Feykir - 25.10.2017, Qupperneq 8
X17 AÐSENT :: Lilja Rafney, Bjarni, Rúnar og Dagrún skrifa
Nú gerum við betur
Kæri kjósandi!
Nú er komið að því að byggja upp og
styðja við. Um land allt
sjáum við tækifærin til að
gera betur, en um leið
þurfum við stefnu-
breytingu og breytta
forgangsröðun í þágu
byggðanna. Innviðir og
hryggjarstykki
samfélaganna eru
vanrækt – vegirnir,
hafnirnar, skólarnir,
sjúkrahúsin og
heilsugæslurnar.
Misskiptingunni verður að ljúka og
tækifærið til þess er núna. Með því að
færa fólki um allt land tækifæri til
menntunar og atvinnuuppbyggingar
jöfnum við stöðu fólks. Það er hægt að
jafna lífskjörin í landinu með ábyrgum
og skynsömum hætti án þess að
skattleggja almennt launafólk.
Við erum rík af auðlindum lands og
sjávar. Fjölbreytt náttúra, saga og menn-
ing eru hin sterku einkenni landshlutans.
Tækifærin okkar í Norðvesturkjördæmi
blasa hvarvetna við og felast ekki síst í
unga fólkinu sem þyrstir í menntun og
störf í heimabyggð, því hér líður þeim
vel. Hér viljum við gefa þeim tækifæri til
að hlúa að foreldrum sínum og ala upp
börnin sín á grundvelli jafnra tækifæra,
með lengra fæðingarorlofi og húsnæði
á viðráðanlegum kjörum. Hlúum að
nýliðum í landbúnaði og sjávarútvegi og
gerum breytingar á sjávarútvegskerfinu
sem byggðarlög á landsbyggðinni munar
um. Styðjum við göfugt starf bænda,
sem eru gæslumenn landsins, byggðar-
innar og náttúrunnar og holla matvæla-
framleiðslu til sjávar og sveita. Um-
hverfismál eru efnahags- og atvinnumál.
Náttúran er gjöful í kjördæminu okkar,
en gleymum því ekki að við höfum hana
aðeins að láni frá næstu kynslóð og því
ber okkur að stíga varlega til jarðar.
Í kosningum nú sem endranær er
valdið sett í hendur kjósenda. Það er
einlæg von okkar sem sækjumst eftir
þínu umboði að þú takir því valdi
fagnandi, mætir á kjörstað og setjir X við
þann kost sem þú telur bestan fyrir
samfélagið okkar, náttúruna og
framtíðina.
Lilja Rafney Magnúsdóttir
Bjarni Jónsson
Rúnar Gíslason
Dagrún Jónsdóttir
Höfundar skipa fjögur efstu sæti á lista
Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs
X17 AÐSENT :: Bergþór Ólason og Maríanna Eva Ragnarsdóttir skrifa
Miðflokkurinn – við ætlum!
Miðflokkurinn býður nú fram í fyrsta
sinn, undir tryggri forystu
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,
sem er sá stjórnmála-
foringi nú um stundir
sem hefur sýnt það
best að hafa hæfileika
og festu til að takast á
við stór og flókin
úrlausnarefni og ná
árangri.
Vextirnir
Megináhersla Mið-
flokksins fyrir komandi
kosningar er endur-
skipulagning fjármála-
kerfisins. Markmiðið er að skipuleggja
fjármálakerfi landsins þannig að það
þjóni almenningi og fyrirtækjum sem
best. Megináherslan með þeirri heild-
stæðu áætlun sem flokkurinn hefur
kynnt er að ná niður vaxtastigi í land-
inu. Hagsmunirnir eru gríðarlegir.
Fyrir fjölskyldu sem skuldar 25 mill-
jónir, samsvarar 2% vaxtalækkun því
að vaxtakostnaður heimilisins lækki
um 500 þúsund á ári – hálfa milljón! –
og það er í eftirskatta-peningum.
Áhrifin á fyriræki eru þau sömu.
Ísland allt - byggðamálin
Ísland allt – byggðastefna Miðflokksins
hefur það að markmiði að láta landið
allt vinna sem eina heild. Eins og íbúar
landsbyggðarinnar þekkja þá hefur
þjónusta sogast til höfuðborgar-
svæðisins á undanförnum árum og
kjörtímabilum. Það þarf að tryggja
sem jafnast aðgengi íbúa landsins að
þeirri þjónustu sem hið opinbera
býður upp á. Hluti af „Ísland allt“
áætluninni er uppbygging sérfræði-
þjónustu á landsbyggðinni og styrking
heilsugæslunnar.
Vegirnir
Kostnaður við að nota vegakerfið er of
hár. Í dag er skattlagning á umferð og
ökutæki umtalsvert meiri en þeir fjár-
munir sem varið er til vegagerðar og
viðhalds vegakerfisins. Áður en veg-
tollar koma til skoðunar þarf að tryggja
að þeir fjármunir sem þegar eru teknir
af vegfarendum skili sér til uppbygg-
ingar vegakerfisins. Þar er af nógu að
taka. Þó að stórframkvæmdirnar séu
mest áberandi, þá er nauðsynlegt að
ráðast í átak á safn- og tengivegum til
sveita. Ein hugmynd, sem Miðflokk-
urinn vill láta skoða alvarlega, er að
leggja bundið slitlag á fáfarna vegi, í
núverandi veglínu, með lækkuðum
hámarkshraða.
Nám framtíðarinnar
Miðflokkurinn leggur áherslu á að
stuðningur við iðn- og verknám á
framhaldsskólastigi verði aukinn og að
á háskólastiginu verði áherslan á
tækni- og raungreinar aukin verulega.
Við verðum að aðlaga öll skólastigin að
þeirri framtíð sem við okkur blasir.
Að endingu; landbúnaðurinn,
tryggingagjaldið og
ferðaþjónustan
Íslenskum landbúnaði er ætlað mikil-
vægt hlutverk þegar kemur að mat-
vælaöryggi, atvinnulífi í dreifbýli og
nýtingu auðlinda landsins. Landbún-
aðurinn er samofinn atvinnulífi á
landsbyggðinni og bændur, gæslu-
menn landsins, bera ríka ábyrgð þegar
kemur að því að halda landinu okkar í
rækt, til hagsbóta fyrir alla landsmenn.
Miðflokkurinn ætlar að ganga hratt
til þess verks að leysa bráðavanda
sauðfjárbænda, það er nauðsynlegt til
að hægt sé að finna lausnir til fram-
tíðar.
Eitt af megináhersluatriðum Mið-
flokksins er að lækka tryggingagjald á
fyrirtæki. Gjaldið er enn hartnær 30%
hærra en það var árið 2007, þrátt fyrir
að raunverulegt atvinnuleysi sé hér um
bil ekkert. Sérstök áhersla verður á
fyrstu 10 starfsmenn fyrirtækja enda er
launakostnaður iðulega hátt hlutfall
rekstarkostnaðar smærri fyrirtækja.
Miðflokkurinn hafnar hækkun
virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna.
Bergþór Ólason,
oddviti Miðflokksins í
Norðvesturkjördæmi
Maríanna Eva Ragnarsdóttir,
4. sæti á lista Miðflokksins
Breyting á
útsendingu hita-
veitureikninga
Skagafjarðarveitur
Skagafjarðarveitur hafa ákveðið að
hætta að senda út hitaveitureikn-
ingana á pappírsformi og einnig
rafrænni birtingu í heimabanka. Í
stað þess munu Skagafjarðarveitur
birta alla hitaveitureikninga á
„Mínum síðum“ sem eru
aðgengilegar á heimasíðu
Skagafjarðarveitna, skv.is, og í
íbúagátt Svf. Skagafjarðar á
heimasíðunni skagafjordur.is,
ásamt því að krafa stofnast í
heimabanka.
Í tilkynningu frá SKV segir að
auðvelt sé að fylgjast með notkun
heimilisins inni á Mínum síðum með
því að skrá álestur og mynda þannig
álestrasögu. Bæði er hægt að senda
inn eftirlitsálestur sem hefur ekki
áhrif á áætlun, eða uppgjörsálestur
og greiða þá fyrir raunnotkun t.d.
mánaðarlega eða eftir ákveðnum
tímabilum.
„Það er mikið öryggi í því að
fylgjast vel með notkuninni, til að
koma í veg fyrir umframeyðslu með
tilheyrandi kostnaði. Með þessum
breytingum eru Skagafjarðarveitur
að nýta sér tækni nútímans til að
spara pappír, sendingar- og birt-
ingarkostnað, og auka þjónustu við
viðskiptavini sína sem kaupa heitt
vatn eftir mæli og munu nú geta
fylgst betur með notkun sinni,“ segir
í tilkynningunni. Þeir viðskiptavinir
sem eru 70 ára og eldri og hafa fengið
reikninga senda til sín í pósti fá þá
áfram senda heim til sín. /PF
8 40/2017