Feykir - 25.10.2017, Blaðsíða 11
þekkir þá er það hans eigin
hugarfóstur.“
Í leikritinu eru sex hlutverk
sem þær segja að vel hafi gengið
að manna. „Við erum bara svo
skemmtilegar,“ segir Jóhanna,
„þannig að fólk var örugglega
tilbúið til að taka þátt í þessu út
af því.“ Aðspurðar um hvort
einhver burðarhlutverk séu í
stykkinu segja þær tvö hlut-
verkanna vera stærri en önnur.
Annað þeirra sé skipstjórinn
sem Jón Sigurðsson leikur.
„Þetta gerist meira og minna á
sjó. Jón leikur skipstjórann
Björn sem hefur með sér tvo
háseta, Gauja og Röggu, á
grásleppuvertíð. Það á ýmislegt
eftir að gerast á sjónum. Hann
hefur kannski ekki mjög ákjós-
anleg áhöfn með sér en hann
hefur trúlega ekki haft úr mjög
miklu að moða þannig að hann
þarf að gera gott úr því sem
hann er með í höndunum.
Annað verður bara að koma í
ljós og er ekki birtingarhæft.“
Auk Jóns eru hlutverkin í
höndum systkinanna Sig-
mundar og Sæunnar Jóhann-
esarbarna, Kristjáns Jónssonar,
Ingibjargar Sólveigar Halldórs-
dóttur og Sunnu Dísar Bjarna-
dóttur.
Hvað hafa æfingar staðið
lengi?
„Það er vika með einu fríkvöldi.
Leikarar fengu afhent handrit
fyrir þremur vikum. Við
stefndum að því í upphafi að
hafa tveggja vikna æfingatíma-
bil, það gekk mjög vel síðast.
Þetta eru stuttir leikþættir og
fólk er ekkert á sviðinu allan
tímann. Svo var lagt upp með
að hafa leikmyndina einfalda,
leikmyndahönnunin er okkar
en smiðurinn er Ingvar Guð-
mundsson, allt muligt man.
Nú byrja leikararnir að
tínast inn á æfingu svo við
förum að slá botninn í spjallið.
Þær stöllur vilja biðja fyrir
kærar þakkir til allra sem að
sýningunni koma fyrir mikla
þolinmæði, svo og til fjöl-
skyldnanna allra. Einnig til
Menningarsjóðs KS og Sóknar-
áætlunar Norðurlands vestra
sem styrktu sýninguna. Að
lokum hvetja þær alla til að
missa ekki af góðri skemmtun
og mæta í Miðgarð. „Það var
hugsunin að sýna bæði í
Höfðaborg og í Miðgarði en svo
komu kosningarnar í veg fyrir
það. Miðgarður varð fyrir
valinu því Sveitapilturinn var
bara sýndur hér en það átti að
sýna á báðum stöðum. Við
stefnum svo á aðra sýningu í
Höfðaborg á nýju ári en getum
samt engu lofað. Þetta er alveg
kjörið, nú þegar kosninga-
áróðurinn er búinn að bylja á
okkur að taka smá pásu frá því,
mæta í Migarð, og tæma
hugann aðeins, hlæja og hafa
gaman af áður en farið er á
kjörstað og kosið rétt. Þetta er
upplögð uppskrift að góðri
kosningahelgi,“ segja þær Jó-
hanna og Berglind að lokum.
Björn (Jón Sigurðsson) skipstjóri á stíminu en hásetarnir Gaui (Sigmundur
Jóhannesson) og Ragga (Sæunn Jóhannesdóttir) nýta tímann vel.
Leikhópurinn á æfingu.
Verum snjöll
verZlum
heima
„NÚ ER ÞAÐ BLAUTT!
BÍLLINN Í SKRALLI?“
HAFÐU ENGAR ÁHYGGJUR ÞVÍ HÉR ER ALLT TIL ALLS,
LÍKA FRÁBÆR BIFREIÐAVERKSTÆÐI.
N
Ý
P
R
E
N
T
E
H
F
/ M
Y
N
D
: F
A
C
E
B
O
O
K
: B
LÖ
N
D
U
Ó
S
- LJÓ
S
M
Y
N
D
A
S
A
F
N
A
-H
Ú
N
A
V
A
T
N
S
S
Ý
S
LA
Öryrkjabandalag Íslands
Þuríður Harpa kjörin formaður
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, varaformaður
Sjálfsbjargar og framkvæmdastjóri Nýprents
á Sauðárkróki, var kjörin nýr formaður
Öryrkjabandalags Íslands á aðalfundi
samtakanna sl. laugardag. Þuríður Harpa
tekur við af Ellen Calmon, sem hefur verið
formaður bandalagsins frá árinu 2013.
Þuríður Harpa fékk 68 atkvæði í formanns-
kjörinu en mótframbjóðandi hennar, Einar
Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV Ísland,
fékk 58 atkvæði.
Síðustu þrettán ár hefur Þuríður gegnt starfi
framkvæmdastjóra Nýprents á Sauðárkróki
sem meðal annars gefur út Sjónhornið og Feyki
auk þess að fást við ýmis önnur prent- og
hönnunarverkefni.
„Nei, ég var alls ekki sigurviss, enda góður
frambjóðandi á móti mér,“ svarar Þuríður um
hvort hún hefði búist við sigri í aðdraganda
kjörsins. Hún segir helstu baráttumál hennar
sem formaður varða mannréttindi, lögfestingu
NPA og samnings Sameinuðu þjóðanna og að
kjör öryrkja og langveikra verði bætt.
Hvað tekur nú við hjá þér? „Það verður
sennilega frekar kaotískt líf hjá mér þessa fyrstu
mánuði, ég þarf að finna mér húsnæði í borg-
inni, og koma starfi mínu í Nýprent í góðar
hendur samhliða því að vera byrjuð að vinna
sem formaður ÖBÍ,“ segir Þuríður og bætir við:
„Ég vil þakka öllu því frábæra fólki sem ég hef
unnið með hér í gegnum tíðina, það er dýrmætt
að hafa fengið að kynnast og starfa með svo
mörgu skemmtilegu fólki. Svo þakka ég við-
skiptavinum Nýprents fyrir góð kynni og góð
samskipti. Skagfirðingum og öðru samferða-
fólki sendi ég hlýjar kveðjur með þakklæti fyrir
viðkynningu.“ /PF
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, að loknum
kosningum. MYND AF SÍÐU ÖBÍ
40/2017 11