Feykir - 25.10.2017, Síða 16
Hvernig nemandi varstu? Sam-
viskusamur nemandi, á fremsta
bekk (kannski líka af því að ég
heyri frekar illa).
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Veðrið var
svo gott og ég var að springa úr
hamingju.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Það var alltaf
að breytast. Það fyrsta sem ég
talaði um var víst að ég vildi
verða mamma. Einhvern tímann
ætlaði ég að verða rithöfundur
og bakari. En lengst af langaði
mig að verða sendiherrafrú – ég
nennti ekki að standa í að vera
sendiherra sjálf en sá í hillingum
að halda endalausar veislur,
baka og skreyta og undirbúa, og
fá svo að tala við fólk á alls konar
tungumálum.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki?
Bangsi bestaskinn.
Besti ilmurinn? Af nýfæddum
börnum.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú
fékkst bílprófið? Þá var ég dálítið
mikið í hip-hoppinu. Blackstreet,
A Tribe Called Quest, Dilated
peoples og eitthvað svona. Hætti
samt aldrei að hlusta á jazz.
Hvaða lag er líklegast að þú
takir í Kareókí? Allt fullt! Kannski
The Winner Takes It All.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? Af línulegri dagskrá
fylgist ég helst með íslenskum
leiknum þáttaröðum, t.d. Ófærð og
þess háttar sem enginn má missa
af, og svo þessari skandínavísku
snilld sem stundum er boðið upp
á, t.d. Broen og SKAM.
Besta bíómyndin? Non ci resta che
piangere. Leikararnir eru frábærir,
myndin er svo fyndin og það er svo
gaman að Napólí-mállýskunni.
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Ástrós Elísdóttir.
ÁRGANGUR: 1982.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift þriggja barna móðir.
BÚSETA: Skagaströnd.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Barinn og berfættur Vestur-
bæingur, hef búið í Reykjavík mestallt mitt líf en fluttist
norður fyrir tveimur árum.
STARF / NÁM: Kenni listir og tjáningu í Höfðaskóla á Skagaströnd
og er að ljúka meistaranámi í ritlist, er menntaður leikhús-
fræðingur, leiðsögumaður og söngkona.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Ég er að kaupa mér hús.
Ástrós
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Hmm. Surya
Bonali, skautadrottningunni.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili? Tala ítölsku.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Þakkargjörðaveisla
með öllu.
Hættulegasta helgarnammið?
Eðla.
Hvernig er eggið best? Þegar
það kennir hænunni.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? Að ég geri alltaf allt á
síðustu stundu.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra? Nöldur og
neikvæðni.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun? Þegar þú kvartar, gerirðu
sjálfan þig að fórnarlambi. Farðu
úr aðstæðunum, breyttu þeim
eða sættu þig við þær. Allt annað
er brjálæði. – Eckhart Tolle.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Ég man eftir að hafa verið að
horfa á sæljón í Sædýrasafninu
í Hafnarfirði. Þá var ég víst eins
árs.
Hvaða teiknimyndapersóna höfð-
ar mest til þín? Engin ein sérstök,
en teiknimyndasöguheimur Lóu
Hlínar Hjálmtýsdóttur, Lóabora-
toríum, höfðar alltaf til mín.
Hver er uppáhalds bókin þín
og/eða rithöfundur? Sigurður
Pálsson heitinn. Ljóðin hans
snerta við mér og svo er hann
albesti kennari sem ég hef haft.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Passaðu þig! Ég á þrjú
börn og er að reyna að hætta
að segja þetta svona oft, þarf að
treysta þeim betur.
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati?
Það er svo afstætt! Ég ætla að
velja mikilvægustu persónuna
okkar megin í heiminum á síðustu
100 árum: Astrid Lindgren.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Ég færi
á 7. áratug síðustu aldar. Ég hef
alltaf verið heilluð af því tímabili,
og svo myndi ég nýta tækifærið
og fara á tónleika með frábæru
tónlistarfólki.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu... til Sardiníu.
Ef þú ættir að dvelja alein/n
á eyðieyju, hvaða þrjá hluti
tækirðu með þér? Prjónadót,
Leatherman-inn minn og nóg að
drekka.
Nefndu eitthvað þrennt sem þér
finnst þú mega til að gera áður
en þú gefur upp öndina: Koma
börnum mínum til manns, flytjast
til heitara lands og gefa út bók.Ástrós Elísdóttir. MYND ÚR EINKASAFNI
Frambjóðandinn í þriðja sæti
á lista Framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördæmi í
komandi
kosningum spyr
á Feykir.is um
hvað kosning-
arnar snúist.
Það er mikilvægt
að átta sig á því.
K o s n i n g a r n a r
núna snúast, líkt
og áður, um það
hverjum kjósend-
ur treysta til að
hrinda í fram-
kvæmd kosningaloforðunum.
„Við viljum“ segja margir
frambjóðendur meðan við hjá
Miðflokknum segjum „Við
ætlum“ á þessu er mikill
munur. Munur liggur helst í
því að innan Miðflokksins er
hópur fólks sem er þekkt fyrir
að gera það sem það segist ætla
að gera.
Þegar við í Miðflokknum
segjumst ætla að framkvæma
„Ísland allt“ áætlun okkar þá
veit fólk að það ætlum við að
gera, við getum í raun lofað
því.
Kosningarnar snúast nefni-
lega um það hverjum þú
treystir til að gera það sem
lofað er, hvernig á að fram-
kvæma það og hvers vegna. Í
„Ísland allt“ áætluninni er, líkt
og stefna Miðflokksins um
endurskipulagningu fjármála-
kerfisins, útskýrt hvers vegna
við ætlum að fara í þetta
verkefni, hvernig við ætlum að
gera það og hverju það mun
breyta.
Við ætlum að nýta sóknar-
færin í byggðum landsins,
snúa vörn í sókn. Við ætlum
að samstilla ólíkar aðgerðir og
stýra þeim frá einum stað
þannig að heildarsýn, ábyrgð
og framkvæmd sé á einum
stað. Fjárfesting-
um verði beint
inn á efnahagslega
„kaldari“ svæði,
skattalegum hvöt-
um beitt o.fl. o.fl.
Munurinn á
okkur í Mið-
flokknum og
mörgum öðrum
er að við hræð-
umst ekki að
horfa í augu kjós-
enda og segja
þeim hvað við ætlum að gera,
hvers vegna, hvernig og hvaða
áhrif það hefur.
Það skal ég segja þér fram-
bjóðandi góður að kosning-
arnar snúast því um hverjum
þú treystir til að breyta Íslandi.
Hvernig við látum fjármála-
kerfið vinna fyrir landsmenn
en ekki öfugt. Hvernig við
förum í stórsóknina „Ísland
allt“ svo landið allt eflist og
sæki fram.
Miðflokkurinn í Norð-
vesturkjördæmi hefur á að
skipa frábæru fólki. Í efstu
sætum listans er fólk sem
hefur unnið að því að skapa
sér framtíð á eigin forsendum.
Þetta er gott fólk sem engum
er háð.
Það er þannig fólk sem við
þurfum til að gæta hagsmuna
OKKAR. X-M
Gunnar Bragi Sveinsson.
Nánari upplýsignar um Ísland allt og
önnur stefnumál má finna á slóðinni
https://midflokkurinn.is/
kosningastefna/
AÐSENT : Gunnar Bragi Sveinsson skrifar
Það skal ég segja þér
frambjóðandi góður
Sérfræðikomur
í nóvember 2017
www.hsn.is
9. OG 10. NÓVEMBER
Orri Ingþórsson kvensjúkdómalæknir
20. OG 21. NÓVEMBER
Sigurður Albertsson alm. skurðlæknir
Tímapantanir í síma 455 4022.
16 40/2017