Feykir - 25.10.2017, Blaðsíða 15
X17 AÐSENT Eva Pandora Baldursdóttir skrifar
Um gagnsæi, spillingu, traust og samvinnu
Þegar gagnsæi og traust almennings
hefur verið aukið fylgir því
óhjákvæmilega aukið traust og
samvinna milli ólíkra
stjórnmálaflokka inni á
þingi. Allir stjórnmála-
flokkar ættu nefnilega að
vera að vinna að sama
markmiðinu: að bæta hag
almennings í landinu. Við
höfum ef til vill ólíka sýn á
hvernig er best að standa
að því en það er einmitt
ástæðan af hverju það er
mikilvægt að hafa
breiðan, ólíkan hóp
fólks á Alþingi.
Aðeins er liðið rúmlega ár síðan ég steig
mín fyrstu skref í stjórnmálum og varð
oddviti á lista Pírata í Norðvestur-
kjördæmi. Á sama tíma er ég einnig að
heyja mína aðra kosningabaráttu. Lífið
getur verið svo furðulegt stundum en
fyrir ári síðan hefði mér aldrei dottið í
hug að við Íslendingar værum á leiðinni
inn í stjórnarkreppu sem
yrði til þess að kjörtímabilið
yrði stutt, enn og aftur.
Segja má að hér á landi hafi
eiginlega verið viðvarandi
stjórnarkreppa síðan í
hruninu. Eftir hrunið
breyttust nefnilega stjórn-
málin. Traustið hvarf.
Traust milli ólíkra stjórn-
málaflokka sem og traust
almennings til Alþingis.
Ekki var lengur hægt að
einfaldlega treysta og trúa
því að ráðamenn þjóðarinnar væru að
vinna að hag almennings og störf
stjórnmálamanna voru, því miður, ekki
yfir allan vafa hafin.
Þetta er helsta ástæðan af hverju ég
vil bjóða fram krafta mína á Alþingi og
af hverju ég geri svo undir merkjum
Pírata. Helstu áherslur Pírata eru að
boða gagnsæi og ábyrgð í stjórnmálum
og stjórnsýslu, berjast gegn spillingu,
auka beint lýðræði þegar það býðst og
vernda borgararéttindi og einstaklings-
frelsi. Ef stjórnmálin og stjórnsýslan
væru gagnsæ og almenningur hefði
aðgang að upplýsingum um hvaða
ákvarðanir stjórnvöld taka og hvernig
staðið er að þeim ákvörðunum myndi
traust almennings til Alþingis aukast,
því ákvarðanataka og aðgerðir stjórn-
valda væru einfaldlega hafin yfir vafa
um spillingu og frændhygli. Þetta ætti að
vera fyrsta skref nýs þings: auka gagnsæi
til að auka traust.
Fulltrúalýðræðið virkar mjög vel ef
rétt að því er staðið. Þeir ólíku
einstaklingar sem veljast inn á þing
munu ef til vill aldrei allir vera sammála
um einstaka málefni og því er mikilvægt
að alþingismenn hafi þann kost að virða
skoðanir annarra þótt þær samræmist
ekki sínum eigin, taka upplýstar
ákvarðanir byggðar á gögnum og vinna
saman á lausnamiðaðan hátt. Skotgrafar-
og rifrildispólitík er orðin löngu úrelt.
Það er tími til kominn að Alþingi rísi
upp úr gamla leikskólaleiknum þar sem
heyrist „Ég er með bláan og þú ert með
bláan og þá getum við leikið. Hann er
með grænan og hún er með rauðan og
þá mega þau ekki vera með.“ og segjum
frekar „Ég er með gulan, þú ert með
rauðan, hann er með grænan og hún er
með bláan. Komum öll og búum til
regnboga saman!“
Eva Pandora Baldursdóttir
Þingmaður og oddviti Pírata
í Norðvesturkjördæmi
Auglýsing um
skipan í kjördeildir
í Sveitarfélaginu Skagafirði
Við kosningar til Alþingis sem fram fara laugardaginn
28. október nk. er skipan í kjördeildir sem hér segir:
Kjördeild í Félagsheimilinu Skagaseli,
þar kjósa íbúar fyrrum Skefilstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjördeild í Bóknámshúsi FNV,
þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs- og Rípurhrepps
– kjörfundur hefst kl. 09:00
Kjördeild í Félagsheimilinu Árgarði
þar kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjördeild í Grunnskólanum að Hólum,
þar kjósa íbúar fyrrum Hóla- og Viðvíkurhrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Höfðaborg Hofsósi,
þar kjósa íbúar fyrrum Hofshrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Grunnskólanum á Sólgörðum,
þar kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps – kjörfundur hefst kl 12:00
Kjördeild í Varmahlíðarskóla,
þar kjósa íbúar fyrrum Staðar- og Seyluhrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki,
kjörfundur hefst kl. 13:00
Kjörfundi má slíta 8 klst. eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að
kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði.
Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er sammála
um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.
Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00
Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumanni Norðurlands vestra á Sauðárkróki
til kl. 15:00 virka daga fram að kjördegi og kl. 16:00-18:00 á kjördag þ. 28. október 2017.
Opið verður til kl. 19:00 á sýsluskrifstofunni á Sauðárkróki fimmtudagana 19. og 26. október
Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV.
Yfirkjörstjórn
X17 AÐSENT :: Björg Baldursdóttir skrifar
Tryggjum Bjarna
sæti á Alþingi
Í komandi alþingis-
kosningum verður m.a.
kosið um framtíð hinna
dreifðu byggða, vöxt og
viðgang þeirra. Bjarni
Jónsson er ötull talsmaður
landsbyggðarinnar og einn
reyndasti sveitastjórnar-
maður á Norðurlandi
vestra, sem er dýrmæt
reynsla fyrir alþingismann.
Bjarni mun beita sér af alefli
fyrir hagsmunum dreif-
býlisins, nái hann kjöri,
enda mun ekki af veita.
Nú benda skoðanakannanir
til þess að enginn Skag-
firðingur muni ná kjöri til
Alþingis. Með dyggum
stuðningi við VG eru þó yfir-
gnæfandi líkur á að Bjarni nái
þingsæti. Í síðustu kosn-
ingum vantaði aðeins örfá
atkvæði upp á að hann
kæmist inn. Setjum X við V
og tryggjum kjör Bjarna
Jónssonar. Hann mun hér
eftir sem hingað til hafa að
leiðarljósi hagsmuni hinna
dreifðu byggða.
Oft var þörf en nú er
nauðsyn. X-V á kjördag.
Björg Baldursdóttir
Sameiningarviðræður í Austur-Húnavatnssýslu
Skagabyggð verður með
Sveitarstjórn Skagabyggðar hefur tekið ákvörðun um að gerast
þátttakandi í sameiningarviðræðum sveitarfélaganna í Austur-
Húnavatnssýslu og bætist því í hóp hinna þriggja í sýslunni sem
ákveðið hafa að hefja formlegar viðræður um sameiningu.
Í bókun frá 12. október kemur fram það álit sveitarstjórnar
Skagabyggðar að sameiningarviðræður geti orðið sveitarfélögum í
sýslunni til framdráttar og tók því ákvörðun um að gerast aðili að
viðræðunum þrátt fyrir að meirihluti íbúa, sem svöruðu skoð-
anakönnun sem gerð var á fjölmennum íbúafundi í Skagabyggð
þann 10. október, væri andvígur sameiningu. /FE
40/2017 15