Feykir - 25.10.2017, Side 14
Það kom engum á óvart sá fjöldi sem
fylgdi Jóni Halli vini okkar og vel-
gjörðarmanni síðasta spölinn á laugar-
daginn. Honum var mikill sómi sýndur
með fallegri athöfn, einstaklega inni-
haldsríkri ræðu sr. Sigríðar og áhrifa-
miklum söng félaga hans og vina. Með
okkur geymum við svo margt um hann
hvert með sínu sniði. Í því knappa formi
sem minningargreinar eru þá reyndi ég
að koma fáeinum orðum á blað, en svo
margt er þar ósagt.
Ískaldur raunveruleikinn hefur vikið í
burtu þeirri von sem bærðist svo lengi í
brjóstum okkar þegar ljóst var að
alvarlegur sjúkdómur hefði búið um sig
í vini mínum Jóni Halli Ingólfssyni.
Voninni um að svo sterkur og vel gerður
maður gæti barist til sigurs, því hvað er
eftir þegar vonin er tekin frá okkur?
Jón Hallur var óvenjulegur maður að
atgervi og hæfileikum. Það er sama hvar
hann hefði haslað sér völl, hann hefði alls
staðar verið yfirburðamaður. Og þess
hefur samfélagið sem hann fæddist og bjó
í sannarlega notið. Svo ég vitni í hans
eigin orð: „Ég er fæddur undir heilla-
stjörnu. Ég er fæddur á Íslandi og ég er
fæddur í Skagafirði.“ En heppnin er okkar
hinna, að hann skyldi kjósa að rækta sinn
garð hér af þeirri ábyrgð og alúð sem öll
hans vegferð ber vitni. Jón Hallur í
bankanum var landsþekktur maður og til
hans bar fólk meira traust en gengur og
gerist. Fyrir tíma netbanka var Jón sá sem
bjargaði öllu af lipurð og velvilja. Menn
hringdu jafnvel af bílasölum um helgar
og fengu hann til að ábyrgjast greiðslur
eftir helgina svo hægt væri að aka heim á
bílnum. Mundi allar kennitölur, hverja
bón og brást aldrei nákvæmnin. Og
sporin liggja víða. Hvort sem hann var í
lögreglubúningi, sjóstakk, björgunar-
sveitargallanum eða með smíðasvuntu
var hann ósérhlífinn og einstaklega vand-
aður bæði til orðs og æðis, vinsæll og
vinmargur.
Vinátta okkar spannar áratugi allt frá
því að hann sem ungur maður fór að
venja komur sínar í Hraun, síðar þegar
Jóhann og Hulda voru þar í sveit og svo
öll þau ár sem við höfum staðið hlið við
hlið af ýmsum tilefnum, ekki síst hér á
Löngumýri, sungið og sprellað. Á sviði
var Jón Hallur eins og fiskur í vatni. Þar
nutu söng- og leikhæfileikarnir sín til
fullnustu, óvenjulega músíkalskur með
glampandi tenórrödd. Þá kastaði hann af
sér hinu ábyrga yfirbragði bankamannsins
og sögumanninum og æringjanum var
sleppt lausum. Gríni og gamanbrögum
var fylgt eftir með látbragði, augnagotum
og handahreyfingum sem hvaða atvinnu-
maður hefði verið fullsæmdur af. Á milli
okkar var einhver hulinn strengur, þegar
annar hugsaði þá framkvæmdi hinn. Það
gat þó brugðist, einkum þegar hann bætti
við ófyrirséðum hreyfingum eða leik-
munum sem leystu atriðið upp í hláturs-
kast okkar beggja.
Stóri vinningurinn í lífi Jóns Halls var
blessunin hún Aðalbjörg og í framhaldinu
þessi dásamlegu börn þeirra Hallgrímur
og Kristveig sem bættust við Jóhann og
Huldu sem Aðalbjörg opnaði faðm sinn
mót. Í hartnær þrjá áratugi réru hjónin
samhliða og samtaka, nú síðast í ólgusjó
veikindanna. Styrk Aðalbjargar og æðru-
leysi Jóns Halls við þær aðstæður lýsa
engin orð. Yfirvegunin brást aldrei þar
sem umhyggju og ráðum var deilt öðrum
til hjálpar.
Ævin er stutt,
hvert andvarp frá tímanum dregið,
hvert augnablik mælt eða vegið
hvert tár, sérhver bæn sérhvert bros.
Menn spyrna við fast,
en enginn fær æmt eða flúið
þar aldrei til baka er snúið
því dómarinn líður ei los.
-En reglurnar samt skilja frekar fáir
því Faðir vor hann afsker bæði og sáir.
Við lútum í sorg,
og látum þær minningar flæða
sem líkna og sárin helst græða.
og hugarins harmkvæla dyn.
Þá eygjum við ljós,
sem reka burt reiði og efa,
í raununum friða og sefa
er kveðjum við kærasta vin.
-Og eftir stendur í því stóra skarði,
í okkar þágu lífi sínu varði.
Guð blessi minningu Jóns Halls og styrki
ástvini hans alla.
Gunnar Rögnvaldsson
M I N N I N G
Jón Hallur Ingólfsson
fæddur 10. nóvember 1957 – látinn 12. október 2017
Gunni Rögg, Jón Hallur og Íris Olga á skemmtuninni Lífið er núna í sumar. MYND ÓAB
14 40/2017