Feykir - 25.10.2017, Blaðsíða 2
Jæja, þá verður gengið að kjörborðinu eina ferðina
enn og kosið um það hverja eigi að senda til að vinna
fyrir okkur á hinu háa Alþingi þetta óvænta kjör-
tímabil sem senn hefst. Það getur verið vandasamt að
finna út úr því hvar krossinn skuli markaður á
kjörseðlinum ef farið er í það að rýna í kosningaloforð
og framtíðaráform flokkanna, komist þeir til valda.
Varla gengur að allir kjósi
það sama og síðast því þá
fáum við væntanlega
stjórnarkreppu.
Að sjálfsögðu ætla allir
að vinna af heilindum að
því að bæta kjör lands-
manna, ekki síst þeirra sem
lökust hafa kjörin. Spurn-
ingin er bara hvaða leið
skuli farin.
Eins og staðan er núna
finnst mér almenningur hafa það bara bærilegt enda
hefur verið uppgangur í þjóðfélaginu með auknum
straumi ferðamanna og makríl. Krónan er sterk svo
innfluttar vörur eru ódýrari en ella og ferðalög
mörlandans hafa margfaldast út í heim. Steypukassar
rísa víða, jafnt fyrir fólk, fénað og fyrirtæki alls konar
og allt virðist í vellukkunnar standi.
En það eru ekki allir ánægðir og víða pottur brotinn.
Eftir kosningar þurfum við þó litlu að kvíða þar sem
ráðist verður í samgöngumálin, sérstaklega úr sér
gengna malarvegi, sem hafa fengið mikla umfjöllun og
gagnrýni enda brýnt að vegir landsins geti borið þann
aukna ferðamannastraum sem um sveitir landsins
rennur.
Heilbrigðismálin verða í brennidepli sem aldrei fyrr
enda kominn tími á að gera skurk á þeim bænum. Fólki
fjölgar, það eldist og gerðar eru kröfur um að sá þáttur
lífsgæða okkar, að geta sótt sér lækningu án vandræða,
sé í góðu lagi. Ekki í þokkalegu lagi – heldur góðu lagi!
Landbúnaðurinn hefur ekki litið svo dapra stöðu í
háa herrans tíð, sem sauðfjárbændur nú gera. Þar þurfa
allir sem að þeim málaflokki koma að fara í allsherjar
vinnu við að laga stöðuna, og það til frambúðar. Að
borðinu þyrftu að koma, auk bænda, afurðastöðvar,
matvælaframleiðendur, stjórnmálamenn, neytendur,
kaupmenn og ekki síst markaðsfræðingar. Allir þyrftu á
ábyrgan hátt að vinna sig niður á viðunandi lausn sem
yrði allra hagur þegar til lengri tíma væri litið.
Þá er vert í lokin að nefna kjör öryrkja og eldri
borgara. Þarf ég nokkuð að segja meira?
Páll Friðriksson, ritstjóri.
LEIÐARI
Ég kýs, þess vegna er ég
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Tengill nýr umboðsaðili Vodafone
Sauðárkrókur
vanir að hitta á kallinn enda
maðurinn hafsjór af visku,“ segir
Hugi Halldórsson deildarstjóri
einstaklingssölu hjá Vodafone.
„Við starfsfólk Vodafone
erum stolt af öflugu neti
umboðsmanna okkar um land
allt og við erum einstaklega
ánægð með að Sauðárkrókur sé
áfram hluti af þessu þétta neti,
enda hvergi betra að vera en í
Skagafirði. Tengill er gott og
stöndugt fyrirtæki sem Skag-
firðingar þekkja vel og við
hlökkum til komandi samstarfs,“
segir Hugi. /PF
Fá byggðastyrk til lagningar ljósleiðara
Húnaþing vestra og Sveitarfélagið Skagafjörður
Samgönguráðherra hefur ákveðið að ráðstafa
sérstökum 100 milljón króna byggðastyrk fyrir
árið 2018 til að auðvelda strjálbýlum
sveitarfélögum að standa straum af lagningu
ljósleiðara líkt og gert var fyrir árið 2017.
Húnþing vestra og Sveitarfélagið Skagafjörður
eru meðal 14 sveitarfélaga sem eiga kost á styrk
úr sjóðnum að þessu sinni. Sjái sveitarfélag sér
ekki fært að fara í framkvæmdir á árinu getur
óráðstafaður styrkur safnast upp og færst til
ársins 2019.
Að þessu sinni er beitt tvenns konar aðferð
við úthlutun byggðastyrksins. Annars vegar er
10 milljónum króna úthlutað beint til tiltekinna
„brothættra byggða“. Hins vegar er 90
milljónum króna úthlutað þannig að metin er
fjárhagsstaða sveitarfélaga, meðaltekjur sveitar-
félags á íbúa og hlutfall ótengdra íbúa er
reiknað, byggðaþróun síðustu tíu ára er metin
og tekið er mið af þéttleika styrkhæfra staða og
fjarlægð byggðar frá þjónustukjarna. Miðað er
við að byggðastyrkur sé að hámarki um 20% af
kostnaðarhlut sveitarfélags að ljósleiðaravæð-
ingu sveitarfélagsins lokinni.
Húnaþing vestra fær næst hæsta styrkinn
eða 11,7 milljónir króna og Skagafjörður fær
5,8 milljónir króna. /FE
Í síðustu viku lönduðu tveir bátar á Hvamms-
tanga og var afli þeirra tæp 23 tonn.
21 bátur landaði rúmum 277 tonnum á
Skagaströnd og ríflega 542 tonn bárust til
Sauðárkróks með 12 skipum og bátum. Á
Hofsósi lönduðu tveir bátar rúmum 12 tonnum.
Heildarafli á Norðurlandi vestra í nýliðinni viku
var 854.647 kíló. /FE
Aflatölur á Norðurlandi vestra 15.-21. október 2017
Málmeyjan með 152 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Bergur Vigfús GK 43 Lína 16.696
Harpa HU 4 Dragnót 6.122
Alls á Hvammstanga 22.818
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Landbeitt lína 4.163
Álfur SH 414 Landbeitt lína 19.015
Blíðfari HU 52 Handfæri 1.273
Daðey GK 777 Línutrekt 23.205
Dagrún HU 121 Þorskfiskinet 3.586
Dísa HU 91 Handfæri 1.430
Dísa HU 91 Lína 1.008
Dúddi Gísla GK 48 Lína 18.920
Guðm. á Hópi HU 203 Lína 15.136
Gullhólmi SH 201 Lína 18.831
Hafrún HU 12 Dragnót 12.061
Hulda HF 27 Línutrekt 23.299
Húni HU 62 Handfæri 1.631
Kári SH 78 Landbeitt lína 15.784
Kristinn SH 812 Landbeitt lína 47.577
Maggi Jóns HU 70 Handfæri 375
Magnús HU 23 Landbeitt lína 1.798
Onni HU 36 Dragnót 5.842
Ólafur Magnússon HU 54 Þorskfiskinet 455
Stella GK 23 Landbeitt lína 9.865
Særif SH 25 Landbeitt lína 52.048
Alls á Skagaströnd 277.302
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 4.840
Fannar SK 11 Landbeitt lína 2.571
Fjölnir GK 157 Lína 91.180
Gammur SK 12 Þorskfiskinet 439
Grundfirðingur SH 24 Lína 44.997
Hafborg SK 54 Þorskfiskinet 2.860
Hafey SK 10 Handfæri 1.382
Klakkur SK 5 Botnvarpa 91.468
Kristín GK 457 Lína 65.643
Málmey SK 1 Botnvarpa 152.498
Már SK 90 Handfæri 1.499
Óskar SK 13 Handfæri 1.263
Sighvatur GK 57 Lína 78.492
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 2.355
Vinur SK 22 Handfæri 870
Alls á Sauðárkróki 542.357
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Landbeitt lína 5.863
Þorleifur EA 88 Dragnót 6.307
Alls á Hofsósi 12.170
Tengill hefur tekið við umboði
Vodafone á Sauðárkróki.
Framvegis geta viðskiptavinir
Vodafone á Sauðárkróki sótt
alla þjónustu, jafnt tækni sem
fjarskiptaþjónustu, í verslun
Tengils í Kjarnanum. Tengill
hefur um skeið sinnt
uppsetningum og
bilanaviðgerðum fyrir
Vodafone.
„Það er okkur mikil ánægja
að ganga til samstarfs við Tengil
sem rótgróið fyrirtæki á
Sauðárkróki. Að sama skapi
þökkum við Frímanni og Auði í
Rafsjá fyrir samstarfið öll þessi
ár. Frímann fer að vísu ekki
langt því nýir og núverandi
viðskiptavinir Vodafone geta
nálgast hann hjá Tengli. Það er
því huggun fyrir þá sem eru
Gísli Sigurðsson, framkvæmdastjóri Tengils og Hugi Halldórsson deildarstjóri
einstaklingssölu hjá Vodafone. MYND: PF
2 40/2017