Feykir - 25.10.2017, Blaðsíða 1
Framsóknarflokkur fær mest fylgi
samkvæmt könnun sem Feykir.is
stendur fyrir en um klukkan 10 í
gærmorgun voru alls 855 búnir að
svara því hvaða flokk viðkomandi
ætlaði að kjósa. Rétt er að taka
fram að könnunin, sem ekki gefur
vísindalega niðurstöðu, stendur
fram að miðnætti á fimmtudag og
á efalaust eftir að breytast
eitthvað.
Samkvæmt könnuninni (staða kl. 10,
þriðjudag 24. okt.) fengi Framsóknar-
flokkur 32% atkvæða, Píratar 22%,
Sjálfstæðisflokkur 15%, Miðflokkurinn
13%, Vinstri græn 9%, Flokkur fólksins
4% og Björt framtíð og Viðreisn sitthvort
prósentið. Þetta sýnir að Framsóknar-
flokkur er með mikið forskot á aðra
flokka hjá lesendum Feykis.is.
Skessuhorn stendur einnig fyrir
könnun á sínum vefmiðli og skömmu
fyrir hádegi í gær, 24. október voru 1.344
búnir að greiða atkvæði. Þar stendur
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur með 22%
atkvæða, Framsókn 18%, Pír-atar 15%,
Vinstri græn 13%, Miðflokk-urinn 10%,
Samfylking 7%, Flokkur fólksins 3%,
Viðreisn 2% og Björt framtíð með1%
atkvæða. Óákveðnir eru 8% og 1% ætla
ekki að kjósa.
Félagsvísindastofnun spurði um kom-
andi Alþingiskosningar í þjóðmála-
könnun sem fram fór dagana 16. - 19.
október sl. Þar mældist Sjálfstæðis-
flokkurinn (25%) og Vinstri græn (23%)
með mest fylgi á landsvísu og
Samfylkingin kom næst með 16%. Fylgi
Miðflokksins jókst frá könnun þar áður
og mældist nú tæp 10%., Píratar 8%,
Skoðanakannanir fyrir Alþingiskosningarnar 2017
Sjö flokkar með mann á þing
Myndin hér að neðan og skífuritið sýna stöðuna í könnun Feykis á þriðjudaginn kl. 10. MYND: FEYKIR.IS
40
TBL
25. október 2017
37. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
„
BLS. 10-11
BLS. 18
Svipmyndir frá opnun
próteinverksmiðju
Fjöldi gesta
við opnun
Heilsupróteins
BLS. 16
Pungar og pelastikk
í flutningi Frásögu í
Menningarhúsinu Miðgarði
Raunir trillukarla
í tali og tónum
Ástrós Elísdóttir á Skaga-
strönd svarar Rabb-a-babbi
Eggið best þegar
það kennir
hænunni
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227
Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir
Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
www.lyfja.is
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Þú hringir í síma 540 2700
Framsókn 7%, Viðreisn 6%, Flokkur
fólksins 3% og Björt framtíð2%.
Samkvæmt þessum niðurstöðum
Félagsvísindastofnunar komast sjö flokk-
ar með mann á þing, Sjálfstæðisflokkur-
inn 17, Vinstri græn 16, Samfylkingin 11,
Miðflokkurinn 6, Píratar 5, Framsóknar-
flokkurinn 5 og Viðreisn 3 þingmenn.
MMR gerði könnun dagana 20. til 23.
október en þar mældist Sjálfstæðis-
flokkurinn með stuðning 22,9% kjósenda
og Vinstri græn komu þar á eftir með
19,9%. Fylgi Miðflokksins mældist 12,3%,
Framsóknar 8,6%, Viðreisnar 5,5%,
Flokks fólksins 4,7%, Bjartrar framtíðar
1,8% en fylgi annarra flokka 1,3%
samanlagt.
Stuðningur við ríkisstjórnina jókst
milli mælinga. Kváðust 25,7% styðja
ríkisstjórnina nú samanborið við 23,8% í
síðustu könnun. /PF
X2017