Feykir - 25.10.2017, Side 18
Fjöldi gesta
við opnun
Heilsupróteins
Próteinverksmiðja MS og KS vígð
Hin nýja próteinverk-
smiðja, Heilsuprótein, á
Sauðárkróki, var formlega
vígð sl. laugardag að
viðstöddu fjölmenni.
Mjólkursamsalan og
Kaupfélag Skagfirðinga
tóku höndum saman um
að stofna fyrirtækið sem
ætlað er að framleiða
verðmætar afurðir úr
mysu, sem áður hefur
verið fargað.
Í fyrri áfanga verksmiðjunnar,
sem nú var vígð, verður fram-
leitt próteinduft úr mysu sem
fellur til við ostagerð á Vestur-,
Norður- og Austurlandi en í
síðari áfanga verksmiðjunnar,
sem áætlað er að komist í gagnið
innan tveggja ára, verður
framleitt etanól úr mjólkursykri
ostamysunnar og einnig úr
mysu sem fellur til við skyrgerð.
Mikill fjöldi fólks var
samankominn í salarkynnum
samlagsins og hlýddi á ræður,
söng og þakkir. Boðið var upp á
ýmislegt góðgæti sem m.a. er
framleitt úr mjólkurafurðum,
mysupróteini og mjólkursykri.
Meðfylgjandi myndir, sem
Hinir sömu tóku, eru frá
vígslunni.
TEXTI Páll Friðriksson MYNDIR Hinir sömu sf.
18 40/2017