Fréttablaðið - 18.04.2020, Síða 28
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Hljómsveitin Tómas Jóns-son, með Tómas Jónsson sjálfan í fararbroddi, heldur
hljómleika í beinu streymi frá
Mengi kl. 20.00 á morgun. Hljóm-
sveitin leikur lög af nýju plötunni
Tómas Jónsson 3, og fyrstu plötu
sveitarinnar Tómas Jónsson frá
árinu 2016.
Hljómsveitina skipa:
n Guðmundur Óskar Guðmunds-
son: Rafbassi og bassahljóð-
gervill
n Magnús Trygvason Eliassen:
Trommur
n Magnús Jóhann Ragnarsson:
Hljóðgervlar
n Rögnvaldur Borgþórsson: Raf-
gítar og hljóðgervill
n Tómas Jónsson: Hljómborð og
hljóðgervlar
Á nýju plötunni 3, sem kom út í
dag á 27 ára afmæli Tómasar, eru
níu lög. Lögin eru instrúmental
og eru allt frá því að vera rólegt
syntha popp, nýklassík og upp í
harða elektró-industrial tónlist.
„Ég stefni á tónleikahald eftir
samkomubann með einum eða
öðrum hætti. Þess vegna lít ég ekki
á streymistónleikana sem eigin-
lega útgáfutónleika þó að þeir séu
vissulega beintengdir útgáfunni,“
segir Tómas, en hann lofar áhorf-
endum góðri skemmtun, hafi þeir
á annað borð gaman af músík.
Tómas er píanó- og hljómborðs-
leikari sem býr ásamt fjölskyldu
sinni í Þorlákshöfn. Hann hefur
leikið með mörgum af bestu og
þekktustu tónlistarmönnum
Íslands en hann hóf ungur að spila.
Hann hefur ferðast um heiminn
með mönnum eins og Ásgeiri
Trausta og Júníusi Meyvant auk
þess að ferðast með sinni eigin
hljómsveit AdHd.
Tómas samdi sjálfur og útfærði
alla tónlistina á nýju plötunni. „En
hljómsveitin spilar inn á upp-
töku á þeim stöðum sem það á
við. Þegar tónlistarmenn spila inn
á upptökur er það þó langoftast
þannig að þeir setja sjálfir sinn
stíl og sitt „sánd“ og hugmyndir í
músíkina,“ útskýrir Tómas.
Platan var að mestu tekin upp
á Íslandi en líka í rútu á ferð um
Skemmtun fyrir alla í beinu streymi
Vegna útgáfu nýrrar plötu ætlar tónlistarmaðurinn Tómas Jónsson ásamt hljómsveit að streyma
tónleikum frá Mengi á morgun. Platan nefnist Tómas Jónsson 3 og er önnur plata sveitarinnar.
Tómas spilaði á Megasartónleikum Möggu Stínu í febrúar. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Nýja platan
ber nafnið 3.
Plötuumslagið
hannaði Viktor
Weishappel.
Ameríku og Evrópu. „Ég var á tón-
leikaferðalagi með Ásgeiri Trausta
og við vorum með stúdíó aftast
í rútunni með ótrúlega fínum
græjum. Það var þó oft pínulítið
flókið að taka upp því rútan var
yfirleitt á ferð með tilheyrandi
hristingi og hávaða,“ segir Tómas
spurður að því hvernig stóð á því
að hluti plötunnar var tekinn upp
í rútu.
Tónleikarnir á morgun eru hluti
af tónleikaröðinni Tómamengi,
sem Mengi stendur fyrir á netinu
á meðan samkomubannið varir.
Frjáls framlög eru á viðburðina
sem renna að meirihluta til lista-
mannanna samkvæmt tilkynn-
ingu frá Mengi.
Hægt er að greiða framlög:
n Með því að hringja í 901-7111
(1.000 krónur)
n Með millifærslu á Kass í núm-
erið 865-3644
n Með PayPal millifærslu á
payment@mengi.net
Hefðbundið miðaverð á tón-
leika í Mengi er 2.000 krónur en
listamennirnir og Mengi þakka
kærlega fyrir öll framlög. Hægt
verður að fylgjast með streyminu
á mengi.is og visir.is.
Tómas lofar öllum
skemmtun sem á
annað borð hafa gaman
af tónlist.
HJÓLABLAÐ
Föstudaginn 24. apríl gefur Fréttablaðið út sérblaðið Hjólablað.
Í þessu skemmtilega blaði er fjallað um allt sem viðkemur hjólreiðum á Íslandi.
Allir sem stunda hjólreiðar að einhverju marki munu finna áhugavert efni í blaðinu.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir
Arnar Magnússon sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5652 / arnarm@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryg u þér gott uglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R