Feykir - 25.10.2017, Blaðsíða 6
Málefni öryrkja og bænda brýnust
Sigurlaug Gísladóttir Blönduósi
Um hvað á að kjósa?
X17 Alþingiskosningar 2017
Í aðdraganda kosninga brenna væntanlega mörg mál á
kjósendum og seint verða allir sammála um hvaða mála-
flokkar séu mikilvægastir og brýnast að taka á. Feykir hafði
samband við nokkra kjósendur og spurði þá hvað þeim
þætti mikiilvægast að stjórnmálamenn beittu sér fyrir að
kosningum loknum og hvaða leiðir ætti að fara að því marki.
SAMANTEKT Fríða Eyjólfsdóttir
Sigurlaug Gísladóttir hefur
rekið Húnabúðina á Blönduósi
síðastliðin þrjú ár en árið 2016
sameinaðist Bæjarblómið búð-
inni sem heitir nú Húnabúð/
Bæjarblómið. Sigurlaug er
Skagfirðingur en eiginmaður-
inn austan af Héraði, þar sem
þau bjuggu í fjölda ára en
fluttu á Blönduós árið 2013.
Þau eiga fjögur uppkomin börn.
Hvaða mál myndir þú vilja
setja á oddinn í komandi kosn-
ingum?
Tekjur öryrkja og málefni þeirra
almennt, sem og landsbyggðar-
mál og þá sérstaklega tekju-
möguleika bænda en þeim er
sífellt settur stóllinn fyrir dyrnar af
löngu úreltu reglugerðarfargani.
Hvernig telur þú að hægt sé að
ná þeim fram?
Hér væri hægt að setja langt
og mikið svar, en ætla að láta
nægja það stutta. Það vantar
bæði viljann og þorið til að
framkvæma og svo almenna
skynsemi og verklagni með.
En númer eitt, tvö og þrjú þarf
ný ríksstjórn á hverjum tíma,
hver sem hún er, að geta skipt
út yfirmönnum úr ráðuneytum
sínum og ráða til sín fólk sem
vinnur með þeim en ekki á móti.
Það myndi einfalda stjórnsýsluna
mikið og flýta verkferlum.
Hvaða flokkar finnst þér lík-
legastir til að mynda nýja ríkis-
stjórn?
Miðað við skoðanakannanir eru
það trúlega VG og SF, því miður.
Hver er óskaríkisstjórnin?
Það er eitthvað sem ég þarf að
skoða betur.
Erfitt að byggja upp góð stjórnmál ef handritið er gallað
Ríkey Þöll Jóhannesdóttir frá Brúnastöðum í Fljótum
Ríkey Þöll Jóhannesdóttir er
nemandi á fyrsta ári í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands
og fyrrverandi starfsmaður
KS Ketilási. Hún er alin upp á
Brúnastöðum í Fljótum og segist
vera mikil áhugamanneskja um
þjóðfélagslega gagnrýni og
aukna stjórnmálaþátttöku ungs
fólks.
Hvaða mál myndir þú vilja setja
á oddinn í komandi kosningum?
Svona í fljótu bragði hugsa ég
um það sem stendur mér næst,
betri fjármögnun háskólanna
og breyting á námslánakerfinu.
Almennt verður auðvitað að
styrkja heilbrigðiskerfið og svo
vil ég sjá mun betri stefnumótun
tengda sálfræðiaðstoð fyrir alla
þá sem þurfa. Einnig tel ég
mjög brýnt að ráðast sem fyrst í
að innleiða nýju stjórnarskrána,
ég tel mjög erfitt að byggja upp
góð stjórnmál hér á landi ef
handritið er gallað. Það eru svo
mörg mál sem skipta máli og ég
gæti haldið áfram að telja upp til
eilífðarnóns, annars er líka vert
að benda á breytingu hvað varðar
lög um kynferðisafbrotarmál
og vil ég sjá Alþingi beita sér
í tengslum við betra og meira
styðjandi réttarkerfi hér á landi.
Mál flóttamanna verður líka að
taka fyrir, betri móttöku allra og
frekari stuðning til að komast út
í samfélagið. Að lokum verð ég
að benda á landbúnaðarmálin.
Eins og lesendur vita hafa
sauðfjárbændur staðið frammi
fyrir mjög stórum fjárhagslegum
vanda nú í haust og tel ég að
stjórnmálaflokkar ættu að nýta
sér kosningarnar til þess að
endurskoða kerfið, auka styrki
til nýsköpunar og auðvelda
heimavinnslu eins og annars
staðar er í Skandinavíu. Það er
fráleitt kerfi að bændur séu háðir
sláturleyfishöfum, sem á blaði eru
í þeirra eigu, og fákeppnismarkaði
í smásöluverslun sem standa
saman að því að arðræna þá!
Hvernig telur þú að hægt sé að
ná þeim fram?
Úff þá er þrautin þyngri. Það þarf
auðvitað bara til öguð og vönduð
vinnubrögð, fara algerlega yfir
það hvernig peningunum er varið
í þessu hagkerfi og hvernig hægt
er að nýta fjármunina til fulls án
þess þó að kjör einhverra hópa
skerðist, nema auðvitað þeirra
sem eiga svo mikla peninga að
þeir þurfi að leggja hann inn á
bækur í Panama… Varðandi þau
mál sem krefjast ef til vill ekki
aukins fjármagns og ég held
að ríki almenn samstaða um í
samfélaginu, eins og hvað varðar
sanngjarnara réttarkerfi fyrir
þolendur þá væri frábært að sjá þá
víðu sátt sem ríkir í samfélaginu í
verki á Alþingi. Frábært væri að
sjá nýtt Alþingi sammælast um
stór málefni sem þau keppast
öll við nú að eigna sér þegar á
hólminn er komið. Mér þykir mjög
fyndið að hlusta á áróður vissra
flokka í kosningabaráttunni sem
benda sífellt á það að við séum
rétt að ná toppnum á heimslistum
hvað varðar lífskjör og fleira. Það
versta er að við erum að síga
niður á þessum listum og þær
þjóðir sem enn standa á toppnum
eru Norðurlöndin, þær þjóðir sem
byggja stefnu sína hvað mest
á jöfnuðuði. Mér þykir bagaleg
stefna stjórnmála hér á landi að
fylgja ekki fordæmi þeirra, því það
hefur margsannað sig að þar sem
samasemmerki er á milli jöfnuðar
og velsældar gengur þjóðum
alltaf betur. Það þýðir ekki að
stuðla að velsæld hér á landi þar
sem einingis þeir hæst launuðu
fylla vasana enn betur.
Hvaða flokkar finnst þér
líklegastir til að mynda nýja
ríkisstjórn?
Ef skoðanakannanir eru að segja
satt ættu það að vera Vinstri
græn, Samfylking og Píratar.
Hver er óskaríkisstjórnin?
Óskaríkisstjórnin, það er spurn-
ingin, ætli ég myndi ekki bara
handvelja fólk úr mismunandi
flokkum. Það væri auðvitað
ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Væri líka mjög til í að sjá Lilju
Alfreðsdóttur í ríkisstjórn, eins er
ég mjög hrifin af mörgu sem Logi
Einarsson er að koma á framfæri.
Allt er þetta fólk sem mér finnst
fylgja sínum málefnum vel eftir
og er hreint og beint í framkomu
sem aðrir pólitíkusar mættu svo
sannarlega tileinka sér.
Fjármagnið í uppbyggingu en ekki gæluverkefni
Sonja Dröfn Helgadóttir Skagaströnd
Sonja Dröfn Helgadóttir býr
á Skagaströnd þar sem hún
starfar sem umsjónarkennari
við Höfðaskóla. Sonja og eigin-
maður hennar eiga fjögur börn og
býr eitt þeirra heima.
Hvaða mál myndir þú vilja setja
á oddinn í komandi kosningum?
Heilbrigðis- og menntamál.
Einnig þarf að endurskoða
lífeyrissjóðakerfið. Það er ótækt
að fáir einstaklingar geti notað
þá fjármuni til að leika sér með,
fjárfest í hinu og þessu. Lífeyrir á
að ávaxtast með sjálfum sér. Ekki
með fjárfestingum.
Hvernig telur þú að hægt sé að ná
þeim fram?
Með því að hætta að einkavæða
þær stofnanir sem allir þurfa
að hafa aðgang að, sbr. skóla
og sjúkrastofnanir. Vinna með
þeim sem þekkja til rekstrar og
kostnaðar við hann en ekki taka
pólítiskar einræðisákvarðanir líkt
og m.a. gert var með styttingu
framhaldsskólans. Hættum að
spara aurinn og kasta krónunni.
Fjármagn ríkisins á fyrst og fremst
að fara til uppbyggingar ekki til
gæluverkefna.
Hvaða flokkar finnst þér lík-
legastir til að mynda nýja
ríkisstjórn?
Eins og staðan lítur út núna virðist
sem Vinstri grænir og Samfylking
verði í ríkisstjórn.
Hver er óskaríkisstjórnin?
Það er sú ríkisstjórn sem vinnur
fyrir fólkið í landinu. Ekki bara á
tímum kosninga, heldur sú sem
stendur við stóru orðin. Ég vil sjá
landið rekið sem fyrirtæki þar sem
það þarf að sýna fram á árangur í
starfi og ef þú ert ekki að standa
þig, þá ertu látin taka pokann
þinn. 350.000 manna samfélag
þarf ekki alla þessa einstaklinga
á þingi. Það þarf samhentan
hóp með sameiginleg markmið.
Ekki stjórn sem hegðar sér eins
og illa uppalin börn sem kunna
ekki að taka þátt í málefnalegum
umræðum. Allt upp á borðum og
ef þú nærð ekki kosningu, þá ertu
heldur ekki á þingi. Þá má losna við
þras um ómerkilega hluti sem allt
of mikill tími fer í.
Landbúnaðarmálin mikilvægust
Þórunn Helga Þorvaldsdóttir Akurbrekku í Hrútafirði
Þórunn Helga Þorvaldsdóttir býr
á Akurbrekku í Hrútafirði ásamt
manni sínum og eiga þau þrjú
börn á aldrinum 10-24 ára. Þau
hjónin reka sauðfjárbú en vinna
bæði utan heimilis og starfar
Þórunn sem leikskólastjóri við
leikskólann Árgarð á Hvamms-
tanga. Þórunn segist vera frekar
ópólitísk en horfa meira á ein-
staklingana sem vinna fyrir
flokkana.
Hvaða mál myndir þú vilja setja
á oddinn í komandi kosningum?
Landbúnaðarmál eru mér ofarlega
í huga og þá kannski sérstaklega
sauðfjárrækt. Það er skelfilegt
hvað innkoma sauðfjárbænda
hefur rýrnað síðustu tvö ár og ef
áfram heldur á þetta bara eftir
að enda á einn veg. Svo eru það
menntamálin, heilbrigðismál og
samgöngumál.
Hvernig telur þú að hægt sé að ná
þeim fram?
Með aukinni samvinnu við bændur
og að setja valdið í aðrar hendur en
afurðastöðvanna.
Hvaða flokkar finnst þér lík-
legastir til að mynda nýja ríkis-
stjórn?
Ég er ansi hrædd um að það verði
vinstri vængurinn.
Hver er óskaríkisstjórnin?
Mín óska stjórn er með fólki
innanborðs sem þekkir til mála
og getur tekið ákvarðanir sem eru
landi og þjóð til gagns og sóma. Ef
ég á að tala um flokka þá líst mér
best á fremstu menn á lista hér á
Norðurlandi vestra sem eru á lista
Framsóknar- og Sjalfstæðismanna
til að vinna þessi störf.
6 40/2017