.“
Starfsemi Atla er enn að mestu
leyti í Los Angeles þar sem fjöl-
skyldan heldur enn í tengsl við vini
og samstarfsaðila. „Þetta er frekar
tvískipt líf og kannski er þessi
gluggi, að geta áfram alltaf komist
út í heim, ákveðin forsenda fyrir því
að vera hér áfram.“
Líf í biðstöðu
„Þegar ég áttaði mig á að ég hafði
búið hálfa ævina í Bandaríkjunum
þá fattaði ég að nánast öll mín full-
orðinsár hef ég búið í Ameríku, sem
hefur mótað mig einstakling,“ segir
Atli. „Þegar maður flytur burt svona
ungur og kemur til baka þá er ýmis-
legt sem þarf að skoða í fortíðinni og
það líf sem maður kvaddi á sínum
tíma. Það fór ekkert, það var bara að
einhverju leyti í biðstöðu.“
Skömmu eftir að Atli f lutti aftur
til Íslands tók hann við hlutverki
formanns Hljóðritasjóðs þar sem
hann segist hafa kynnst íslensku
tónlistarlífi upp á nýtt. „Þetta var
eins og að fara á „speed date“ við
íslensku tónlistarflóruna. Ég vissi
að það var mikið gert af góðri tón-
list hérna heima en mig óraði ekki
fyrir að það væri svona mikið.“
Eftir að setu Atla í stjórn sjóðs-
ins lauk fór hann í framhaldinu
að hugsa um mögulegar leiðir til
að nýta þær tengingar sem hann
hafði myndað erlendis til að hjálpa
Að taka sér tíma
Tónskáldið Atli Örvarsson fékk innblásturinn að fyrstu sólóplötu
sinni þegar hann flutti aftur heim til Íslands. Auk plötunnar semur
hann einnig tónlistina fyrir stór verkefni hjá Netflix og Apple TV.
Atli hefur samið tónlist fyrir fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda, nú síðast fyrir væntanlega Eurovision-mynd Netflix og þættina Defending Jacob fyrir Apple TV. MYND/AUÐUNN NÍELSSON
Smáskífan
Húm pt 1 er
komin út og
þar er hægt að
fá smjörþefinn
af væntanlegri
sólóplötu Atla.
íslenskum listamönnum að koma
tónlist sinni á framfæri. Í kjölfarið
stofnaði hann, ásamt Íranum Colm
O’Herlihy, útgáfufyrirtækið og tón-
listarforlagið INNI.
Atli segir eðli fyrirtækja í tón-
listargeiranum hafa breyst mikið.
„Landslagið er allt öðru vísi í dag
sem er að hluta til út af stafrænni
dreifingu á tónlist. Flest fyrirtækin
eru núna í einhvers konar 360 gráðu
hlutverkum þannig að það er minni
aðskilnaður á milli útgefanda,
forleggjara (e. music publisher),
umboðsmanna og svo framvegis.
Hjá okkur er þetta meira og minna
allt undir einum hatti og kannski
mikilvægasta verkefnið að koma
réttu tónlistinni og listamönnunum
fyrir rétt augu og eyru.“
Einlægni að leiðarljósi
Fyrsta útgáfa INNI verður fyrsta
sólóplata Atla sem er væntanleg í
júlí. „Platan hefur lengi dvalið í mér
en innblásturinn og ásetningurinn
kom eftir að ég f lutti heim,“ segir
Atli og bætir við að eina leiðin til að
gera svona verkefni sé að taka sér
tíma. „Ef þú bíður eftir því að hafa
tíma þá gerist ekkert. Þetta er ekki
verkefni sem ég hef verið ráðinn í af
öðrum til að sinna, ég hef eiginlega
ráðið sjálfan mig til að sinna sjálfum
mér.“
Verkefnin sem Atli hefur sinnt
fyrir sjónvarp og kvikmyndir hafa
verið úrvals námskeið í stúdíó-
vinnu, en nú eru áherslurnar aðrar.
„Galdurinn núna er að nálgast ein-
hvers konar einlægni, hjarta og sál,
innra með sjálfum sér. Að gera eitt-
hvað sem er beint frá innstu rótum
þótt ég hafi auðvitað metnað fyrir
því að þetta sé vel útfært.“
„Defending Jacob kom svo til
þegar framleiðendurnir og leik-
stjórinn heyrðu efni af plötunni
sem ég er að fara að gefa út. Það var
eitthvað við þá tónlist sem þeim
fannst vera rétti hljómurinn fyrir
þáttinn, þótt það sé ekki tónlist sem
gerð hafi verið fyrir kvikmynd eða
þætti,“ segir Atli sem þekkir reynd-
ar leikstjóra þáttanna, Morten Til-
dum, persónulega. „Synir okkar
voru skólabræður í Los Angeles og
ég þekkti hann sem fjölskylduvin
löngu áður en ég fór að vinna með
honum.“
Aðspurður seg ist Atli ek k i
hræddur um að vera „typecast-
aður“ í að gera myndir sem inni-
halda nafnið „Jacob“, en hann gerði
tónlistina fyrir endugerð myndar-
innar Jacob’s Ladder fyrir nokkr-
um árum. „Á sínum tíma hélt ég
reyndar að ég yrði fastur í að sinna
verkefnum sem innihéldu orðið
„witch“, og hafði áhyggjur af að
þeim álögum ætti ekkert að létta.
En ég tek alveg sénsinn á þessu með
Jacob,“ segir Atli og hlær, en hann
gerði tónlistina fyrir myndirnar
Season of the Witch og Hansel &
Gretel: Witch Hunters.
Ekki bara heimavinna
Samvinna er lykilatriði þegar
kemur að samstarfi milli tónskálds
og leikstjóra að mati Atla. „Það sem
maður vonast eftir er að þetta sé
raunveruleg samvinna en ekki bara
fyrirsett heimaverkefni sem maður
á að skila fyrir einhvern frest. Ég hef
fundið að eftir því sem menn hafa
meiri trú á sínu eigin efni, þeim
mun opnari eru þeir fyrir að prófa
eitthvað nýtt, og að leyfa tónlistinni
að finna sína réttu rödd sem hæfir
verkefninu.“
Atli segir spennandi að takast á
við ólík verkefni. „Það er gaman að
fara úr miklu drama yfir í að gera
kómedíu, og ekki bara einhverja
kómedíu heldur með Will Ferrell
í fararbroddi. Það segir manni að
maður sé ekkert endilega að festast
í sama fari,“ segir hann og að auki
sé gott að vinna að verkefnum
fyrir aðra um leið og hann sé að
finna sína eigin rödd. „Það getur
lifað góðu lífi samhliða leitinni að
sínum eigin kjarna, og er kannski
bara hollt.“
Arnar Tómas
Valgeirsson
arnartomas@frettabladid.is
Ferlar og gerlar
Atli hefur þó f leiri járn í eldinum
um þessar mundir, en hann sér um
tónlistina fyrir væntanlega Euro-
vision-mynd Netlflix, sem og tón-
listina fyrir sjónvarpsþáttaröðina
Finding Jacob sem er væntanleg á
Apple TV. Atli segir aðdraganda
slíkra verkefna geta verið mis-
jafnan. „Ég segi stundum að ferill
sé eins og gerill. Hann vindur statt
og stöðugt upp á sig og ólíkir hlutar
hans geta leitt til óvæntra verkefna.
Eurovision-verkefnið kom til
þegar David Dobkin leikstjóri
tengdi við stef sem ég hafði gert
fyrir myndina Edge of Seventeen
fyrir nokkrum árum. Ég fór svo á
fund með honum og við náðum vel
saman. Svo hjálpaði það til að ég er
Íslendingur þar sem myndin var að
talsverðum hluta tekin upp hér,“
segir Atli.
1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð