Feykir


Feykir - 25.10.2017, Blaðsíða 16

Feykir - 25.10.2017, Blaðsíða 16
Hvernig nemandi varstu? Sam- viskusamur nemandi, á fremsta bekk (kannski líka af því að ég heyri frekar illa). Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Veðrið var svo gott og ég var að springa úr hamingju. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Það var alltaf að breytast. Það fyrsta sem ég talaði um var víst að ég vildi verða mamma. Einhvern tímann ætlaði ég að verða rithöfundur og bakari. En lengst af langaði mig að verða sendiherrafrú – ég nennti ekki að standa í að vera sendiherra sjálf en sá í hillingum að halda endalausar veislur, baka og skreyta og undirbúa, og fá svo að tala við fólk á alls konar tungumálum. Hvert var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst krakki? Bangsi bestaskinn. Besti ilmurinn? Af nýfæddum börnum. Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Þá var ég dálítið mikið í hip-hoppinu. Blackstreet, A Tribe Called Quest, Dilated peoples og eitthvað svona. Hætti samt aldrei að hlusta á jazz. Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? Allt fullt! Kannski The Winner Takes It All. Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Af línulegri dagskrá fylgist ég helst með íslenskum leiknum þáttaröðum, t.d. Ófærð og þess háttar sem enginn má missa af, og svo þessari skandínavísku snilld sem stundum er boðið upp á, t.d. Broen og SKAM. Besta bíómyndin? Non ci resta che piangere. Leikararnir eru frábærir, myndin er svo fyndin og það er svo gaman að Napólí-mállýskunni. ( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is NAFN: Ástrós Elísdóttir. ÁRGANGUR: 1982. FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift þriggja barna móðir. BÚSETA: Skagaströnd. HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Barinn og berfættur Vestur- bæingur, hef búið í Reykjavík mestallt mitt líf en fluttist norður fyrir tveimur árum. STARF / NÁM: Kenni listir og tjáningu í Höfðaskóla á Skagaströnd og er að ljúka meistaranámi í ritlist, er menntaður leikhús- fræðingur, leiðsögumaður og söngkona. HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Ég er að kaupa mér hús. Ástrós Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Hmm. Surya Bonali, skautadrottningunni. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Tala ítölsku. Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Þakkargjörðaveisla með öllu. Hættulegasta helgarnammið? Eðla. Hvernig er eggið best? Þegar það kennir hænunni. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Að ég geri alltaf allt á síðustu stundu. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Nöldur og neikvæðni. Uppáhalds málsháttur eða til- vitnun? Þegar þú kvartar, gerirðu sjálfan þig að fórnarlambi. Farðu úr aðstæðunum, breyttu þeim eða sættu þig við þær. Allt annað er brjálæði. – Eckhart Tolle. Hver er elsta minningin sem þú átt? Ég man eftir að hafa verið að horfa á sæljón í Sædýrasafninu í Hafnarfirði. Þá var ég víst eins árs. Hvaða teiknimyndapersóna höfð- ar mest til þín? Engin ein sérstök, en teiknimyndasöguheimur Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur, Lóabora- toríum, höfðar alltaf til mín. Hver er uppáhalds bókin þín og/eða rithöfundur? Sigurður Pálsson heitinn. Ljóðin hans snerta við mér og svo er hann albesti kennari sem ég hef haft. Orð eða frasi sem þú notar of mikið? Passaðu þig! Ég á þrjú börn og er að reyna að hætta að segja þetta svona oft, þarf að treysta þeim betur. Hver var mikilvægasta persóna síðustu 100 ára að þínu mati? Það er svo afstætt! Ég ætla að velja mikilvægustu persónuna okkar megin í heiminum á síðustu 100 árum: Astrid Lindgren. Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Ég færi á 7. áratug síðustu aldar. Ég hef alltaf verið heilluð af því tímabili, og svo myndi ég nýta tækifærið og fara á tónleika með frábæru tónlistarfólki. Framlenging: Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... til Sardiníu. Ef þú ættir að dvelja alein/n á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Prjónadót, Leatherman-inn minn og nóg að drekka. Nefndu eitthvað þrennt sem þér finnst þú mega til að gera áður en þú gefur upp öndina: Koma börnum mínum til manns, flytjast til heitara lands og gefa út bók.Ástrós Elísdóttir. MYND ÚR EINKASAFNI Frambjóðandinn í þriðja sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi í komandi kosningum spyr á Feykir.is um hvað kosning- arnar snúist. Það er mikilvægt að átta sig á því. K o s n i n g a r n a r núna snúast, líkt og áður, um það hverjum kjósend- ur treysta til að hrinda í fram- kvæmd kosningaloforðunum. „Við viljum“ segja margir frambjóðendur meðan við hjá Miðflokknum segjum „Við ætlum“ á þessu er mikill munur. Munur liggur helst í því að innan Miðflokksins er hópur fólks sem er þekkt fyrir að gera það sem það segist ætla að gera. Þegar við í Miðflokknum segjumst ætla að framkvæma „Ísland allt“ áætlun okkar þá veit fólk að það ætlum við að gera, við getum í raun lofað því. Kosningarnar snúast nefni- lega um það hverjum þú treystir til að gera það sem lofað er, hvernig á að fram- kvæma það og hvers vegna. Í „Ísland allt“ áætluninni er, líkt og stefna Miðflokksins um endurskipulagningu fjármála- kerfisins, útskýrt hvers vegna við ætlum að fara í þetta verkefni, hvernig við ætlum að gera það og hverju það mun breyta. Við ætlum að nýta sóknar- færin í byggðum landsins, snúa vörn í sókn. Við ætlum að samstilla ólíkar aðgerðir og stýra þeim frá einum stað þannig að heildarsýn, ábyrgð og framkvæmd sé á einum stað. Fjárfesting- um verði beint inn á efnahagslega „kaldari“ svæði, skattalegum hvöt- um beitt o.fl. o.fl. Munurinn á okkur í Mið- flokknum og mörgum öðrum er að við hræð- umst ekki að horfa í augu kjós- enda og segja þeim hvað við ætlum að gera, hvers vegna, hvernig og hvaða áhrif það hefur. Það skal ég segja þér fram- bjóðandi góður að kosning- arnar snúast því um hverjum þú treystir til að breyta Íslandi. Hvernig við látum fjármála- kerfið vinna fyrir landsmenn en ekki öfugt. Hvernig við förum í stórsóknina „Ísland allt“ svo landið allt eflist og sæki fram. Miðflokkurinn í Norð- vesturkjördæmi hefur á að skipa frábæru fólki. Í efstu sætum listans er fólk sem hefur unnið að því að skapa sér framtíð á eigin forsendum. Þetta er gott fólk sem engum er háð. Það er þannig fólk sem við þurfum til að gæta hagsmuna OKKAR. X-M Gunnar Bragi Sveinsson. Nánari upplýsignar um Ísland allt og önnur stefnumál má finna á slóðinni https://midflokkurinn.is/ kosningastefna/ AÐSENT : Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Það skal ég segja þér frambjóðandi góður Sérfræðikomur í nóvember 2017 www.hsn.is 9. OG 10. NÓVEMBER Orri Ingþórsson kvensjúkdómalæknir 20. OG 21. NÓVEMBER Sigurður Albertsson alm. skurðlæknir Tímapantanir í síma 455 4022. 16 40/2017

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.