Feykir - 25.10.2017, Síða 12
Hrói höttur
Uppfærsla Leikfélags Sauðárkróks
Ég er sest fyrir miðju í
salnum í Bifröst, tilbúin í
það sem næsti einn og hálfi
tíminn hefur upp á að bjóða.
Áfangastaður er Skíris-
skógur, fararstjóri er
Leikfélag Sauðárkróks og
eftir að hafa rennt yfir
leikaravalið í leikskránni
virðist ég vera á leið í
skemmtiferð af bestu sort!
Inn salinn ráðast hermenn í
leit að hetjunni okkar – Hróa
hetti, sem hefur náð að
móðga eiginkonu sýslu-
mannsins og uppsker að
sjálfsögðu stöðu réttdræps
útlaga.
Því næst mætir á svið Hrói sjálfur,
leikinn af Jóhannesi Friðriki
Ingimundarsyni, á flótta undan
hermönnunum og rekst á Litla
Jón sem útskýrir fyrir honum að
hann hafi unnið sér rétt til að
kalla sig forsprakka útlaganna í
Skírisskógi. Ég ætla nú ekki að
fara að útlista leikfléttuna nánar,
en einu get ég þó lofað –
skemmtunin er stórkostleg allan
tímann!
Ég varð strax spennt þegar ég
frétti hver léki titilhlutverk sýn-
ingarinnar, enda er Jóhannes
Friðrik frábær leikari og gerir allt
vel sem hann tekur sér fyrir
hendur í leiklistinni. Í þessu verki
er hann öruggur og skemmtilegur
á sviðinu og slær ekki feilnótu.
Guðbrandur okkar Guðbrandsson
er í hlutverki Litla Jóns og leikur
sitt hlutverk af þeirri fagmennsku
og snilld sem alltaf er hægt að
treysta á þegar hann stígur á
stokk. Systkinin Emelíana Lillý
og Eysteinn Ívar eru ótrúlega
skemmtileg í þessu verki.
Emelíana er mjög sniðug á sviði
– virðist hafa auga fyrir kómískum
smáatriðum og er snjöll í að láta
það vinna með sér. Eysteinn er
einnig frábær gamanleikari og
voru þau stórkostleg hvort á sinn
hátt í hermannakvartettinum.
Leikararnir stóðu sig að mestu
leyti frábærlega og voru bæði
Sigurlaug Lilja, í hlutverki Maríon,
og Sigrún Hrönn, í hlutverki fall-
egu frúarinnar, mjög líflegar og
skemmtilegar. Saga Sjöfn – í
hlutverki Sýslumannsins – var
frábær. Það er unun að fylgjast
með henni á sviði, karakterinn
gerir hún algjörlega að sínum og
svipbrigði hennar og raddstyrkur
eru dásamleg! Það að karl-
mannshlutverk sé leikið af kven-
manni skiptir engu máli þarna
vegna þess að ekki er víst að
nokkur annar hefði skilað hlut-
verkinu jafn skemmtilega af sér
og hún gerði.
En að öllum öðrum ólöstuðum,
þá kemur stjörnuleikur sýningar-
innar frá senuþjófnum og nýlið-
anum Óskari Marteini Helgasyni!
Í hlutverki Tóka munks fer hann
algjörlega á kostum og hvort
heldur sem er líkamstjáning eða
hvernig hann ber rulluna fram, þá
er hann algjörlega brilliant! Það
er líkt og Örn Árnason og Laddi
hafi eignast son saman, svo góð
tök hefur hann á gamanleik.
Vonandi er þetta verk bara hans
fyrstu skref í leiklistinni.
Sviðsmyndin er skemmtilega
minimalísk og að mestu leyti
samanstendur hún af einum
KÍKT Í LEIKHÚS
Hrafnhildur Viðarsdóttir
kassa á miðju sviðinu sem svo er
snúið og breytt til að henta hverju
atriði. Svona einföldun finnst mér
alltaf mjög skemmtileg, enda er
oft sem það getur hreinlega unnið
á móti verkinu ef of mikið er að
gerast í sviðsmyndinni sjálfri.
Lýsingin er einnig skemmtileg, og
eftirminnilegt er seinasta atriði
fyrir hlé þar sem bardagaatriði fer
fram einungis með sterkri bak-
lýsingu og gefur manni þá tálsýn
að maður sé hreinlega nánast að
horfa á bíómynd. Tónlistin skipar
skemmtilegan sess í verkinu, og
það að nútíma tónlist sé notuð á
móti miðaldayfirbragði verksins
framkallar ákveðna tímaskekkju
sem hristir á skemmtilegan hátt
upp í verkinu.
Leikstjórn er í höndum Bryn-
dísar Óskar Þ. Ingvarsdóttur.
Bryndís virðist hafa gott auga fyrir
styrkleikum leikara sinna og
kómískum smáatriðum. Leikar-
arnir halda karakter allan tímann,
hvort sem fókusinn er á þá eður
ei, og fylla atriðin með smáatriðum
sem eru kjöt á bein sýningarinnar
í heild. Hvort sem það er hljóðlaust
samtal á milli leikara á meðan
athygli sýningargesta er á öðrum,
litlar hreyfingar eða karakter-
ákvarðanir sem jafnvel eru
kannski ekki í handriti upphaflega,
þá er ljóst að leikstjórinn er með
puttann á púlsinum.
Hrói höttur í uppfærslu Leik-
félags Sauðárkróks er einfaldlega
sýning sem enginn má láta
framhjá sér fara, og þó að verkið
sé í grunninn barnaleikrit, þá er
svo margt í því sem höfðar til
fullorðinna líka svona fyrir utan
það að leikritið er brjálæðislega
fyndið! Ég mæli svo sannarlega
með því að flestir leggi leið sína í
Bifröst til að horfa á þessa
uppfærslu.
Leikhópur og leikstjóri Hróa hattar
að lokinni frumsýningu.
MYND: PF
Skotíþróttafólk Markviss
Jón Brynjar og Snjólaug valin
Keppnistímabilinu er nú
lokið í þeim skotgreinum
sem stundaðar eru utan-
húss og átti Skotfélagið
Markviss níu keppendur í
hagla- og kúlugreinum á
keppnistímabilinu.
Stjórn Markviss hefur nú
tilnefnt skotíþróttafólk úr
sínum röðum til titilsins
íþróttamaður ársins innan
USAH. Að venju voru valdir
einstaklingar úr bæði hagla-
og kúlugreinum og árangur
keppenda hafður til hlið-
sjónar við valið. Þau Snjólaug
M. Jónsdóttir og Jón Brynjar
Kristjánsson urðu fyrir valinu
að þessu sinni en árangur
þeirra beggja á árinu var frá-
bær að því er segir í pistli frá
stjórn félagsins á Húna.is. /FE
Haustmót JSÍ yngri flokka í júdó
Tsvetan með gull
Haustmót Júdósambands
Íslands, yngri flokka, var
haldið í Grindavík sl. laugar-
dag en þar átti Júdódeild
Tindastóls fimm keppendur á
meðal 46 annarra. Mótið var
fyrir árganga 1997 til 2006
og var keppt í aldurs- og
þyngdarflokkum og voru
félögin alls átta sem áttu
keppendur á mótinu.
Á heimasíðu Tindastóls
segir að keppendur Tindastóls
hafi staðið sig vel á mótinu en
þar bar hæst að Tsvetan
Tsvetanov Michevski vann til
gullverðlauna í sínum flokki. Í
sama flokki varð Þorgrímur
Svavar Runólfsson í þriðja sæti,
en hann keppti upp fyrir sig í
aldri. Viktor Darri Magnússon
og Arnór Freyr Fjólmundsson
höfnuðu í öðru sæti í sínum
flokkum og Magnús Elí Jóns-
son varð fimmti í sínum flokki.
/PF
Keppendur Júdódeildar Tindastóls á Haustmóti JSÍ yngri flokka. Standandi frá vinstri:
Þorgrímur Svavar Runólfsson, Tsvetan Tsvetanov Michevski, Viktor Darri Magnússon og
Magnús Elí Jónsson. Fyrir framan: Arnór Freyr Fjólmundsson. MYND: EINAR ÖRN HREINSSON
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is
Dominos deildin : Tindastóll - Þór Akureyri 92-70
Montrétturinn á Króknum
Tindastóll og Þór Akureyri
áttust við í fjörugum og
skemmtilegum körfuboltaleik
í Síkinu sl. fimmtudagskvöld.
Hávær sveit hressra Þórsara
fylgdi sínum mönnum og voru
kampakátir fyrstu mínúturnar
en Stólarnir náðu fljótlega
yfirhöndinni í leiknum og
þrátt fyrir ágætan leik
gestanna voru þeir aldrei
nálægt því að koma
heimamönnum úr jafnvægi.
Eftir fyrri viðureign norðan-
liðanna eru það því Króksar-
arnir sem hafa montréttinn.
Lokatölur 92-70 og leikur
Tindastóls uppörvandi. Lið
Þórs stóð lengi í Stólunum en
það var annar bragur á liði
Tindastóls gegn Þór en í síðustu
leikjum. Vörnin lengstum til
fyrirmyndar, sóknin fjölbreytt-
ari og að þessu sinni unnu
Stólarnir alla leikhlutana.
Pétur var bestur Tindastóls-
manna, hann skilaði 17 stigum,
tók flest fráköst Tindastóls-
manna eða 11, átti sex stoð-
sendingar og stal þremur
boltum. Stigahæstur var Arnar
með 20 stig, Hester var með 18
og Caird 14. Tíu leikmenn
Tindastóls gerðu stig í leiknum.
Næsti leikur er í Grindavík á
föstudagskvöldið. /ÓAB
12 40/2017