Feykir - 25.10.2017, Side 10
Feykir tók hús á þeim stöllum
í Höfðaborg á laugardags-
morguninn, stuttu áður en
æfing hófst hjá þeim, til að
forvitnast örlítið um verkefnið.
Fyrst af öllu langar blaðamann
að vita hvort þessi leik-
listaráhugi hafi blundað með
þeim vinkonunum lengi.
„Ég held hann sé frá því við
vorum sjö ára og lékum þrjá
litla hermenn sem heim úr
stríði komu,“ segir Berglind og
báðar brosa að endurminn-
ingunni. „Ég man að Sigfríður
kennari var með leikprufur.
Það voru ekkert allir jafnir í þá
daga. En ég hef alltaf haft mjög
gaman af að leika, maður er
náttúrulega með svo mikla
VIÐTAL
Fríða Eyjólfsdóttir
athyglissýki.“ Jóhanna segist
halda að áhuginn hjá henni hafi
kviknað þegar hún lék í
Blúndum og blásýru með
Leikfélagi Hofsóss fyrir þremur
árum. „Mér finnst nú reyndar
ekkert leiðinlegt að trana mér
fram, ég segi það nú ekki,“
bætir hún við.
„Svo var pabbi alltaf með
leikfélaginu þegar ég var
krakki, ég er farin að halda að
systkini mín hafi ekki verið læs
því að ég las alltaf með honum
yfir handritin og hlýddi honum
yfir textann,“ segir Berglind
glottandi.
En hvaða fyrirbæri er Frá-
saga?
„Frásaga er í rauninni við tvær
og eiginmennirnir,“ segja þær.
„Þetta er áhugamannafélag um
menningu og listir, stofnað við
eldhúsborðið hjá Berglindi í
nóvember 2016 með það að
markmiði að auka framboð á
menningu, þá ekki síst frum-
sömdu efni, í Skagafirði.
Kannski förum við svo í útrás
út fyrir fjörðinn ef tækifæri
gefst og góð hugmynd kemur
upp.“
Nú er þess skemmst að
minnast að fyrir rúmum
tveimur árum setti Leikfélag
Hofsóss upp frumsamið leik-
rit sem bar nafnið Sveita-
piltsins draumur þar sem þær
Berglind og Jóhanna, ásamt
Einari Þorvaldssyni og Sig-
mundi Jóhannessyni, voru
handritshöfundar og leik-
stjórnin var í höndum þeirra
tveggja. Skyldi það hafa orðið
kveikjan að frekari verk-
efnum?
„Já, það var það,“ segir
Jóhanna. „Það komu upp svo
margar hugmyndir þá sem við
urðum að koma í framkvæmd,
svo við ákváðum bara að stofna
Frásögu til þess að koma þessu
frá okkur.“
Þegar þið ákváðuð að fara af
stað með þetta verkefni,
voruð þið þá strax með
ákveðið efni í farvatninu og
búnar að leggja línurnar fyrir
ákveðið þema?
„Já, við vorum búnar að tala
um það frá því að við vorum
með Sveitapiltinn að næst væri
gaman að taka fyrir eitthvað
tengt sjó og sjómennsku. Það
er svona borðleggjandi, búandi
hér á þessum stað,“ segja þær.
Og var strax ákveðið að hafa
sama snið á þessu og síðast,
vera bæði með leikin atriði og
tónlist?
Já, þetta „konsept“, að vera með
leikþætti og tónlist í bland, var
bara að virka vel og var mjög
skemmtilegt þannig að okkur
langaði að gera meira af því,“
segir Berglind. „Svo var nátt-
úrulega svo ótrúlega gaman að
vinna með þeim Einari og
Stebba. Einar var auðvitað einn
af höfundum Sveitapiltsins
þannig að við vorum strax í
sambandi við þá félaga um að
fara í þetta verkefni með okkur
og þeir tóku vel í það. Þetta er
þó ekki alveg sama tónlistar-
fólkið og var þá. Sigvaldi
Gunnarsson var með síðast
eins og nú, hann syngur, en
nýir eru Víglundur Rúnar
Pétursson úr Varmahlíð á
trommum, Bjarni Salberg
Pétursson, Húnvetningur bú-
settur á Mannskaðahóli er á
bassa og svo syngur Sigurlaug
Vordís Eysteinsdóttir. Þetta er
sem sagt fólk alls staðar að úr
firðinum. Hljómsveitin kemur
saman út af fyrir sig og æfir, við
æfum hér og erum bara í góðu
sambandi við Einar og Stebba
og svo hittast allir rétt fyrir
sýningu og æfa saman. Það er
líka það sem er svo frábært við
þetta, að geta bara æft þetta
svona í sitt hvoru lagi.“
Hvernig voru lögin valin,
valdi hljómsveitin þau eða
þið?
„Í raun var samspil þarna á
milli, við vorum komnar með
hugmyndir eða beinagrind að
handritinu og svo var kominn
lagalisti. Við þurftum svo að
taka út einhver lög og setja inn
ný og svo höfum við líka samið
leikþætti sem passa við lögin.
Málið er líka að lögin þurfa að
vera svolítið skemmtileg,“ segja
þær. „Og við erum ekki endi-
lega öll sammála um hvað eru
skemmtileg lög, það hefur nú
alveg komið upp í þessari
samvinnu,“ skýtur Berglind inn
í en vill ekki gefa neitt meira
upp um það.
Áhorfendur mega búast við
að fá að heyra mörg vinsæl
sjómannalög sem hljómað hafa
á öldum ljósvakans í gegnum
tíðina. Má þar nefna hið
klassíska lag Blítt og létt, Ég
hvísla yfir hafið, Suður um
höfin, Síldarvalsinn, Stolt siglir
fleyið mitt, og Háseta vantar á
bát en blaðamanni heyrist að
einhver áhöld séu uppi um
hvort það lag eigi að teljast til
skemmtilegra laga eður ei.
Tilbúningur
frá A til Ö
Það er ekki annað hægt en að
spyrja hvort einhverjir þekktir
sjómenn úr skagfirsku sam-
félagi eigi eftir að dúkka upp á
sviðinu en það aftaka þær
stöllur með öllu. „Nei, við erum
ekki með neinar sérstakar
fyrirmyndir eða að semja út frá
ákveðnum persónum. Það er
ekki svona þorrablótsbragur á
þessu. Það getur auðvitað alltaf
verið að þú sjáir einhverja
samsömun en það var ekki
meiningin, þetta er tilbúningur
frá A til Ö þannig að ef einhver
þykist sjá einhvern sem hann
Áhugamannafélagið Frásaga sýnir um næstu helgi hugverkið Pungar og pelastikk
– raunir trillukarla, þar sem leiknum atriðum og þekktum dægurlögum er blandað
saman í samfellda dagskrá. Það eru tvær galvaskar konur á Hofsósi, þær Jóhanna
Sveinbjörg Traustadóttir og Margrét Berglind Einarsdóttir, sem eru höfundar
handritsins og leikstýra því en til liðs við sig hafa þær fengið þá Einar Þorvaldsson
og Stefán Gíslason ásamt hljómsveit.
Pungar og pelastikk í Miðgarði
Raunir trillukarla
í tali og tónum
Ráðhildur leggur á ráðin. Ingibjörg Sólveig í hlutverki Ráðhildar.
Jóhanna og Berglind kíkja í trossurnar. MYNDIR: FE
10 40/2017