Fréttablaðið - 18.04.2020, Qupperneq 62
GUÐRÚN HEFUR VERIÐ
EINSTAKUR MANN-
ÞEKKJARI OG VEIGRAR SÉR
EKKI VIÐ ÞVÍ AÐ BÚA TIL
SÉRKENNILEGAR PERSÓNUR
SEM ÞÓ VERÐA BRÁÐLIFANDI
MEÐ ÖLLUM SÍNUM KOSTUM OG
GÖLLUM.
Hlíðasmári 6
201 Kópavogur
sími 510 7900
201@fastlind.is
Miklaborg fasteignasala
Lágmúla 4, 108 Reykjavík
miklaborg@miklaborg.is
5697000
201.is
Nýjar íbúðir
Leiksvæði og
opnir garðar
Hleðslustaðir fyrir rafbíla
við hús og í hverfi
Yfir 100 verslanir
í göngufæri
Skólar og leikskólar
í göngufjarlægð
Góðar og öruggar
göngu- og hjólaleiðir
Stutt að samgönguæðum
og í almenningssamgöngur
Miðsvæðis á
höfuðborgarsvæðinu
Snjöll hönnun
og lausnir150 íbúðir seldar
í 201 Smára
Engan þarf að undra að 201 Smári sé orðinn
nýtt heimili fjölmargra einstaklinga á svo
skömmum tíma því íbúðirnar eru ríkulega
búnar snjalllausnum og þægindum.
Þá er umhverfið fallegt og þaulhugsað, góð
tenging við göngu- og hjólabrautir, frábært
aðgengi að almenningssamgöngum, sorphirða
og flokkun í sérflokki og útisvæðin glæsileg
og örugg. Hverfið sjálft er rótgróðið og allar
nauðsynjar í göngufæri.
Nú eru til sölu eignir í öllum stærðum og
gerðum fyrir einstaklinga eða fjölskyldur
með mismunandi þarfir. Til afhendingar 2020.
Ítarlegar upplýsingar má
finna á www.201.is
Tengdadóttirin I – Á krossgötum, bók Guð-rúnar frá Lundi, hefur verið endur útgef in. Hún kom fyrst út í þremu r bindu m á
árunum 1952-54 og bindin í endur-
útgáfunni verða sömuleiðis þrjú.
„Hún hefur ekki verið endurútgefin
síðan, þannig að eðlilega er þörfin
orðin mikil eftir vinsældir Dala-
lífs,“ segir Silja Aðalsteinsdóttir
sem hafði umsjón með útgáfunni,
en hún kom einnig að endurútgáfu
Dalalífs fyrir nokkrum árum.
Fljót að taka boðinu
Spurð um áhuga sinn á bókum Guð-
rúnar segir Silja: „Bækur Guðrúnar
frá Lundi voru ekki til heima hjá
mér þegar ég var krakki og þegar
ég eltist var ekki í tísku í mínum
hópi að lesa hana þannig að ég var
alveg ófróð um þessi verk þegar
Miskunnarlaus og skilningsrík Guðrún frá Lundi
Tengdadóttirin eftir Guðrúnu frá Lundi hefur verið endurútgefin. Bindin munu verða þrjú talsins.
Silja Aðalsteinsdóttir hafði umsjón með útgáfunni og hreifst af verki sem hún segir mikið og merkilegt.
Með söguþræðinum fáum við breiða samfélagslýsingu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Guðrún frá Lundi. Verk hennar njóta enn mikilla vinsælda lesenda.
stjarna Guðrúnar fór að rísa á ný
fyrir nokkrum árum. Í framhaldi
af því fékk ég það hlutverk að koma
Dalalífi út á ný, fara vandlega yfir öll
fimm bindin og laga það sem þurfti
að laga – helst án þess að setja nýjar
villur inn í staðinn! Skemmst er frá
því að segja að ég varð stórhrifin af
þessu mikla og merkilega verki og
þegar mér bauðst að gera það sama
við Tengdadótturina sem jafnan er
talin með Dalalífi sem hennar besta
verk þá var ég fljót að taka boðinu.“
Silja rekur söguþráðinn: „Sagan
gerist í búsældarlegri norðlenskri
sveit og segir frá ungum, allslausum
sjómanni af Suðurnesjum, Þorgeiri,
sem þangað kemur sem vinnu-
maður. Hann er glæsimenni og
vekur ástir dóttur ríkasta bóndans
í sveitinni. Hann kvænist henni þó
að hann elski hana ekki og verður
sjálfur auðugur og valdamikill – en
ekki hamingjusamur. Þegar sonur
hans vex úr grasi finnst Þorgeiri
sjálfsagt að hann hagi sér eins, taki
ástum vellauðugrar konu úr næstu
sveit þó að hann sé ekki hrifinn af
henni og hafi auðvitað ekki þörf
fyrir meiri auð. Enda þrjóskast
sonurinn við, föðurnum til sárrar
gremju, og átökin verða hörð og tví-
sýn. Með söguþræðinum fáum við
breiða samfélagslýsingu og innsýn
í líf annarra íbúa sveitarinnar eins
og jafnan hjá Guðrúnu.“
Einstakur mannþekkjari
Spurð hvort verkið skeri sig að ein-
hverju leyti frá öðrum bókum Guð-
rúnar eða sé dæmigert fyrir hana
segir Silja: „Það er dæmigert að efni
og efnistökum en persónusköpunin
er afskaplega vel unnin, jafnvel fjöl-
skrúðugri en í Dalalífi. Guðrún
hefur verið einstakur mannþekkj-
ari og veigrar sér ekki við því að búa
til sérkennilegar persónur sem þó
verða bráðlifandi með öllum sínum
kostum og göllum.“
Árin hafa ekki slegið á vinsældir
bóka Guðrúnar, þær heilla enn. Um
ástæður vinsælda hennar segir Silja:
„Ég held að það sé einmitt fólkið
hennar sem er svo ótrúlega gaman
að kynnast og fylgjast með í blíðu
og stríðu. Þetta fólk þráir gott líf,
ást og hamingju eins og við öll en
það er breyskt, það leitar oft langt
yfir skammt og sér ekki gæfuna þótt
hún blasi við því. Þó að sögurnar
hennar séu stundum kallaðar ástar-
sögur er það svo að heitasta ástin er
oftast í meinum hjá Guðrúnu og þá
er tvísýnt um endinn.
Í Tengdadótturinni er hún eink-
um að sýna afleiðingar þess að taka
auð og völd fram yfir allt annað en
um leið passar hún að við skiljum
ástæður þeirra sem svo kjósa. Hún
er í senn miskunnarlaus og skiln-
ingsrík gagnvart fólkinu sínu og það
er svo vekjandi og skemmtilegt.“
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING